Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 6

Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 6
Niðurstaða landlæknis er að meðferð móður minnar hafi haft öll einkenni lífslokameð- ferðar. Þá skiptir ekki máli hvernig mál eru skráð. Eva Hauksdóttir, lögmaður Fúsk er allsráðandi á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja, að sögn aðstandanda konu sem lést á stofnuninni. Skráning mála ein og sér skýri vart alvarlega misbresti. Landspít- alinn mun kalla eftir nánari upplýsingum. bth@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Eva Hauksdóttir, dóttir konu sem lést 19. október árið 2019 á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja (HSS), efast um að matsgerðir dómkvaddra matsmanna muni leiða til þess að rannsókn á hendur lækni sem annaðist móður hennar verði felld niður. Grunur hefur beinst að tilefnislausum lífsloka- meðferðum tveggja lækna hjá HSS. Lögmaður læknisins sem ann- aðist móður Evu hélt því fram í Fréttablaðinu í gær að niðurstaða matsgerðanna væri þannig að hann teldi viðbúið að mál gegn lækninum yrðu felld niður og rannsókn hætt. Í matsgerðunum segir að skráning læknismeðferða á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja í tölvukerfum hafi verið með öðrum hætti en á öðrum sjúkrastofnunum. Ekki hafi alltaf verið samræmi milli skráninga í tölvukerfum og þeirra meðferða sem í raun hafi verið veittar. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mun nú ákveða næstu skref en matsgerðirnar voru hluti af rann- sókn málsins. Mjög alvarlegar ásak- anir hafa komið fram og hefur verið fjallað um allt að sex tilvik þar sem grunur hefur beinst að því hvort sjúklingar hafi fengið ástæðulausa lífslokameðferð. Embætti landlækn- is hefur í álitsgerð gert fjölmargar athugasemdir við störf að minnsta kosti annars þeirra tveggja lækna sem hafa verið til rannsóknar. Eva Hauksdóttir segist sjálf ekki hafa séð matsgerðina. Hún sé þó ekki hissa á að hafa lesið í Frétta- blaðinu að skráningu hafi verið ábótavant hjá HSS. Klúður hafi ein- kennt starfsemi stofnunarinnar, að minnsta kosti á deild móður hennar heitinnar. „Niðurstaða landlæknis er að meðferð móður minnar hafi haft öll einkenni lífslokameðferðar. Þá skiptir ekki máli hvernig mál eru skráð,“ segir Eva. Hún bætir við: „Við höfum séð hluti sem eru svo alvarlegir að það er full ástæða til að lögreglan á Suðurnesjum rannsaki þá frekar. Þetta er ekki allt einn misskilning- ur.“ Varðandi ummæli lögmanns læknisins um að málinu hljóti nú að ljúka og rannsókn verði hætt, segir Eva, sem sjálf er lögmaður, að það sé ekkert nýtt að lögmenn sak- borninga í alvarlegum sakamálum vilji að umræðan snúist umbjóð- endum þeirra sem mest í hag. „En mér finnst þetta fúlt vegna þess að ég veit hvernig í málinu liggur.“ Starfssaga annars læknisins hefur ítrekað orðið fréttaefni. Fordæmdu margir þegar hann fékk starf hjá Landspítalanum á sama tíma og málið var í rannsókn. Í svörum Landspítalans við fyrirspurn Frétta- blaðsins um það hvort læknirinn muni aftur snúa til starfa á grunni matsgerðanna segir að Landspítal- inn muni kalla eftir nánari kynn- ingu á niðurstöðum matsgerðanna. Læknirinn sem um ræðir er í leyfi. n Matsgerðir dugi ekki til að fella niður rannsókn máls Aðstandandi konu sem lést á HSS segir ekkert nýtt að lögmenn sakborninga í alvarlegum sakamálum vilji að um- ræðan snúist umbjóðendum þeirra sem mest í hag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Helstu einkenni sjúkdómsins hjá hundum er fósturlát seint á meðgöngutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM ser@frettabladid.is DÝRAVELFERÐ Grunur leikur á að ný bakteríusýking hafi greinst í íslenskum hundum sem ekki hefur komið upp hér á landi áður, svo- kölluð Brucella canis, að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvæla- stofnun. Þar kemur fram að bakterían er svokölluð súna sem getur smitast á milli dýra og manna, en stofn- unin tekur þó fram að smit í fólk af völdum hennar sé sjaldgæft, en hún smitast almennt ekki á milli manna. Helstu einkenni sjúkdómsins hjá hundum er fósturlát seint á með- göngutíma, andvana eða veikburða hvolpar sem oft drepast fljótlega og bólgur í eistnalyppum hjá rökkum. Helsta smitleiðin milli dýra er pörun en náið samneyti milli hunda getur einnig valdið smiti. Fáum tilfellum af þessari bakt- eríusýkingu í fólki hafi verið lýst, en einkenni í mönnum geti verið hiti, hrollur, vanlíðan, lystarleysi, bein- eða vöðvaverkir og eitlastækkanir. Einkennin geti komið fram eftir nokkra daga eða jafnvel mánuði. Þau geti einnig horfið og komið aftur. Í tilkynningu stofnunarinnar segir að börn yngri en fimm ára, ónæmisbældir einstaklingar og þungaðar konur séu talin vera í meiri hættu á alvarlegri sýkingu. Helsta áhættan á smiti í fólk sé frá vessum og vefjum við fæðingar- hjálp hjá sýktum tíkum og því séu dýralæknar og hundaræktendur líklegastir til að verða útsettir fyrir smiti. n Áður ókunn sýking í hundum hér á landi sigurjon@frettabladid.is NÁTTÚRUVÁ „Það sem er að gerast í Öskju er að það er kvika að safnast fyrir á tveggja kílómetra dýpi. Það er búið að standa yfir í eitt ár,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarð- eðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands. Í gær fundaði Veðurstofa Íslands með vísindamönnum frá Jarðvís- indastofnun Háskóla Íslands ásamt fulltrúum almannavarna um þróun mála í Öskju síðustu mánuði þar sem landbreytingar og jarðskjálfta- gögn voru rædd. Óvissustig almannavarna er í gildi við Öskju og Veðurstofan fylg- ist vel með svæðinu ásamt almanna- vörnum, lögreglu og Vatna jökuls- þjóðgarði. Aðspurður segir Magnús óvíst hve lengi þessi virkni muni vara og hvernig þróunin verði. „Þetta gæti hætt á næstunni og þá gerist ekki meira. Þetta gæti haldið áfram í töluverðan tíma og þá kannski hætt og svo gæti þetta haldið áfram í töluverðan tíma og endað með gosi,“ segir hann. Hann segir ekki hægt að fullyrða um það. „En miðað við það að það er lítil jarðskjálftavirkni sem fylgir þessu þá bendir það til þess að Askja eigi svolítið inni, að hún geti safnað meiru áður en bergið brestur og kvika fer að brjótast til yfirborðs,“ segir Magnús Tumi. Askja er sögulega virk eldstöð. Síðast gaus í henni árið 1961 og þar áður á þriðja áratug tuttugustu aldar. Síðan varð stórt sprengigos í Öskju árið 1975 en þá myndaðist mikið gjóskulag sem barst yfir Norðausturland. „Það er ólíklegt að slíkt fari að endurtaka sig svona stuttu eftir svona atburð. Það er eitthvað sem við teljum mjög ólíklegt,“ segir Magnús Tumi og bætir við: „Það er líklegra að ef það gýs að það verði eitthvað í líkingu við gosið árið 1961 eða á þriðja áratug tuttugustu aldar, sem voru ekki stór gos.“ Magnús Tumi segir ekki hægt að fullyrða neitt að þessu. „Við verðum að bíða og sjá hverju fram vindur en flest bendir til þess að atburðarásin sé ekki komin á þann stað að það sé líklegt að það gjósi á næstunni,“ segir hann. n Askja geti safnað meiri kviku áður en bergið brestur Óvissustig hefur verið í gildi vegna Öskju síðan í september í fyrra. adalheidur@frettabladid.is EVRÓPUSAMBANDIÐ Samkomulag hefur náðist meðal ríkja Evrópu- sambandsins um að minnka gas- notkun næsta vetur um fimmtán prósent. Ráðherraráð sambandsins tilkynnti þetta í gær. Ungverjar voru andvígir sam- komulaginu, einir aðildarþjóða, en utanríkisráðherra Ungverjalands var í Moskvu í síðustu viku til að ganga frá samningi við Rússa um kaup á jarðgasi. Markmið samkomulagsins er að draga úr áhrifum Rússa, en Volo- dímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur varað við því að Rússar noti jarðgasið sem vopn gegn Evrópu- ríkjum. Gasfyrirtækið Gazprom, sem er í rússneskri ríkiseigu, tilkynnti á mánudag að gasflutningar til Evr- ópu yrðu skornir niður um helming frá deginum í dag. Fyrirtækið segir viðhald við dælustöð ástæðu niður- skurðarins en forysta Evrópusam- bandsins leggur ekki trúnað á það. n Minnka gasnotkun um fimmtán prósent Rússar ætla að draga verulega úr gasdælingu til Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY 6 Fréttir 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.