Fréttablaðið - 27.07.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 27.07.2022, Síða 10
Stofnandi nýsköpunarfyrir- tækisins Ankra, sem vinnur kollagen úr íslensku fisk- roði, segir að mikil tækifæri séu fólgin í að byrja að selja vörurnar erlendis. Fyrirtækið hyggst jafnframt kynna nýj- ungar á komandi misserum. Nýsköpunarfyrirtækið Ankra er með vörumerkið Feel Iceland sem sérhæfir sig í hágæða kollagen prót- íni sem unnið er úr íslensku fisk- roði. Hrönn Margrét Magnúsdóttir, stofnandi Ankra, segir að markmið fyrirtækisins hafi verið skýrt frá upphafi. Það er að bjóða upp á besta kollagen sem framleitt hefur verið úr besta hráefni sem fyrirfinnst. „Við fengum til liðs við okkur fyrrverandi starfsmann Kerecis sem var sérfræðingur í kollageni þegar við hófum vöruþróun. Við höfum svo unnið með lækni varðandi virkni og rannsóknir á kollageni en þeim hefur fjölgað gífurlega síðustu ár sem er mjög jákvætt. Við vinnum svo með einum reyndasta kollagen- framleiðanda í heimi en gæðin eru slík hjá þeim að þeir framleiða fyrir lyfjafyrirtæki. Þeir framleiða svo sérstaklega fyrir okkur kollagen úr besta hráefninu, íslensku fiskroði. Öll önnur framleiðsla á sér svo stað á Grenivík.“ Hrönn segir að það hafi opnað margar dyr að hafa aðgang að kolla- geni í þeim gæðum sem fyrirtækið er að vinna með þar sem auðvelt er að nota það í drykki og matvæli. Margir kannist eflaust við drykk- inn Collab en það var hugmynd frá Ankra að gera slíkan drykk. „Við fengum Ölgerðina til þess að vinna það með okkur og úr varð þetta öfluga samstarfsverkefni lítils frumkvöðlafyrirtækis og stærsta drykkjaframleiðanda landsins.“ Að sögn Hrannar kviknaði hug- myndin að Ankra út frá því að hún taldi nytsamlegt að reyna að nýta betur aukaafurðir íslenska fisksins. „Tengdafaðir minn er skipstjóri að vestan og eftir að hafa fylgst með hvað varð um fiskinn sem var veiddur langaði mig að reyna að auka verðmæti hans með því að þróa hágæða vörur úr fisknum og nýta betur það sem var hent.“ Hún leigði sér borð í frumkvöðla- setri Sjávarklasans og kynntist þar Hefur gæði að leiðarljósi og stefnir á útrás magdalena@frettabladid.is Nýsköpunarfyrirtækið Stubbur er miðasöluvettvangur (e. platform) fyrir minni viðburði. Hlutverk fyrir- tækisins er meðal annars að selja miða á smærri viðburði, þá aðallega íþróttaviðburði, og gefa út árskort, skírteini og fjölmiðlapassa. Hjá fyrirtækinu starfa fjórir og það hefur farið ört stækkandi á síð- ustu misserum. Jónas Óli Jónasson, stofnandi Stubbs, segir í samtali við Markað- inn að hugmyndin að fyrirtækinu hafi kviknað þegar hann var við nám í Svíþjóð. „Ég gerði smáforrit fyrir KR (Knattspyrnufélag Reykjavíkur) á sínum tíma sem var hugsað sem vettvangur upplýsinga um félagið fyrir stuðningsmenn. Síðan var ég í námi í Svíþjóð í alþjóðlegri mark- aðssetningu og vörumerkjaþróun og þá sá ég að allir lestarmiðarnir voru virkjaðir í síma og hugsaði að þetta yrði flott virkni í appinu. Þá tengdi maður saman tvo og tvo og úr varð Stubbur,“ segi Jónas og bætir við að fyrirtækið hafi snemma innleitt þá stefnu að einblína á íþróttaviðburði. „Það sem við viljum gera er að búa til betri tengingu milli viðburðar- haldara og áhorfanda, þar sem stuðningsmenn mæta oft á sömu viðburði hjá tilteknu félagi. Við ein- blínum á íþróttaviðburði þar sem miðarnir mega ekki vera of flóknir og aðstoðum félög við að senda út áminningar um viðburði í gegnum tilkynningar (e. notifications) til áhorfanda.“ Jónas segir jafnframt að einn- ig hafi sú ákvörðun verið tekin snemma að fara ekki í beina sam- keppni við aðrar lausnir heldur einbeita sér að smærri viðburðum þar sem gat hafi verið til staðar á markaðnum þegar kemur að þeim. „Við erum á þessari stundu bara á okkar hillu og viljum einbeita okkur að því sem við erum að gera, frekar heldur en að fara í samkeppni við stærri aðila á öðrum viðburðum. Samkeppni er að sjálfsögðu af því góða en hún getur verið mjög hörð.“ Jónas bætir við að fyrirtækið stefni þó á að fara í útrás erlendis og segist vera viss um að tækifærin liggi þar. „Stubbur er í þeim undirbúnings- fasa að fara í útrás erlendis. Við ein- beitum okkur að því að landa við- burðum erlendis inn í Stubbs-kerfið. Við fengum styrk frá Tækniþróunar- sjóði í fyrra og það hefur hjálpað okkur mikið við að þróa vöruna áfram. Ég er virkilega þakklátur fyrir að fá þann styrk. Stefnan er sett á að sækja okkur meira fjármagn á næstu misserum,“ segir Jónas og nefnir að fram að styrknum hafi fyrirtækið fjármagnað sig með góðum samn- ingum við sérsamböndin og eigin fjármagni. n Nýsköpunarfyrirtækið Stubbur fyllir í gat á markaðnum Jónas Óli, stofnandi Stubbs, segir að Stubbur stefni í útrás erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kristínu Ýri Pétursdóttur, með- stofnanda Ankra, sem var þá í sum- arstarfi fyrir Sjávarklasann. „Þar lærði ég að það væri hægt að nýta f iskroðið til kollagen- framleiðslu en á þessum tíma var íslensku fiskroði oft hent með til- heyrandi kostnaði, það er ekki raunin í dag og verð á fiskroði hefur hækkað mikið.“ Á þeim tíma sem Ankra var stofnað var kollagen lítið þekkt sem fæðubótarefni en Hrönn segir að japanskar konur hafi tekið það inn árum saman sér til heilsubótar og fyrir húð og hár. Í dag sé kollagen orðið mjög eftirsótt um allan heim þar sem sífellt f leiri rannsóknir og ótal reynslusögur sýni fram á virkni þess. Hrönn segir að vörur fyrirtækis- ins hafi fengið gífurlega góðar við- tökur. „Heilt yfir hefur gengið nokkuð vel en vegferð frumkvöðla er svo sannarlega ekki rósum stráð. En við eigum góða að og það er ómetanlegt að geta leitað í reynslubanka stjórn- ar. Við höfum náð að stýra skútunni farsællega og erum að teikna upp leiðina sem við ætlum að sigla eftir og stefnum nú á að sigla hratt og örugglega áfram.“ Hrönn segir að Ankra sé að búa sig undir að fara í útrás. „Við stefnum hátt og við stefnum út í heim. Við höfum nýtt mikinn tíma í undirbúning fyrir þetta stóra skref og erum aðeins byrjuð að dýfa tánum í djúpu laugina. Vörurnar okkar eru til dæmis seldar í Magasin du Nord í Danmörku, Pantechnicon í London og á nokkrum sérhæfðum læknastofum í Bandaríkjunum.“ Hún bætir við að hún finni fyrir miklum áhuga á vörunum erlendis en það sé aftur á móti vandasamt að taka það skref og að mörgu sé að huga. „Það eru spennandi og krefjandi tímar fram undan en við erum með frábært teymi sem ég hef fulla trú á að muni koma okkur þangað sem við ætlum okkur.“ Hrönn segir að fyrirtækið stefni á að kynna ýmsar nýjungar á næstu misserum. „Við höfum verið í mikilli vöru- þróun undanfarið og höfum sótt þekkingu til erlendra reynslubolta sem hafa unnið fyrir mjög þekkt alþjóðleg vörumerki. Það er mikið af spennandi hlutum að gerast hjá okkur sem við munum kynna á næsta ári.“ n Það sem við viljum gera er að búa til betri tengingu milli við- burðarhaldara og áhorfanda. Heilt yfir hefur gengið nokkuð vel en vegferð frumkvöðla er svo sannarlega ekki rósum stráð. Hrönn segir að fyrirtækið muni kynna kynna ýmsar nýjungar á næstu miss- erum. MYND/AÐSEND Magdalena Anna Torfadóttir magdalena @frettabladid.is MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.