Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 11

Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 11
Engin þeirra íbúða sem eru í boði á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir fellur undir skilyrði hlutdeildar­ lána. Formaður Samtaka leigjenda segir úrræðið ekki virka og að stjórnvöldum hafi mistekist að hjálpa fólki undir ákveðnum tekjumörkum að eignast húsnæði. ggunnars@frettabladid.is Hlutdeildarlánin voru fyrst kynnt í apríl 2019 sem hluti af átaki stjórn­ valda á húsnæðismarkaði. Þeim var ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup. Fréttablaðið hefur undir höndum svör Húsnæðis­ og mannvirkj­ astofnunar, HMS, til umsækjenda um hlutdeildarlán þar sem kemur fram að engar íbúðir uppfylli skil­ yrði um hámarksverð um þessar mundir. Þá segir jafnframt í svörunum að stofnunin hafi ekki svigrúm til að samþykkja neinar undanþágur, jafnvel þótt öll önnur skilyrði úrræðisins séu uppfyllt. Reglugerð um hlutdeildarlán er á ábyrgð innviðaráðuneytis en við­ miðunarverðið sem um ræðir er endurskoðað árlega. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, segir ljóst að stjórnvöldum hafi ekki tek­ ist að auðvelda tekjulágum hópum að komast inn á markaðinn með þessu úrræði. „Ef ég tala fyrir okkar félags­ menn, sem eru að stærstum hluta tekjulágt fjölskyldufólk, þá hefur þetta úrræði ekki virkað fyrir þann hóp. Það er alveg klárt. Þetta er ekki einu sinni álitinn valkostur hjá þeim sem eru að reyna að brjótast út af leigumarkaði.“ Þessa upplifun segir Guðmundur vel hægt að sannreyna með því að skoða gögn HMS. „Hreyfingin á fólki yfir 34 ára og eldri út af leigjendamarkaði er á bilinu hálft til eitt komma fjögur prósent. Þetta nær ekki til þeirra. Það eru meiri líkur á að læknast af illvígum sjúkdómi en að komast út af leigumarkaði. Það er bara staðan í dag og hún hefur ekkert breyst með tilkomu þessa úrræðis.“ Að mati Guðmundar er helsta vandamálið að viðmiðunarfjár­ hæðin, sem ráðuneytið gefur út, haldi engan veginn í við markað­ inn. „Við höfum vísbendingar um að staðan á markaðnum í dag sé þann­ ig að söluverðmæti þessara íbúða, sem áttu að ná til tekjulágra hópa, er allt að þrisvar sinnum hærra en byggingarkostnaður. Verð á því sem á að heita hagkvæmt húsnæði í Reykjavík er komið upp undir 900 þúsund krónur á fermetra.“ Hann segir þá hagnast helst á úrræðinu sem vilji umfram allt við­ halda framboðsskorti. „Auðvitað er best fyrir byggingar­ aðila að fermetraverðið sé í þessum hæðum og að munurinn á bygg­ ingarkostnaði annars vegar og sölu­ verðmæti hins vegar sé sem mestur. En þá veltir maður því líka fyrir sér, í ljósi hástemmdra yfirlýsinga þeirra sem hafa talað fyrir þessu úrræði, hvað menn meintu eiginlega þegar þeir töluðu um hagkvæmt húsnæði eða bjargráð til þeirra sem mest þurfa á að halda.“ Guðmundur segir ekkert nýtt að vald verktakans sé algert. En það sé þó öllu verra að það sé enginn raun­ verulegur vilji hjá stjórnvöldum til að vinda ofan af ástandinu. „Það var talað um það í upphafi að það yrðu ákvæði um byggingar­ kostnað inni í þessari reglugerð. Það varð ekki raunin. Sennilega vegna þess að það er enginn raunveru­ legur vilji til að taka á þessu eða mæta þörfum viðkvæmra hópa. Eða hvernig á maður annars að túlka svona úrræði? Sem gagnast helst þeim sem auðgast á ástandinu. Með sína 200 prósent álagningu á íbúðum sem kerfið hvetur þá til að reisa.“ Hann segir úthlutanir þessara lána helst hafa gagnast ungu barn­ lausu fólki sem leigi svo íbúðirnar út. „Við sjáum það á þeim aðgerðum sem Húsnæðis­ og mannvirkja­ stofnun hefur gripið til vegna óleyfi­ legrar útleigu á íbúðum sem falla undir þetta úrræði. Þetta er ekki sá hópur sem talað var um að mæta.“ Guðmundur segir að úrræðið hafi upphaflega vakið von í brjósti þeirra sem verst standa á húsnæðis­ markaði. Sú von hafi síðan orðið að engu með tímanum. „Ég efast ekkert um að ásetningur ráðamanna hafi verið góður. Enda er leiðin til heljar gjarnan vörðuð góðum ásetningi. En þetta er bara ekki að skila sér. Verðið á ódýrustu eignunum hefur haldið áfram að rjúka upp. Meðal annars vegna skorts á gagnsæi og þeirrar stefnu stjórnvalda að viðhalda því valdi sem verktakar og byggingaraðilar hafa á fasteignamarkaðnum. Hagur þess hóps sem verst stendur hefur síður en svo vænkast,“ segir Guð­ mundur. n Kennsla, sagnfræði og smíði eru starfsgreinar sem ég gæti alveg hugsað mér að sinna. Það eru meiri líkur á að læknast af illvígum sjúkdómi en að kom- ast út af leigumarkaði. Það er bara staðan í dag og hún hefur ekkert breyst. Guðmundur Hrafn Arngríms- son, formaður Samtaka leigj- enda Ólafur Sigurðsson er framkvæmda­ stjóri Birtu lífeyrissjóðs. Hann er heillaður af Hávamálum Eddu­ kvæða og hefur mikinn áhuga á sagnfræði og að skjótast í golf öðru hvoru. Hver eru þín helstu áhugamál? Sem stendur þá eru það handa­ hófskennd verkefni í garðinum og endurbætur á húsinu. Við hjónin keyptum fyrir nokkrum árum gam­ alt hús sem við erum í rólegheitum að aðlaga okkar högum. Ætli sagn­ fræðin f lokkist ekki meira undir áhugamál þó ég sitji í stjórn Sögu­ félags Ísfirðinga sökum brennandi áhuga á sögu. Annars eru íþróttir mitt helsta áhugamál og hafa alltaf verið. Það er fátt sem gleður jafn mikið og vel útfærð svigbeygja og/ eða gott snertimark í NFL. Eins finnst mér gaman að skjótast í golf öðru hvoru. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Háva má l Eddu k væða ha fa heillað mig lengi. Grein eftir Óttar Norðfjörð kenndi mér að skilja betur hugtakaheim Hávamála og heilræðin hafa reynst mér vel. Af nýlegri bókum þá hafði ég einstak­ lega gaman af bók Andrew Lo um markaðsaðlögun (e. Adaptive Mar­ kets) frá 2017. Hún er bæði hugvekja og skemmtilestur sem ég mæli ein­ dregið með við hvern sem er. Hann tengir þverfaglega saman efni um markaði sem dýpkaði skilning minn mikið á því hvað við eigum í raun mikið eftir að læra um markaði. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin á undanförnum miss- erum? Covid­tengd verkefni hafa bæði verið fjölbreytt og mörg hver mjög krefjandi. Það hefur of mikil orka farið til spillis í almennum leið­ indum sem fylgdu þessum faraldri sem sér nú ekki alveg fyrir endann á. Hávamál Eddukvæða hafa heillað lengi Ólafur segir að sín uppáhalds- borg sé Salzburg i Austurríki en hann var þar í námi í sex ár. MYND/AÐSEND n Svipmynd Ólafur Sigurðsson Nám: Meistaragráða í erfðafræði frá Paris Lodron-háskóla í Salzburg 1996, rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntun Háskóla Ís- lands 2000. Störf: Birta lífeyrissjóður frá 2016 og hjá forverum þess sjóðs frá 2005. Þar áður hjá Virðingu verð- bréfafyrirtæki, Íslandsbanka og Lyfjaverslun Íslands. Setið í fjöl- mörgum stjórnum og nefndum fyrir hönd vinnuveitanda. Fjölskylduhagir: Giftur Mörtu Hlín Magnadóttur, á með henni einn son og tvær uppeldisdætur. Hlutdeildarlánin gagnast ekki tekjulágum Formaður Samtaka leigjenda segir skorta pólitískan vilja til að mæta viðkvæmum hópum á fasteignamarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hvaða áskoranir eru fram undan? Að ná sátt við haghafa Birtu í mörgum stórum málum sem blasa við okkur. Verðbólgan er farin að minna óþægilega mikið á sig með tilheyrandi áhrifum á samfélagið. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ég hlakka mikið til næstu tíu ára og er frekar bjartsýnn á lífið og til­ veruna. Ég er sannfærður um að upplýsingatæknin eigi mikið inni svo ekki sé nú talað um líftæknina og orkuskiptin. Ég er þarna einhvers staðar í sjálfbærri Birtu, í góðu formi að klára Fossavatnsgönguna á Ísa­ firði rétt rúmlega sextugur að aldri. Ef ég verð ekki hjá Birtu lífeyrissjóði þá verð ég vonandi að vinna fyrir þá sem hafa áhuga á mínum starfs­ kröftum á milli þess sem ég rækta sambandið við fjölskyldu og vini. Ef þú þyrftir að velja annan starfs- frama, hvað yrði fyrir valinu? Uss, það er svo margt sem hefur heillað mig um ævina að ég á í mestu vandræðum með að velja. Kennsla, sagnfræði og smíði eru starfsgreinar sem ég gæti alveg hugsað mér að sinna, svo ekki sé nú minnst á líf­ tæknina. Hver er uppáhaldsborgin þín? Salzburg í Austurríki hvar ég var í námi í sex ár. Ég fór fyrir nokkrum árum þangað í kórferðalag með konunni og hún er klárlega uppá­ halds. Þægileg og vinaleg og býður upp á allt sem ég þarf. n MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 27. júlí 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.