Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 15

Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 27. júlí 2022 Barbie-heimurinn er orðinn að safni í Kanada. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY elin@frettabladid.is Mest selda dúkkan fær eigin sýn- ingu. Það er ekki bara kvikmynd væntanleg um Barbie heldur hefur einnig verið sett upp safn henni til heiðurs. Sýningin var opnuð fyrir nokkrum dögum í Mississauga í Kanada, sem er nálægt Toronto, á þrjátíu þúsund fermetra svæði. Sýningin heitir World of Barbie og mun seinna ferðast um Norður- Ameríku. Á sýningunni munu aðdáendur Barbie geta upplifað heim hennar í raunstærð. Hægt er að rölta um Barbie-hverfið og fara í heimsókn í húsið hennar. Framleiðandi Barbie, Mattel, stendur á bak við sýninguna ásamt fleirum. Barbie var fyrst kynnt til sögunnar árið 1959 svo aðstandendur sýningar- innar telja að fólk á öllum aldri muni koma og líta á heim hennar eigin augum. Litríkur heimur Sýningin endurspeglar litríkan lífs- stíl Barbie á stórbrotinn hátt. Þarna er endurskapaður heimur sem svo margir þekkja, jafnt húsgögn, bílar og fleira það sem börn hafa einungis kynnst sem leikföngum. Gestir fá alls kyns upplýsingar um hönnun og sögu Barbie í gegnum gagnvirkan miðil. Þess má geta að Barbie hefur verið framleidd í um 250 mismunandi störfum. Sýningin hefur vakið athygli en hún mun án efa vekja eftirvæntingu fyrir bíómyndinni um Barbie sem frum- sýnd verður á næsta ári með þeim Margot Robbie sem Barbie og Ryan Gosling sem Ken. ■ Í heimsókn á heimili Barbie Birgir Ómarsson, formaður Íslenska frisbígolfsambandsins, segir að íþróttin hafi vaxið hratt á Íslandi, sérstaklega eftir að settur var upp völlur á Klambratúni fyrir rúmum áratug. Samkvæmt könnun Gallup hafa 52 prósent Íslendinga á aldrinum 18 til 25 ára prófað íþróttina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Skemmtileg og einföld íþrótt sem hentar öllum Íslenska frisbígolfsambandið hefur kynnt frisbígolf af krafti og fengið bæjarfélög um allt land til að byggja velli. Íþróttin er aðgengileg og nýtur sívaxandi vinsælda, sérstaklega hjá ungu fólki, en í dag er fjöldi móta haldinn á hverju ári og starf sambandsins verður sífellt öflugra. 2 B Ä S T A I T E S T Bäst-i-Test 2022.s e BESTA SÓLARVÖRNIN 7 ár Í RÖÐ Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni og víðar | nánar á evy.is og celsus.is VATNASVÆÐI UM ALLT LAND 36 FYLGIRIT VEIÐIKORTSINS 18. árgangur - Kr. 8.900 - frelsi til að veiða! 00000 Aðeins 8.900 Frelsi til að veiða

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.