Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 28
Þetta er hræðilegur
tími til að eiga afmæli.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
SUMARÚTSALA
BETRA BAKS
20%
AFSLÁTTUR
AF TEMPUR
60%
AFSLÁTTUR
10-40%
A F H E I L S U I N N I S KÓ M
EXCLUSIVE TOPPER
Gæsadúnn. 90 x 200 cm.
Verð: 30.900 kr.
Nú 12.360 kr.
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Tinna Sigurðardóttir, betur
þekkt sem Tinna Túrbó,
eigandi flúðasiglingafyrir-
tækisins Arctic Rafting, er
fertug í dag. Hún hyggst halda
upp á afmælið með reifi og
kajakkeppni.
odduraevar@frettabladid.is
Tinna Sigurðardóttir, sem betur er
þekkt sem Tinna Túrbó, svo öflug er
hún, keypti ferðaþjónustufyrirtæk-
ið Arctic Rafting við Drumbodds-
staði við Hvítá í lok ársins 2020. Hún
er fertug í dag og hyggst halda upp á
afmælið með reifpartíi.
„Ég hef líklega ekki farið í
almennilegt frí í að verða tvö ár,
þannig ég tók mér tveggja daga frí,“
segir Tinna hlæjandi, spurð hvað
hún hyggist gera í tilefni dagsins.
Afmælishátíðin þarf þó að bíða
fram í ágúst.
„Þetta er hræðilegur tími til að
eiga afmæli. Það er að koma versl-
unarmannahelgi, ótrúlega mikið í
gangi og allir úti um allt, í útlöndum
eða bústað og náttúrlega brjálað að
gera hjá okkur. Þannig ég ákvað að
halda upp á þetta 13. ágúst,“ útskýr-
ir Tinna.
Hún mun blása til árlegrar kajak-
keppni í Tunguf ljóti þann dag,
sem kennt er við Tinnu og nefnist
„Túrbó kajakreis“ en Tinna hélt það
í fyrsta sinn í fyrra. „Við buðum
öllum upp á pylsu og vorum með
plötusnúð við ána og við endur-
tökum þetta í ár og ég býð í partí á
Drumbó,“ segir Tinna og á þar við
Drumboddsstaði.
Íslendingar í Gvatemala
Tinna hefur alltaf verið mikil
ævintýrakona og byrjaði að vinna
í ferðabransanum árið 2004. „Ég
kláraði Kvennó og ákvað að fara í
bakpokaferðalag um Mið-Ameríku
og fór að læra köfun þar. Svo hitti ég
bara fyrir slysni þrjá Íslendinga úti
á götu í Gvatemala sem voru í kajak-
ferð og einn þeirra segir mér frá því
að hann vinni sem flúðaleiðsögu-
maður á Íslandi,“ segir Tinna.
Síðan hefur Tinna meðal ann-
ars unnið sem leiðsögumaður við
köfun, við f lúðasiglingar og nælt
sér í viðskiptafræðigráðu í Ástr-
alíu og eytt sumrunum sínum á
kajak, ýmist í Nepal eða á Ganges á
í Rishikesh í norðurhluta Indlands.
Tinna segist óviss um hve oft hún
hafi farið þangað en fyrst fór hún
þangað árið 2017.
„Ég vann sem flúðaleiðsögumað-
ur í Noregi en fór alltaf aftur til Ind-
lands því ég var svo hrifin,“ útskýrir
Tinna. Hálft ár hafi því farið í f lúðir
í Noregi og rest í Indland. „Þar til ég
varð atvinnulaus leiðsögumaður í
kófinu og fór þá aðeins að spá í það
hvað ég ætti að gera.“
Indland heillar
„Þau bönkuðu upp á sumarið 1985
og báðu um að fá að þurrka sokkana
en hafa ekki farið síðan,“ sagði Anna
Svavarsdóttir, ein Drumba-systra í
blaðaviðtali um Vilborgu Hannes-
dóttur og Björn Gíslason sem fyrst
allra lögðu út til f lúðasiglinga frá
Drumboddsstöðum.
Tinna ætlar ekkert að fara heldur.
„Þetta hentar mér ótrúlega vel.
Flúðasiglingarnar ganga á sumrin
og svo á veturna get ég einbeitt mér
að því að byggja fyrirtækið upp og
skotist til Indlands og Nepal,“ segir
Tinna, sem lofar veislu þann 13.
ágúst.
„Ég ætlaði reyndar bara að bjóða
í prívatpartí fyrir vini og vanda-
menn og kajakáhugafólk,“ segir
Tinna hlæjandi, aðspurð hvort les-
endum sé ekki örugglega boðið. „En
ég ætla að kalla þetta „Reif í sokk-
inn“ eins og plöturnar hétu allar á
djammtímabilinu mínu á tíunda
áratugnum.“ n
Túrbó-Tinna fagnar
afmælinu með reifi og rafti
Eru nýju Hopp-hjólin betri
en þau gömlu?
Næsta kynslóð
hjóla með betri
jafnvægispunkt
Sæunn Ósk
Unnsteinsdóttir
framkvæmda-
stjóri Hopp
„Já, að vissu
leyti. Þau eru næsta kynslóð, eru
breiðari með betri jafnvægis-
punkt og þau eru mikið uppfærð
hönnunarlega séð af okkur og
okkar verkstæði.
Það er stórt umhverfismál og
því gríðarlega mikilvægt fyrir
okkur. Svo er líka bara svo gaman
að gleðja notendur okkur með því
að bjóða ávallt upp á það nýjasta
á markaðnum í dag þegar kemur
að örflæðissamgöngum.“ n
Það eru fáir
sem hafa sama
túrbókraft og
Tinna Sigurðar-
dóttir, sem á og
rekur Arctic Raf-
ting við Hvítá og
fagnar stóraf-
mæli í dag.
MYND/AÐSEND
Tinna lifir og hrærist í veröld vatnasportsins. MYND/AÐSEND
n Lykilspurningin
24 Lífið 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ