Fréttablaðið - 27.07.2022, Side 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Vissulega má oft satt kyrrt liggja
en það er ljótt að ljúga. Það kann
sjaldnast góðri lukku að stýra, en
lífið er nú ekki einfalt.
Í vikunni varð virðulegur
embættismaður uppvís að því að
fullyrða um að tiltekinn hópur
stundaði lygar sér til framdráttar,
raunar lífs. Fullyrt var að fólk
hefði logið sér til griða, enda
umhverfi hælisleitenda á Íslandi
furðulega harðneskjulegt og
raunar bara asnalegt, ef maður
splæsir hálfri hugsun í málið.
Nú getur maður í sjálfu sér ekki
sagt að embættismaðurinn hafi
logið til um lygarnar en í öllu falli
voru ummæli hans óboðleg og
ósæmandi.
Það er engin ástæða til að þakka
manninum ósómann, en þó má
segja að ummælin dragi athyglina
að þeirri afturför sem virðist
vera að verða í réttindabaráttu
hinsegin fólks. Ég hef áhyggjur af
samfélaginu okkar, sérstaklega
þeim okkar sem ekki lifum veru-
leika þeirra sem eru hinsegin og
klöppum okkur sjálfum á bakið
fyrir að kaupa regnbogafána
einu sinni á ári í Gleðigöngunni.
Við erum dálítið sjálfumglöð í
meintu umburðarlyndi, finnst við
jafnvel dálítið hafa skilað okkar
inn í baráttuna og að björninn sé
unninn. Nú geti þessi hinsegin
bara viðhaldið árangrinum sem
náðst hefur.
En þannig er þetta ekki. Það
skiptir ekki máli hvort hópurinn
er hinsegin, hafi ekki hvítan
húðlit sé fatlaður eða allt í senn
– baráttunni lýkur aldrei og við
öll verðum að taka þátt til að
viðhalda opnu, fjölbreyttu og
skemmtilegu samfélagi þar sem
við öll getum notið okkar. Þannig
að já, mætum í Gleðigönguna,
kaupum fánann, en umfram allt –
berjumst. n
Lygi
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
66north.is
Löng helgi framundan
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Rafhjólatrygging TM
er hugsuð fyrir þig
Hugsum í framtíð