Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 14. tbl. 25. árg. 6. apríl 2022 - kr. 950 í lausasölu
Opið
alla
daga
ársins
Tilboð gildir út mars 2022
HOT DOG & A
BOTTLE OF PEPSI
*BÆTTU VIÐ ANNARRI
PYLSU FYRIR 200 kr.
499 kr.
& Pepsi í flösku
PYLSA
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Betri framtíð fyrir
fermingarpeninginn
arionbanki.is/ferming Framtíðarreikningur Arion banka
Leggðu fermingarpeninginn inn hjá Arion
og fáðu allt að 12.000 kr. mótframlag
„Það er búinn að vera rífandi gang-
ur hjá okkur,“ segir Pétur Péturs-
son skipstjóri og útgerðarmaður á
Bárði SH í samtali við Skessuhorn.
„Alveg frá áramótum hefur verið
mokafli í netin og við höfum ver-
ið á sömu fermílunni í allan vet-
ur og aflinn hefur verið allt að 100
tonnum eftir daginn og oft landað
tvisvar sinnum yfir daginn.“
Í mars var aflinn á Bárði SH
1.180 tonn upp úr sjó sem er met.
Pétur segir að það hafi einnig ver-
ið metmánuðir í janúar og febrú-
ar svo það stefni í bestu vertíð á
bátnum frá upphafi. Pétur segir
að þessi vertíð hafi engu að síð-
ur verið mjög erfið veðurfarslega
séð og vindur aldrei farið undir 15
metra á sekúndu dag eftir dag, en
slíkt veðurlag gerir alla vinnu um
borð miklu erfiðari. Síðustu þrjá
daga hefur veðrið hins vegar ver-
ið gott, en meðfylgjandi myndir
voru teknar í róðri á laugardaginn
en fréttaritari Skessuhorns fékk
að fljóta með og fanga stemn-
inguna.
„Við vorum á veiðum skammt
frá landi fram að apríl en þá
færðum við trossurnar á Flák-
ann vegna fæðingarorlofs þorsks-
ins. Þar er líka góður afli, en við
vorum með 38 tonn á laugardag
og sunnudag svo við erum bara
ánægðir. Hér er nóg af fiski og
ekki annað hægt en að fiska vel,“
segir segir Pétur Pétursson skip-
stjóri.
af
Metmánuður á Bárði SH
Pétur Pétursson skipstjóri á Bárði.
Bárður SH er tvímælalaust með fallegri bátum í íslenska flotanum. Tryggvi Hafsteinsson losar úr netunum.