Skessuhorn - 06.04.2022, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 20226
Frumsýningu
í Grundaskóla
frestað
AKRANES: Frumsýningu á
söngleiknum Hunangsflug-
um og Villiköttum sem átti að
vera miðvikudaginn 6. apríl í
Grundaskóla á Akranesi hefur
verið frestað til fimmtudagsins
21. apríl. Helmingur leikhóps-
ins, eða um 15 til 20 manns, er
með inflúensu og því varð ljóst
að fresta þyrfti leiksýningunni.
-vaks
Verkefnastjóri
vegna móttöku
flóttafólks
AKRANES: Bæjarráð sam-
þykkti á fundi sínum þann 24.
mars síðastliðinn að hafinn yrði
undirbúningur ráðningar mála-
stjóra vegna móttöku flótta-
fólks á Akranesi en að starfs-
hlutfall viðkomandi yrði í sam-
ræmi við umfang verkefnis-
ins og fól bæjarstjóra þá frek-
ari úrvinnslu málsins. Á fundi
sínum síðastliðinn fimmtudag
samþykkti bæjarráð ráðningu
verkefnastjóra tímabundið í sex
mánuði en verði þá endurskoð-
að miðað við stöðu verkefnis-
ins. Samkvæmt kostnaðarlíkani
er gert ráð fyrir að mánaðarleg
útgjöld tengt ráðningu verk-
efnastjóra verði um 1,1 m.kr.
með launatengdum gjöldum.
Samtals er því gert ráð fyrir að
kostnaður vegna þessa þáttar
verkefnisins verði um 6,6 m.kr.
Bæjarráð gerir ráð fyrir að rík-
ið endurgreiði í það minnsta
hluta af þessum útgjöldum en
það liggur þó ekki fyrir endan-
lega. Bæjarráð samþykkti þenn-
an kostnað og vísaði til bæjar-
stjórnar til endanlegrar sam-
þykktar. -vaks
Sexfalt meiri
eftirspurn en
framboð
LANDIÐ: Fyrsti tilboðsmark-
aður ársins með greiðslumark í
mjólk var haldinn 1. apríl síð-
astliðinn. Matvælaráðuneytinu
bárust 162 gild tilboð um kaup
og voru sölutilboð 19. Boðnir
voru 1.309 þúsund lítrar til sölu
en óskað eftir að kaupa 7.830
þúsund lítra, en það jafgildir því
að eftirspurnin var sexfalt meiri
en framboðið. Sérstök úthlutun
til nýliða er 5% af sölutilboð-
um eða 65.481 lítrar, en fjöldi
gildra kauptilboða frá nýliðum
voru 13. „Sala greiðslumarks
fer nú fram samkvæmt gildum
tilboðum. Matvælaráðuneytið
mun senda öllum tilboðsgjöf-
um upplýsingar um afgreiðslu
tilboða og gera breytingar á
skráningu greiðslumarks þegar
uppgjör hefur farið fram. Upp-
lýsingar um greiðslumark sitt
geta bændur nálgast í Afurð,“
segir í tilkynningu. -mm
Banaslys á
Bröttubrekku
VESTURLAND: Karlmaður,
sem var einn á ferð á vélsleða
um kvöldmatarleytið á þriðju-
dag í liðinni viku, lést í slysi
nærri Bröttubrekku. Björg-
unarsveitir fengu útkallsbeiðni
klukkan 19:08 eftir að vélsleða-
menn sem áttu leið um svæðið
fundu manninn og gerðu við-
vart. Tilraunir til endurlífgun-
ar báru ekki árangur. Frá þessu
var greint á upplýsingasíðu lög-
reglunnar og bætt við að til-
drög slyssins væru til rannsókn-
ar. Fram kom í andlátstilkynn-
ingu að maðurinn hét Trausti
Hvannberg Ólafsson. Hann
var búsettur á Sturlu-Reykjum
í Reykholtsdal. -mm
Arionbanki með
besta tilboðið
AKRANES: Föstudaginn
11. mars voru opnuð tilboð á
fundi bæjarráðs Akraness vegna
útboðs um bankaviðskipti
kaupstaðarins. Á fundi bæjar-
ráðs síðasta fimmtudag sam-
þykkti ráðið að taka hagstæð-
asta tilboði bjóðenda sem eft-
ir nánari skoðun, leiðréttingu
á útreikningi í samræmi við
tilboð og samkvæmt skilmál-
um útboðsins, var Arionbanki.
Bæjarráð fól bæjarstjóra frekari
úrvinnslu málsins, þ.e. að ganga
frá samningi við bankann um
bankaviðskipti Akraneskaup-
staðar tímabilið 2022 til 2027,
og tilkynna tilboðsgjöfum um
niðurstöðuna. -vaks
Bræðurnir Aron Ívar og
Almar Þór Baldurssynir
eru 6 ára og búa í Borgar-
nesi. Þeir eru á leikskól-
anum Klettaborg en hafa
mjög gaman af að safna
steinum og að finna bein
er alltaf sérstakur bón-
us. Þeir eiga ömmu og
afa í Búðardal og bjuggu
sjálfir þar til þriggja ára
aldurs. Þeir fara oft í
fjöruferðir þar að safna
steinum, skeljum, kröbb-
um og einstaka smá bein-
um.
Bræðurnir duttu held-
ur betur í lukkupott-
inn nýverið þegar þeir fundu þetta
stærðar bein sem mönnum þyk-
ir nokkuð víst að sé úr hval. Þeir
roguðust með þetta heim til ömmu
og afa, mjög spennt-
ir að fá að vita hvort
beinið væri úr hákarli
eða hval, nú eða risa-
eðlu, var líka grín-
ast með. Þessi fund-
ur er talsvert merki-
legur þar sem fisk-
eða hvalgengd í
Hvammsfirði er ekki
algeng eða mikil. Það
þótti t.a.m. merkilegt
þegar háhyrningar
sáust inná firðinum
fyrir um tíu árum.
Baldur Gíslason fað-
ir bræðranna sendi
Skessuhorni þessa
skemmtilegu mynd.
mm
Fyrir hönd Ríkissjóðs hefur Safna-
ráð með höndum úthlutað styrkja
til safna í landinu. Á þessu ári verð-
ur úthlutað styrkjum að upphæð
206,5 milljónum króna úr sjóðn-
um. Auk þess voru nýverið veitt-
ir fjórir svokallaðir öndvegisstyrk-
ir en þeir fara til viðurkenndra
safna og eru hærri fjárhæðir en
aðrir styrkir sem Safnaráð úthlut-
ar. Öndvegisstyrki hljóta að þessu
sinni Borgarbókasafnið, Lista-
safn Einars Jónssonar, Tæknim-
injasafn Austurlands og Landbún-
aðarsafn Íslands á Hvanneyri. Alls
fær safnið á Hvanneyri 11,5 millj-
ónir króna, næsthæsta framlagið úr
sjóðnum, en sú upphæð skiptist á
næstu þrjú ár. Styrknum er ætlað að
fjármagna uppsetningu á nýrri sýn-
ingu um sögu laxveiði í Borgarfirði.
Í janúar síðastliðnum fékk safnið
einnig styrk frá Uppbyggingarsjóði
Vestur lands til sama verkefnis.
„Núna getur Landbúnaðarsafnið
farið að vinna að þessu mikilvæga
verkefni sem fjallar um þá dýrmætu
auðlind héraðsins sem laxveiðar
eru og hafa verið,“ segir Ragnhild-
ur Helga Jónsdóttir forstöðumaður
Landbúnaðarsafns Íslands í færslu á
síðu safnsins.
mm
Borgarfjarðarhérað er ríkt af sögu þegar laxveiði er annars vegar. Fjöldi feng
sælla veiðiáa liðast um héraðið og því verða væntanlega hæg heimatökin í efnis
vali á nýja sýningu um sögu laxveiða í héraðinu. Á meðfylgjandi mynd er Vala
Árnadóttir með fallegan, nýgenginn hæng á Eyrinni í Norðurá. Heimilishundurinn
fylgist spenntur með. Ljósm. úr safni Skessuhorns/áb.
Myndarlega stutt við sýningu
um sögu laxveiða í Borgarfirði
Fundu hvalbein í fjörunni við Búðardal