Skessuhorn - 06.04.2022, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 202212
Covid-19 faraldurinn hér á landi
er á hröðu undanhaldi eftir að öll-
um takmörkunum vegna hans var
aflétt 25. febrúar síðastliðinn. Í
tilkynningu frá heilbrigðisráðu-
neytinu kemur fram að á þeim tíma
hafi verið gert ráð fyrir að víðtækt
samfélagslegt ónæmi myndi nást
gegn faraldrinum, með allt að 80%
hlutfalli bólusettra og/eða smit-
aðra. Slíkt markmið myndi nást
síðari hlutann í mars. „Þetta virð-
ist hafa gengið eftir. Álag á heil-
brigðisstofnanir fer minnkandi og
smitum fækkandi sem m.a. má sjá
af því að hlutfall jákvæðra sýna af
heildarfjölda greindra smita hefur
lækkað.“ Mánudaginn 4. apríl, lágu
35 sjúklingar með Covid-19 smit á
Landspítala, þar af einn á gjörgæslu
og hafa ekki verið færri síðan 12.
febrúar síðastliðinn.
Fyrstu tvær vikurnar eftir
afléttingu allra takmarkana jókst
álag á heilbrigðisþjónustuna til
muna vegna útbreiddra veikinda
og fjarvista starfsfólks og fleiri inn-
lagna sjúklinga með Covid-19. Inn-
lögnum á gjörgæslu fjölgaði hins
vegar ekki. Undanfarnar tvær til
þrjár vikur hefur álag á heilbrigðis-
stofnanir minnkað dag frá degi.
Á landinu öllu eru nú, 4. apríl, 41
einstaklingur með Covid-smit á
sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu.
Það er til marks um betri stöðu að
28. mars sl. var Landspítali færð-
ur af neyðarstigi á
hættustig.
Líkt og í öðr-
um löndum er
ómíkron-afbrigði
kórónaveirunn-
ar hér alls ráðandi
og enn sem kom-
ið hafa ekki kom-
ið fram afbrigði
sem líkleg eru
til að ná aukinni
útbreiðslu.
Fyrir áramót
2022 greindust
samtals 30.487 manns með
COVID-19 hérlendis en eftir ára-
mót hafa greinst 150.239 manns.
Endursmit hefur greinst hjá 3.972.
Af endursmitum hafa sex manns
greinst þrisvar sinnum en aðrir
tvisvar sinnum, samkvæmt upplýs-
ingum sóttvarnalæknis.
mm
Markaðsherferðin „Það er stutt!“
hefur nú verið sett í loftið. Þar er á
ferðinni átak sem Akraneskaupstað-
ur stendur fyrir og miðar að því að
kynna fyrir landsmönnum þá kosti
sem bærinn býr yfir og laða þannig
enn fleiri að. Herferðin hverfist
annars vegar um þá staðreynd að
á milli höfuðborgarsvæðisins og
Akraness sé afar stutt, rétt um 40
mínútna skottúr, og hins vegar um
að á Akranesi er hreinlega stutt í
allt. Sem dæmi um það sem tekið er
sérstaklega fyrir í herferðinni er hve
stutt er í stórbrotnar náttúruperlur
og útivistarsvæði, fjölbreytt mann-
líf, fjölskylduvænt samfélag, öflugt
tómstunda- og íþróttastarf og þá
miklu uppbyggingu sem á sér stað í
bænum, bæði nú þegar og ekki síður
í nánustu framtíð,“ segir í tilkynn-
ingu frá Akraneskaupstað.
„Við erum stolt af fjölskylduvæna
strandbænum okkar og viljum endi-
lega að fleiri fái að njóta þeirra lífs-
gæða sem við höfum uppá að bjóða.
Nú stendur yfir mikil íbúðaupp-
bygging í bænum og bæjarfélagið
stendur fyrir stækkun grunnskóla,
byggingu nýs leikskóla, byggingu
íþróttahúss ásamt fjárfestingum í
fleiri grunninnviðum sem styðja við
frekari stækkun bæjarins. Við leit-
uðum til byggingaraðila á Akra-
nesi sem tóku afskaplega vel í okk-
ar hugmyndir um að fara þessa leið
og markaðssetja bæinn. Við erum
ákaflega þakklát fyrir þau frábæru
viðbrögð og hlökkum mjög til að
sjá hvert þetta leiðir okkur,” segir
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri
á Akranesi.
Markaðsefnið er unnið í sam-
starfi við auglýsinga- og almanna-
tengslastofuna Ampere og fram-
leiðslufyrirtækið Tjarnargötuna auk
þess sem Datera, stafrænt birtinga-
hús, sér um að efnið birtist á rétt-
um stöðum. Onno sá um hönnun
á lendingarsíðunni, 300akranes.
is/ Akraneskaupstaður kostar gerð
herferðarinnar en eftirtalin eru þau
fyrirtæki sem koma að borðinu og
greiða birtingakostnað: A1 Hús
ehf., Byggingarfélagið Bestla ehf.,
Blikksmiðja Guðmundar ehf.,
Fastefli ehf., Ferrum Fasteignir
ehf., Nordic holding ehf., Raf-Pro
ehf., Sjammi ehf., SF Smiðir ehf.,
Vogir og lagnir ehf., ÞG Verk ehf.
og Uppbygging ehf.
mm
Nýsköpunar- og frumkvöðlaset-
ur Dalabyggðar var opnað í Búðar-
dal 30. mars síðastliðinn. Þar er nú
komin aðstaða fyrir fólk sem vinnur
að nýsköpun og/eða stundar störf
án staðsetningar, svo og fyrir náms-
menn. Einnig fæst þar aðgang-
ur að ráðgjöf ýmissa fagaðila, t.d.
um fjarvinnu og bókhald, aðgengi
að háskóla og námskeiðum. Þarna
verður sömuleiðis hægt að fá aðstoð
við að skrifa umsóknir og sækja um
styrki til að koma hugmynd í fram-
kvæmd. Markmiðið með verkefn-
inu er að fjölga atvinnutækifærum
og vekja athygli á Dalabyggð sem
vænlegum búsetukosti. Aðrir aðil-
ar sem standa að verkefninu eru
Kaupfélag Borgfirðinga, Efla verk-
fræðistofa, Bændasamtök Íslands,
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Háskólinn á Bifröst, Arion banki,
Símenntunarmiðstöð Vesturlands,
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
(SSV) og KPMG á Íslandi.
Brautryðjenda minnst
Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti
Dalabyggðar flutti ávarp við opn-
unina. Hann sagðist sjálfur hafa
unnið starf án staðsetningar síðan
hann lauk námi 2011. Hann talaði
sérstaklega til ungs fólks í sveitar-
félaginu, hvatti það til að mennta
sig, skoða heiminn og finna vinnu,
en í leiðinni að flytja starfið á æsku-
stöðvarnar. Hann sagði frá ýmsum
brautryðjendum á svæðinu gegn-
um tíðina svo sem Torfa skólastjóra
Búnaðarskólans í Ólafsdal, sr. Ólafi
Ólafssyni í Hjarðarholti sem stofn-
aði unglingaskóla þar árið 1910 og
Pétri Jónssyni í Dagverðarnesi sem
fann upp fyrstu dúnhreinsunarvél-
ina á Íslandi. Nær í tíma væri svo
Mjólkursamlagið í Búðardal sem
hafi verið frumkvöðull í vöruþróun
mjólkurafurða gegnum árin. Loks
nefndi hann Íþróttafélagið Undra
sem var stofnað síðastliðið haust til
að hafa fjölbreytt íþróttastarf fyrir
börn og unglinga á svæðinu.
Páll S. Brynjarsson fram-
kvæmdastjóri SSV ávarpaði einnig
samkomugesti og sagði stjórnvöld
telja að leiðin til framtíðar verði
gegnum nýsköpun. Þau tækifæri
þurfi Vestlendingar að grípa með
svona starfsaðstöðu og sækja sér
ýmsa ráðgjöf og stuðning annarra
á staðnum. Oft yrðu bestu hug-
myndirnar til við kaffivélina á sam-
eiginlegum vinnustað. Páll greindi
einnig frá því að stutt væri í stofn-
un Nýsköpunarnets Vesturlands
sem muni hafa það hlutverk að
tengja saman frumkvöðla og miðla
upplýsingum og þekkingu. Slík-
ur sameiginlegur vettvangur skap-
aði sterkari tengingu milli atvinnu-
lífs og menntastofnana sem Vestur-
land væri ríkt af. Þar væru nýsköp-
unarsetrin í lykilhlutverki. Fram
kom einnig í máli Páls að ráðgjaf-
ar SSV muni hafa reglubundna við-
veru í Búðardal, svo sem er varðaði
ferðaþjónustu og menningarmál.
Að lokum sagði hann að á nýliðnu
íbúaþingi Dalabyggðar þar sem
verkefninu DalaAuði var ýtt úr vör
hefði glöggt mátt greina jákvæðni
og vilja heimamanna til að efla
samfélagið og sækja fram.
Nýsköpunar- og frumkvöðla-
setur Dalabyggðar er á fyrstu hæð
Stjórnsýsluhússins að Miðbraut
11 í Búðardal. Hægt er að leigja
vinnuaðstöðu allt frá einum degi
upp í mánuði. Nánari upplýsingar
og verðskrá má sjá á heimasíðu
sveitarfélagsins, www.dalir.is. gj
Undanfarin ár og áratugi hefur
verið samningur milli Skorradals-
hrepps og Borgarbyggðar um
kaup á ýmissi þjónustu fyrir íbúa
Skorradalshrepps. Um er að ræða
þjónustu leikskóla, grunnskóla,
slökkviliðsmál, safnamál og félags-
þjónustu. Síðasti samningur um
þjónustuna rann út í upphafi árs
2021 en ekki hefur náðst samkomu-
lag um endurnýjun hans þrátt fyr-
ir viðræður um slíkt, en samn-
inga umleitanir hófust samkvæmt
heimildum Skessuhorns árið 2019.
Skorradalshreppur hefur farið fram
á að stofnuð verði sex manna samn-
inganefnd, skipuð þremur full-
trúum úr hvoru sveitarfélagi, til
að freista þess að ná samningi um
verð fyrir þjónustuna. Borgarbyggð
hafnar hins vegar aðkomu að slíkri
nefnd, enda lítur sveitarfélagið svo
á að seld þjónusta skuli endurspegla
þann kostnað sem felst í henni
hverju sinni. Að öðrum kosti verði
hún ekki veitt.
Málið var tekið fyrir á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar síð-
astliðinn fimmtudag og í bókun
frá fundinum má merkja að tals-
verðrar óþolinmæði gæti gagn-
vart nágrönnunum í Skorradal, nú
sé komið að vendipunkti í mál-
inu: „Byggðarráð leggur áherslu
á að forsendur samninga við önn-
ur sveitarfélög um þjónustu verði
að lágmarki að endurspegla raun-
kostnað við veitingu þjónustunn-
ar. Verði ekki kominn á samningur
fyrir 1. maí nk. mun Borgarbyggð
ekki veita íbúum Skorradalshrepps
neina þjónustu frá og með 1. júní
2022,“ segir í bókun af fundinum.
Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitar-
stjóri Borgarbyggðar staðfestir að
næsti fundur málsaðila hafi verið
boðaður 11. apríl næstkomandi.
mm
Markaðsherferðin
Akranes - það er stutt!
Faraldurinn er nú á
hröðu undanhaldi
Mynd tekin yfir Borgarnesi, fjær er Borgarfjörðurinn og uppsveitirnar, þar á meðal
Skorradalur.
Slíta samstarfi við Skorradalshrepps
berist ekki greiðslur
Fulltrúar nokkurra þeirra aðila sem standa að Nýsköpunar og frumkvöðlasetri
Dalabyggðar: Jakob Kristjánsson frumkvöðull, Inga Dóra Halldórsdóttir fram
kvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Eyjólfur Ingvi Bjarnason odd
viti Dalabyggðar, Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri hjá Dalabyggð,
Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV og Kristján Sturluson sveitarstjóri
Dalabyggðar.
Miðstöð fyrir störf án
staðsetningar í Búðardal
Liður í að fjölga atvinnutækifærum á svæðinu