Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 202214 Ók próflaus yfir á rauðu AKRANES: Síðasta sunnu- dag var lögregla með almennt umferðareftirlit og veitti því athygli að bifreið var ekið yfir á rauðu ljósi á gatnamótum Kirkjubrautar og Stillholts. Við nánari skoðun kom í ljós að ökumaðurinn var ekki með gild ökuréttindi en bráðabirgðaskír- teini sem hann var með hafði fallið úr gildi fyrr á árinu. Öku- maðurinn á von á hárri sekt fyr- ir athæfið. -vaks Hraðakstur við hesthúsahverfið AKRANES: Borið hefur á því undanfarið að margir öku- menn aki of hratt og séu jafn- vel að spyrna í botngötunni sem nú er frá hesthúsahverf- inu á Æðarodda í átt að hunda- svæðinu rétt utan Akraness. 30 kílómetra hámarkshraði er þarna og rækilega merkt beggja megin. Óttast hestamenn um öryggi sitt því ökumenn aka samsíða reiðstíg hestamanna og hafa jafnvel tekið upp á því að nota bílflautuna á hestamenn. Við það geta hestarnir fælst og það getur verið stórhættulegt. Lögregla hyggst fljótlega skoða aðstæður á svæðinu og setja upp myndavélabíl til að stemma stigu við hraðakstrinum. - vaks Aflatölur fyrir Vesturland 26. mars. - 1. apríl Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 12 bátar. Heildarlöndun: 484.766 kg. Mestur afli: Víkingur AK: 174.181 kg í einni löndun. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 80.594 kg. Mestur afli: Lilja SH: 41.926 kg í sex löndunum. Grundarfjörður: 11 bátar. Heildarlöndun: 891.949 kg. Mestur afli: Drangey SK: 213.496 kg í einum róðri. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 172.481 kg. Mestur afli: Egill SH: 36.069 kg í þremur löndunum. Rif: 15 bátar. Heildarlöndun: 747.654 kg. Mestur afli: Bárður SH: 199.665 kg í níu róðrum. Stykkishólmur: 7 bátar. Heildarlöndun: 99.283 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 78.663 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Drangey SK – GRU: 213.496 kg. 27. mars. 2. Málmey SK – GRU: 206.709 kg. 28. mars. 3. Víkingur AK – AKR: 174.181 kg. 25. mars. 4. Guðrún Þorkelsdóttir SU – AKR: 139.493 kg. 25. mars. 5. Svanur RE – AKR: 125.485 kg. 25. mars. -dóh Frá og með síðasta föstudegi varð Grunnskóli Snæfellsbæjar síma- laus. Skólinn óskaði eftir góðu sam- starfi við foreldra og vill að símar nemenda verði framvegis geymd- ir heima. „Við kynntum þessa hug- mynd strax í haust en vegna Covid fannst okkur ekki ráðlegt að fara í þetta bann fyrr en nú,“ segir Hilm- ar Már Arason skólastjóri í samtali við Skessuhorn. „Í haust fengum við hugmyndir frá nemendum um hvernig mætti bæta aðstöðu nem- enda í frímínútum. Í framhaldinu af þeirri umræðu voru keyptir nýir sófar, töflum komið fyrir á göng- um skólans, spilum var fjölgað og nemendur gátu farið í valda leiki í íþróttahúsinu. Við munum halda áfram að hlusta eftir óskum nem- enda og reyna að verða við þeim,“ segir Hilmar Már. Hilmar Már segir að aðalástæða þess að símarnir verði ekki leyfðir nú sé sú að þeir valda truflun, bæði í kennslustundum og í hinum frjálsa tíma. Einbeiting nemenda þverr og síminn á hug þeirra allan. Í bréfi til foreldra vekur hann athygli á nokkrum staðreyndum um neikvæð áhrif síma á börn og ungmenni: • Mikil notkun getur haft áhrif á andlega sem og líkamlega heilsu barna. • Notkun samfélagsmiðla hef- ur oft skilað sér í miklum kvíða og streitu. Unglingarn- ir bera sig saman við aðra á samfélagsmiðlum og upplifa sig minna virði ef aðrir virð- ast betri í einhverju sem hefur áhrif á líf þeirra. • Ungmenni verða brothættari, taka síður áhættu, verða síð- ur frjálsleg, fá lægri einkunnir og fara sjaldnar á stefnumót af ótta við að mistakast eða vera gagnrýnd. • Einelti á Netinu: Vegna nafn- leyndarinnar sem samfélags- miðlar bjóða upp á aukast lík- ur og hætta á ofbeldi, þar með talið kynferðisofbeldi, og geta ógnir valdið djúpum tilfinn- ingalegum skaða. Það get- ur haft langvarandi áhrif sem fylgir einstaklingum til full- orðinsára. • Notkun samfélagsmiðla hefur aukist samhliða verri andlegri líðan ungmenna. • 55% einstaklinga upplifa slæma sjálfsmynd eftir notkun á samfélagsmiðlum. • Það hefur sýnt sig að börnin hafa ekki öll vald á að fara eftir skólareglum við notkun á sím- anum. Þar er sérstaklega átt við að fylgja banni við mynda- tökum í skóla og sending- um (birtingu) á efni sem tek- ið er upp þar á netmiðla, án samþykkis samnemenda eða starfsfólks skólans. Tuttugu sinnum truflun á klukkustund! Jafnframt bendir Hilmar Már á að í ónefndum skóla hafi verið unnin könnun í 7. bekk um hve margar til- kynningar (notification) nemendur fengu og kom í ljós að þær voru að meðaltali 100 yfir daginn og sá sem fékk flestar fékk 467 tilkynningar eða um 20 á klukkustund! Þessar tilkynningar eiga hug nemenda og trufla daglegt líf þeirra. „Það er von okkar að eiga gott samstarf við for- eldra og nemendur um þetta bann með velferð nemenda að leiðarljósi,“ segir Hilmar Már Arason. mm Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð- ar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf innviðaráðuneytis- ins dagsett 23. mars 2022 þar sem fjallað er um skýrslu KPMG vegna framkvæmdarinnar við endurbæt- ur og stækkun á Grunnskólanum í Borgarnesi. Í bréfinu er tilkynnt að ráðuneytið muni taka til skoðun- ar hvort stjórnsýsla sveitarfélags- ins í tengslum við framkvæmdir við stækkun skólans hafi verið í sam- ræmi við formreglur fjármálakafla sveitarstjórnarlaga. Kannað verð- ur hvort téðar ákvarðanir sveitar- félagsins hafi verið í samræmi við reglur um bindandi áhrif fjárhags- áætlana og hvort farið hafi verið að reglum um forsvaranlega meðferð fjármuna. Áður hefur komið fram í frétt- um um málið að fyrir liggur að annmarkar voru á vinnulagi og eft- irliti stjórnsýslunnar allt frá upp- hafi framkvæmda við grunnskólann 2014. Ekki lá fyrir í upphafi með ítarlegum hætti hlutverk og ábyrgð byggingarnefndar, stjórnenda og eftirlits, ekki var farið eftir þágild- andi innkaupareglum og einstaka þættir ekki unnir með fullnægjandi hætti. Verkið í heild fór því fram úr áætlunum um kostnað. Í skýr- s lu sem KPMG vann um málið kom m.a. fram hvaða atriði það hafi verið sem fóru úrskeiðis við fram- kvæmdina og ákvað sveitarstjórn að gera úrbætur á því ferli sem hefur verið við stærri framkvæmdir á veg- um þess. Á fundi byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag voru einnig lögð fram drög að fyrstu útgáfu gæðahand- bókar Borgarbyggðar og hefur byggðarráð samþykkt nýjar verk- lagsreglur um viðauka við fjár- hagsáætlun sveitarfélagsins sem eiga að koma í veg fyrir að far- ið sé með fjármuni sveitarfélags- ins í samræmi við formreglur fjár- málakafla sveitarstjórnarlaga og í samræmi við bindandi áhrif fjár- hagsáætlana. Eftir sem áður hefur innviða- ráðuneytið ákveðið að málið verði skoðað. Í tilkynningu þess segir m.a: „Þau atriði sem ráðuneytið mun meðal annars fjalla um eru hvort stjórnsýsla sveitarfélags- ins í tengslum við framkvæmdir sveitarfélagsins sem fjallað er um í skýrslu KPMG og í ábendingu málshefjanda [Guðveig Eyglóar- dóttir oddviti Framsóknarflokks, innsk blm.] hafi verið í samræmi við formreglur fjármálakafla sveit- arstjórnarlaga, hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins í tengslum við framkvæmdirnar hafi verið í sam- ræmi við regluna um bindandi áhrif fjárhagsáætlunar og hvort umræddar framkvæmdir hafi ver- ið í samræmi við þær kröfur sem reglan um forsvaranlega meðferð fjármuna gerir til framkvæmda á vegum sveitarfélags að öðru leyti. Þá mun ráðuneytið einnig fjalla um hvort innkaup sveitarfélagsins vegna framkvæmdanna hafi verið í samræmi við meginreglur stjórn- sýsluréttar, m.a. jafnræðisregluna og réttmætisregluna.“ mm Þrír bátar frá Snæfellsnesi eru í hópi sex báta sem taka þátt í neta- ralli Hafró þetta árið. Hefur afli verið mjög góður eða allt að 50 tonn eftir daginn. Á meðfylgjandi mynd er Saxhamar SH að koma að landi í Rifi með 50 tonna afla, en Saxhamar hefur fært sínar trossur sunnar með landinu og síðast þegar fréttist landaði báturinn afla sínum í Reykjavík. Einnig hefur Magnús SH land- að mjög góðum afla og hefur suma dagana tvílandað og aflinn farið vel yfir 50 tonn. Magnús SH sér um netarallið á Breiðafirði og landar öllum aflanum í Rifi. Þórsnesið SH stundar einnig veiðar frá Reykjanesi og að Þrídröngum. Loks er Friðrik Sigurðsson ÁR á miðunum frá Þrí- dröngum að Skeiðarárdjúpi, Sig- urður Ólafsson SF frá Meðallands- bugt að Hvítingum og Hafborg EA fyrir Norðurlandi. Netarallið fer þannig fram að um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokall- aðar fastar stöðvar, en hinn helm- ingurinn er lausar stöðvar sem skip- stjórar ákveða hvar skulu lagðar. Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- og þyngdasamsetningu, kynþroska og vöxt eftir aldri á helstu hrygningar- svæðum þorsks. Einnig til að meta árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðv- um og meta breytingar í gegnd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum. af Saxhamar SH kemur að landi. Saxhamar og Magnús fiska vel á netaralli Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. mm. Ráðuneytið mun skoða stjórnsýslu vegna skólabyggingar Grunnskóli Snæfellsbæjar verður símalaus

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.