Skessuhorn - 06.04.2022, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
CONVOTHERM
VANDAÐIR OFNAR
Convotherm 4 easyDial
Vandaður ofn með 7 skúffum
Þægilegt viðmót - hentar smærri eldhúsum
Convotherm 4 easyDial
Vandaður ofn með 11 skúffum
Þægilegt viðmót - hentar stærri eldhúsum
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Auglýsing vegna
sveitarstjórnarkosninga í
Hvalfjarðarsveit 14. maí 2022
Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi
föstudaginn 8. apríl 2022.
Framboðslistum og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar fyrir
lok framboðsfrests.
Gögnum má skila til hvaða kjörstjórnarmanns sem er eða til
kjörstjórnar, sem verður í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3
kl. 11-12 föstudaginn 8. apríl.
Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu
tilkynna þá ákvörðun til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vefnum
www.kosning.is
F.h. kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit,
Guðmundur Ólafsson, Lambhaga 2, sími 896-6613
Jóna Björg Kristinsdóttir, Áshamri, sími 894-6965
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
„Eftir tveggja ára hlé vegna covid
virðist ekkert koma í veg fyrir að
nú verði helgihald um páskana. Við
erum sannarlega spennt að opna
kirkjudyrnar aftur á þessari helg-
ustu hátíð kristinna manna,“ seg-
ir Þráinn Haraldsson sóknarprestur
Akraness og Saurbæjarprestakalls í
samtali við Skessuhorn. Hann seg-
ir að margt í dagskránni verði hefð-
bundið. Á skírdagskvöld er guðs-
þjónusta með altarisgöngu í Akra-
neskirkju, í lok hennar er altar-
ið afskrýtt og skilið eftir autt fyr-
ir föstudaginn langa. Að morgni
páskadags við hátíðarmessu klukkan
11 eru altarisgripirnir síðan born-
ir inn aftur og sigri lífsins þannig
fagnað á sérstakan hátt.
Lestur passíusálma
Á föstudaginn langa verða passíu-
sálmarnir lesnir í Hallgrímskirkju
í Saurbæ. „Að þessu sinni verð-
ur lesturinn brotinn upp með
tónlistar flutningi. Kór Saurbæj-
arprestakalls byrjar með tónlist-
arflutning kl. 13 og svo mun bisk-
up Íslands frú Agnes M. Sigurðar-
dóttir lesa fyrsta sálminn. Lestur-
inn stendur svo fram eftir degi,
með tónlistarflutningi inn á milli og
mun Sif Tulinius fiðuleikari spila.
Eftir lestur síðasta sálmsins mun
Kór Akraneskirkju loka deginum
með tónlistarflutningi. Fólk getur
komið og farið að vild yfir daginn.
Á heimasíðu prestakallsins mun-
um við birta dagskrá þar sem fram
kemur hvenær tónlistarflutningur-
inn verður,“ segir Þráinn.
Kyrravika í
aðdraganda páska
Miðpunktur dymbilvikunnar
verður í Hallgrímskirkju í Saur-
bæ með dagskránni frá Betaníu
til Emmaus. „Dymbilvikan, hin
heilaga kyrravika í aðdraganda
páskahátíðarinnar, hefur alla tíð
haft algjöra sérstöðu í trúariðkun
kristninnar. Í sameiginlegu helgi-
haldi og í persónulegu trúarlífi
hafa söfnuðir og einstaklingar fet-
að með Kristi veg þjáningarinn-
ar að skelfingu krossfestingarinn-
ar, staðið ráðvillt með lærisveinun-
um eftir að hann var lagður í gröf
og hlaupið fagnandi á eftir kon-
unum að hinni opnu gröf páska-
undursins.“ Þráinn segir að hlut-
verk dagskrárinnar undir heitinu
frá Betaníu til Emmaus sé að tengja
saman hin hefðbundnu tilefni
kirkjugöngu í dymbilviku og um
páska og gefa þeim sem vilja, kost á
að nálgast atburðina sem minnst er
með sameiginlegri íhugun og dag-
legu helgihaldi frá laugardegi fyr-
ir pálmasunnudag til annars páska-
dags.“
Hallgrímskirkja í Saurbæ,
umhverfi hennar og minjar um
veru Guðríðar og Hallgríms á
staðnum ásamt Passíusálmunum
og þeirri hefð að flytja þá á föst-
unni og einkum á Föstudaginn
langa gerir staðinn mjög heppi-
legan til að fylgja þessari dagskrá.
„Dagskráin hefur þó verið reynd
bæði á Akureyri og Reykjavík auk
Skálholts. Sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson fyrrum vígslubiskup í Skál-
holti sem býr í Saurbæ leiðir dag-
skrána ásamt prestum prestakalls-
ins. Allt helgihald Dymbilvikunn-
ar stefnir til kvöldmáltíðarinnar
með hinum upprisna Drottni Jesú
Kristi í Páskanæturmessunni sem
er hápunktur þessarar dagskrár og
hefst á laugardagskvöldinu kl. 23.
Þetta er annars konar helgihald en
á venjulegum sunnudegi og mikil
upplifun að taka þátt í hinum fornu
hefðum kirkjunnar sem mótað hafa
páskahald hennar. Allir eru vel-
komnir hvenær sem er í dymbilvik-
unni í Hallgrímskirkju í Saurbæ,“
segir séra Þráinn Haraldsson.
mm
Helgihald og dagskrá í
dymbilviku og um páska