Skessuhorn - 06.04.2022, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 19
Davíð Pétursson á Grund í
Skorradal hefur verið í kjör-
stjórn Skorradalshrepps í yfir sex-
tíu ár. Hann mun einnig gegna því
ábyrgðarstarfi í komandi sveitar-
stjórnarkosningum 14. maí og
telst því vera einn reyndasti maður
landsins á þessum vettvangi. Blaða-
maður Skessuhorns spjallaði við
Davíð af þessu tilefni.
„Hreppstjórar voru á sínum tíma
sjálfskipaðir formenn kjörstjórn-
ar, bæði fyrir Alþingis- , sveitar-
stjórnar-, forseta- og sameiningar-
kosningar,“ segir Davíð. Í Skorra-
dal er kosið óbundinni kosningu
til sveitarstjórnar og því eru allir í
kjöri. Áður fyrr var kosið heima á
Grund því þar var þinghús hrepps-
ins. Fyrsti kjördagurinn sem Dav-
íð man eftir er honum minnisstæð-
ur. „Þetta var árið 1944. Þá var ég
fimm ára gamall og það var kos-
ið um stofnun lýðveldis á Íslandi.
Í þessum lýðveldiskosningum var
kjörsókn hundrað prósent í Skorra-
dal. Meðal þeirra sem komu að
kjósa var heimilisfólk á Mófells-
stöðum sem kom ríðandi á kjör-
stað. Í hópnum var Þórður Jónsson
sem var blindur. En hann reið ekk-
ert hægar en aðrir; kom þarna ríð-
andi með hópnum eins og alsjáandi
maður.“ Þess skal getið að Þórður
var um sjötugt þegar þetta var og
var þjóðþekktur fyrir smíðar þrátt
fyrir fötlun sína.
Óvænt uppákoma
Aðspurður um um óvæntar upp-
ákomur í tengslum við kosningar
nefnir Davíð atvik sem varð árið
1970. „Það var einu sinni að það
voru alnafnar í Skorradal; Einar
Jónsson í Neðri-Hrepp og nafni
hans á Litlu-Drageyri. Við talningu
kom atkvæðaseðill sem á stóð bara
Einar Jónsson. Við ógiltum hann.
Allt til ársins 1961 voru tvær kjör-
deildir í Skorradalshreppi, Fitja-
kjördeild og Grundarkjördeild.
Formaður yfirkjörstjórnar var
Höskuldur Einarsson, hreppstjóri
í Vatnshorni. Talning atkvæða
fór fram á þingstaðnum Grund, á
mánudegi. Kosið var á sunnudegi.
Höskuldur þurfti því að koma ríð-
andi til talningar, sem er um 40
km. báðar leiðir. Að aflokinni taln-
ingu voru kjörgögn brennd. Frá
1961 til 1970 var sami háttur hafð-
ur á, þar til ógilding á atkvæði var
kærð. Þá kemur þessi atkvæðaseðill
sem á stendur bara „Einar Jónsson“
og við gátum ekki vitað við hvorn
var átt. Hefði atkvæðið átt að falla
til Einars í Neðri-Hrepp hefði öll
gamla hreppsnefndin verið á þess-
um seðli. Seðillinn var dæmdur
ógildur og svo brenndum við kjör-
gögnin samkvæmt venju. Einn kjós-
andi kærði atkvæðagreiðsluna af því
að Einar í Neðri-Hrepp hefði átt
að fá þetta atkvæði, það hefði verið
alveg augljóst af því að hinir aðal-
mennirnir voru á seðlinum. Hann
kærði þetta til ráðuneytisins og það
krafði okkur um að láta þá hafa
atkvæðaseðilinn til að úrskurða. En
seðillinn hafði verið brenndur. Svo
það var úrskurðað um að við yrðum
að láta kjósa aftur, sem við og gerð-
um! Ég hef ekki fyrr né síðar lent í
öðru svipuðu.“ Seinni kosning fór
fram 28. ágúst 1961, en sú fyrri var
tveim mánuðum fyrr.
Fram kemur hjá Davíð að á
þessum rúmu sextíu árum hefur
24 sinnum verið gengið til sveit-
arstjórnar- og sameiningarkosn-
inga, auk 30 sinnum til alþing-
is- og forsetakosninga, þjóðarat-
kvæðisgreiðslna og kosningu til
stjórnlagaþings. „Af þeim hef ég
ekki tekið þátt í kjörstjórn í fimm
alþingiskosningum, þegar ég hef
verið á framboðslista. Kjörfundur
nr. 50 er því framundan í komandi
sveitarstjórnarkosningum,“ segir
Davíð.
Auk Davíðs verða þær Fjóla
Benediktsdóttir og Sigrún Þorm-
ar í kjörstjórn í Skorradalshreppi í
vor. gj
Fjölskylda Davíðs hefur búið á Grund síðan á seinni hluta 17. aldar. Foreldrar hans voru Guðrún Davíðsdóttir og Pétur
Bjarnason. Í garðinum við húsið eru listaverk eftir systkinin Snorra Helgason og Gerði Helgadóttur sem voru náskyld móður
hans og er eitt verkanna lágmynd af þeim hjónum.
Hefur verið formaður kjörstjórnar síðan 1961