Skessuhorn - 06.04.2022, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 202220
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn
blaðsins aðeins verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem geyma myndir
fyrir og í kringum síðustu aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu 1998 og sýnir vaska
vinnumenn í lóðaframkvæmdum við Grunnskólann í Búðardal. Þarna eru f.v. Arnar
Svansson, Halldór Guðmundsson (látinn) og Ásgeir Salberg Jónsson.
Á föstudaginn var ýmislegt
spennandi og skemmtilegt í
boði. Til dæmis var hægt að
fara í Safnahúsið í Borgar-
nesi og hirða þar ýmsa
gamla muni sem starfsfólkið
vildi gefa. Einnig var hægt
að fara á fría hádegistón-
leika hjá Bubba Mortens
í Akranesvitanum, nú eða
kynna sér splunkunýtt
framboð til bæjarstjórnar á
Akranesi. Ekkert af þessu
átti þó stoð í raunveruleik-
anum enda var dagurinn 1.
apríl og margir sem nýta
þann dag til að láta granda-
lausa hlaupa.
Það aprílgabb sem vakti
hvað mesta athygli að
þessu sinni var nýtt fram-
boð sem kynnt var til leiks
á Akranesi. Akraneslistinn,
með Gísla Gíslason fyrrum
bæjar stjóra í broddi fylk-
ingar, en auk hans skipuðu
listann ýmsar sprautur úr
menningar- og athafna-
lífi bæjarins. Akraneslist-
inn ætlaði engu að lofa en
standa við það allt. Fregn-
ir af framboðinu fóru eins
og eldur í sinu í gegn-
um Facebook síður þeirra
18 einstaklinga sem skip-
uðu framboðslistann og þá
voru auk þess a.m.k. tveir
fjölmiðlar sem bitu á agn-
ið, hlupu 1. apríl. Mikið
var lagt upp úr kynningar-
efni, ljósmyndum og plaköt
prentuð út og hengd upp í
væntanlegri kosningamið-
stöð. Sannleikurinn kom
svo í ljós skömmu fyrir
miðnætti þegar Ólafur Páll
Gunnarsson, forsvarsmað-
ur Akraneslistans og for-
maður Miðbæjarsamtak-
anna Akratorgs, upplýsti
um málið.
mm
Miðvikudaginn 30. mars héldu
nemendur og kennarar Tónlistar-
skóla Snæfellsbæjar, í samstarfi við
foreldrafélag skólans, tónleika til
styrktar börnum á flótta frá Úkra-
ínu. Tónleikarnir fóru fram í Ólafs-
víkurkirkju og heppnuðust vel.
Flestir nemendur tónlistarskólans
komu fram ásamt kennurum sín-
um. Mjög vel var mætt á tónleik-
ana og setið í flestum sætum kirkj-
unnar. Ekki var rukkað sérstaklega
inn á tónleikana heldur var tekið
við frjálsum framlögum. Á annað
hundrað þúsund krónur söfnuðust.
Þess má einnig geta að enn er
tekið við framlögum með því að
leggja inn á reikning foreldrafélags-
ins: Kennitala félagsins er 671088-
5739 banki 0194-05-400664. þa
Kvenfélag Ólafsvíkur lætur sér annt
um hina ýmsu starfsemi í bæjarfé-
laginu sínu, eins og svo mörg önn-
ur félög. Hefur félagið í gegnum
árin fært hinum ýmsu félögum og
stofnunum góðar gjafir. Á síðasta
mánudag færði félagið Þjónustu-
íbúðakjarna Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga í Ólafsvík 250
þúsund króna peningagjöf. Það
var Jón Haukur Hilmarsson for-
stöðumaður íbúðakjarnans sem tók
við peningagjöfinni frá stjórnar-
konum í kvenfélaginu þeim Elsu
Bergmundsdóttur, Margréti Sig-
ríði Birgisdóttur og Gerði Þórðar-
dóttur.
þa
Golfklúbburinn Leynir á Akra-
nesi og Olís endurnýjuðu nýverið
styrktar samning sín á milli. Samn-
ingurinn er til tveggja ára en Olís
hefur verið einn af öflugustu bak-
hjörlum klúbbsins til nokkurra ára.
Samningurinn var eitt af síðustu
embættisverkum Gunnars Sigurðs-
sonar, svæðisstjóra Olís á Vestur-
landi, en hann hefur nú látið af störf-
um hjá fyrirtækinu. Það var Rakel
Óskarsdóttir framkvæmdastjóri
Golfklúbbsins Leynis sem skrifaði
undir samninginn. „Stjórn Leynis
þakkar Olís fyrir veittan stuðning
á liðnum árum og er afar þakklát
með framhaldið. Sérstakar þakk-
ir færum við Gunnari Sigurðssyni
og hans starfsfólki fyrir mjög gott
samstarf á samningstímanum,“ seg-
ir í tilkynningu frá klúbbnum.
mm
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins í Borgarbyggð hafa staðið fyr-
ir röð opinna málefnafunda víðs
vegar um sveitarfélagið síðustu
daga. Fyrsti fundurinn fór fram á
Hvanneyri 21. mars, í Borgarnesi
24. mars, á Snorrastöðum 28. mars
og í Þinghamri Varmalandi 29.
mars.
„Fundirnir voru mjög vel sótt-
ir og fundarmenn samtals töldu á
annað hundrað og ljóst að fólk er
nokkuð fundaþyrst eftir samkomu-
takmarkanir síðustu ára og tilbú-
ið til að ræða málefni sveitarfé-
lagsins. Það sem brennur á íbúum
sveitarfélagsins fyrir kosningarnar
14. maí n.k. eru m.a. skipan skóla-
mála, skipulagsmál, vindorkunýt-
ing, dreifing byggðar, viðhald fast-
eigna og gatna og margt fleira.
Umræður voru málefnalegar og
mjög gagnlegar fyrir frambjóðend-
ur inn í komandi stefnumótunar-
vinnu framboðsins og dýrmætt að
íbúar hafi gefið sér tíma til að hitta
frambjóðendur,“ segir í fréttatil-
kynningu frá framboðinu.
„Næst á dagskrá er að klára
stefnuskrá framboðsins og kynna í
kjölfarið bæði okkur frambjóðend-
ur og stefnumálin betur fyrir íbúum
Borgarbyggðar. Það er stutt í kosn-
ingar og mikilvægt að íbúar láti sér
málefnin varða þannig að saman
getum við eflt enn frekar okkar
góða samfélag í sátt, samstarfi og
samlyndi til framtíðar litið,“ seg-
ir Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti
framboðs Sjálfstæðismanna í frétta-
tilkynningu. mm/ Ljósm. aðsend.
Vel heppnaðir málefnafundir
Sjálfstæðismanna
Aprílgöbbin tekin alla leið
Héldu tónleika fyrir
börn á flótta frá Úkraínu
Olís styrkir
Golfklúbbinn Leyni
Kvenfélag Ólafsvíkur
styrkir íbúðakjarnann