Skessuhorn - 06.04.2022, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 25
Háttinn slynga gæfan gaf,
glatt hann syng af munni,
stefin þvingast ekkert af
óskahringhendunni.
Svo orti Sigmundur Benediktsson vélvirki sem nú
er nýlega fallinn frá. Hann var fæddur 15. mars 1936
og lést 14. mars 2022. Eyfirðingur að uppruna en bjó
seinni ár sín á Akranesi.
Sigmundur tók þátt í að stofna Kvæðamannafélag-
ið Snorra í Reykholti og var einn af virkustu félögum
þess allt til æviloka. Afkastamikill vísnasmiður og lék
sér oft að bragarháttum sem ekki eru á allra færi. Eins
og vel kemur fram í vísu sem hann orti í febrúar síð-
astliðnum:
Skartið sindrar skýjasvið
skreytir strindi sólmetið
sportsins skyndi stæling styð
streymið syndir spuna snið.
Gróður jarðar var Sigmundi hugleikinn sem og
varðveisla þjóðararfsins.
Bagan spretti blómum sett
búin þéttum skorðum,
frjáls og glettin, ljúf og létt
lipurt fléttuð orðum.
Flutt með sóma fögrum róm
fersk sem blóm á engi.
Stemman ómi stuðlafróm
stefin ómi lengi.
Við kveðjum góðan og tryggan félaga með söknuði.
Heiðrúnu eftirlifandi sambýliskonu hans og öðrum
aðstandendum vottum við innilega samúð.
Kvæðamannafélagið
Snorri í Reykholti
Í minningu
Sigmundar Benediktssonar
Hvergi á landinu eru meiri líkur á
að sjá tannhvali, svo sem háhyrn-
inga, búrhvali og grindhvali, held-
ur en við strendur Snæfellsness.
Oft má sjá hnúfubaka, höfrunga og
hrefnur og því óhætt að segja að
Snæfellsnesið sé sannkölluð gull-
kista fyrir hvalaunnendur. Ferða-
menn hér á landi eru sólgnir í að
komast í nálægð við þessar skepnur.
Fréttaritari Skessuhorns fór í ferð
með hvalaskoðunarbátnum Írisi
síðastliðinn fimmtudag. Að venju
var fjöldi manns á öllum aldri með
í för. Það er Gísli Ólafsson skip-
stjóri sem jafnframt er eigandi Láka
Tours. Hann segir að vel hafi geng-
ið í vetur en heldur hafi dregið úr
aðsókn í bili vegna þess að vetrar-
fríin í Evrópu eru búin og skólar
byrjaðir erlendis.
Farið var frá Ólafsvík klukkan
tíu um morguninn og haldið vestur
að Öndverðarnesi í góðu en köldu
veðri. Þegar komið var að Önd-
verðarnesi mátti sjá fjöldann allan
af háhyrningum og voru gestir kát-
ir og forvitnir að fylgjast með hegð-
un háhyrninganna. Voru áhafnar-
meðlimir duglegir að lýsa hegð-
un þeirra í hátalarakerfi bátsins og
greinilega um vana áhöfn að ræða.
Síðan var farið á þekktar slóðir
þar sem ávallt má sjá stórhveli og
ekki klikkaði Gísli skipper á því.
Þar mátti sjá tvo búrhvali liggja í
makindum sínum á yfirborði sjávar
og stuttu síðar mátti sjá risavaxinn
sporðinn þegar dýrið hvarf í djúp-
ið gestum til mikillar ánægju. Flest-
ir um borð höfðu ekki séð sporð á
stórhveli áður.
Þessi túr tók um þrjá tíma og
ekki var stoppað lengi í landi. Gest-
ir fóru ánægðir frá borði og næsti
hópur steig um borð og tók stæði
þeirra sem séð höfðu nægju sína.
af
Hvalaskoðunarbáturinn Íris er
gerður út frá Ólafsvík en á heimahöfn í
Grundarfirði.
Í hvalaskoðunarferð frá Ólafsvík
Háhyrningar leika listir sínar. Gestir að skoða hvali í sjónauka til þess að missa ekki af smáatriðunum.
Biðröð framan við afgreiðslu Láka tours við Ólafsvíkurhöfn. Þar fá allir gestir
kuldagalla áður en stigið er um borð.
Búrhvalur sýnir sporðinn þegar hann
hverfur sjónum gesta.
Þessi fjölskylda frá Ameríku naut ferðarinnar.
Farþegar á Írisi.
Það voru ekki bara mennskir gestir um
borð, þarna má sjá hund áhafnarmeð
lima á útkikki.
Þessi háhyrningur lék listir sínar fyrir
gesti.