Skessuhorn - 06.04.2022, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 202226
Skammhlaup 2022 í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
fór nýverið fram. Hófst fjörið á hádegi með skrúðgöngu nem-
enda í lögreglufylgd frá skólanum niður í íþróttahúsið við
Vesturgötu þar sem keppnin hófst. Þar var keppt í ullarsokka-
boðhlaupi, þrautabraut, stígvélasparki, limbói og reiptogi. Að
því loknu var farið aftur upp í skóla þar sem alls kyns þrautir
voru lagðar fyrir nemendur og endaði keppnin á sal þar sem
þau tóku þátt til að mynda í planki, að verpa eggjum, „silly
walk“ og örleikriti. Sigurvegarar dagsins voru fjólubláa liðið
og fögnuðu þau því ásamt öðrum nemendum skólans á balli
um kvöldið. Blaðamaður Skessuhorns fylgdist með Skamm-
hlaupinu og smellti af nokkrum myndum. vaks
Stuð á Skammhlaupi í FVA
Skokkað af stað í skrúðgöngunni Það var mikið undir í ullarsokkaboðhlaupinu.
Gulir og hvítir hvöttu sín lið dyggilega.
Þessir flugu upp kaðalinn.
Limbóið er fyrir þessa liðugu.
Gráir gerðu hvað sem þeir gátu í reiptoginu. Kennarar klæddu sig í búninga í tilefni dagsins.
Það var vel tekið á því í plankinu. Nemendur voru vel með á nótunum að styðja sitt lið.
Hér má sjá sigurvegarann í „Silly Walk.“ Þær tvær voru meðetta í örleikritinu.
Fjólubláir sigruðu Skammhlaupið 2022.