Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Síða 30

Skessuhorn - 06.04.2022, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 202230 Hvað er uppáhaldsnammið þitt? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Ella Þóra Jónsdóttir „Mini eggin frá Nestlé.“ Kolbrún Hlíf Guðmundsdóttir „Eitt sett.“ Gerður Helga Helgadóttir „Appolo lakkrís.“ Aldís Ísabella Fannarsdóttir „Súkkulaði.“ Svandís Karlsdóttir „Doré karamellusúkkulaði frá Nóa.“ Íþróttamaður vikunnar Íþróttamaður vikunnar er nýlegur liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum við fyrir tíu spurningar til íþrótta- manna úr alls konar íþróttum á öll- um aldri á Vesturlandi. Íþrótta- maður vikunnar að þessu sinni er hestakonan Katrín frá Búðardal. Nafn: Katrín Einarsdóttir Fjölskylduhagir? Bý með pabba mínum og stjúpmömmu minni í Búðardal og mömmu minni og stjúppabba mínum í Borgarnesi en við erum þrjú systkini sem flökkum á milli þegar okkur hentar. Hver eru þín helstu áhugamál? Mín áhugamál eru til dæmis björg- unarsveit, íþróttaæfingar en það langskemmtilegasta af öllu er að vera í hestunum og fara í hestaferð- ir á sumrin með fjölskyldu og vin- um. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér um þessar mundir? Ég vakna til að fara í skólann, eftir skóla fer ég annað hvort á æfingu eða í Borgar nes til að fara á hestbak. Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? Mínir helstu kostir eru hvað ég er glaðlynd og þolinmóð. Minn helsti galli er hvað ég er svakalega forvitin. Hversu oft æfir þú í viku? Ég mæti á þrjár íþróttaæfingar hjá Íþróttafé- laginu Undra í Dölunum sem eru til dæmis blak, handbolti og körfu- bolti. Síðan er ég í knapamerkjum einu sinni í viku hjá Hestamanna- félaginu Borgfirðing og fer svo á reiðnámskeið þegar þau bjóðast. Hver er þín fyrirmynd í íþrótt- um? Ylfa Guðrún Svavarsdóttir hestakona. Af hverju valdir þú hesta- mennsku? Fjölskyldan mín er nán- ast öll í hestamennsku og hafa hest- arnir alltaf verið stór hluti af mínu lífi. Ég hef verið upp í hesthúsum síðan ég man eftir mér. Hver er fyndnastur af þeim sem þú þekkir? Klárlega fjölskyldan mín, hún kemur manni alltaf í gott skap. Hvað er skemmtilegast og leiðinlegast við þínar íþrótt- ir? Það sem er skemmtilegasta við hestamennskuna er að sjá framfarir, bæði hjá manni sjálfum og hestin- um. Það leiðinlegasta er þegar það gengur ekki allt upp sem maður var að vonast eftir. Svakalega forvitin Knattspyrnufélag ÍA hefur feng- ið Benedikt V. Warén til liðs við félagið en hann kemur að láni frá Breiðabliki. Benó eins og hann er kallaður verður 21 árs á árinu og hefur leikið 31 leik fyrir meistara- flokk Breiðabliks og skorað í þeim fimm mörk. Þá lék hann tólf leiki fyrir Vestra í Lengjudeildinni á síð- asta tímabili og skoraði fjögur mörk undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar núverandi þjálfara ÍA. vaks Fyrsta umferð Lengjubikarsins í knattspyrnu karla hefst um næstu helgi og þar mæta til leiks lið af Vesturlandi. Kári frá Akranesi ríður á vaðið á laugar- daginn þegar liðið tekur á móti Árborg í Akranes- höllinni klukk- an 12. Víkingur Ólafsvík mætir Berserkjum/Mídasi á Víkingsvelli í Fossvoginum sama dag og hefst sá leikur klukkan 14. Sigurvegar- ar úr þessum leikjum mætast síðan í 2. umferðinni og því gætu Kári og Víkingur Ólafs- vík mæst í Vestur- landsslag laugar- daginn 23. apríl. Á sunnudaginn mætast síðan í Vesturlands- slag lið Reyn- is Hellissands og Skallagríms úr Borgarnesi á Ólafsvíkurvelli og hefst viðureignin klukkan 14. Sigurvegarinn úr þess- um leik mætir í 2. umferðinni ann- að hvort liði Þróttar úr Vogum eða ÍR úr Breiðholti á heimavelli föstu- daginn 22. apríl. vaks Knattspyrnuþjálfarinn Jón Páll Pálmason höfðaði mál gegn knattspyrnufélaginu Víkingi Ólafs- vík eftir að hafa verið rekinn sem þjálfari liðsins í Lengjudeildinni í júlí árið 2020. Hann vildi meina að uppsögn sín hefði verið ólögmæt, en frá málinu er greint á fotbolti. net. Jón Páll krafðist þess að hon- um yrðu greiddar tæplega 26 millj- ónir króna en tapaði málinu og var dæmdur til að greiða sjálfur eina og hálfa milljón í málskostn- að. Í dómnum segir að í fundar- gerð Víkings hafi komið fram að nokkur óánægja væri með störf Jóns og óánægja hjá foreldrum iðk- enda en hann starfaði einnig við yngri flokka félagsins. Þá kemur fram að Jón Páll hafi sent tölvupóst til félagsins 12. júlí 2020 og rak- ið atriði sem hann væri óánægður með. Degi síðar var hann boðað- ur á fund og honum tjáð að frekara vinnuframlagi af hans hálfu væri ekki óskað. Honum var jafnframt tjáð að hann fengi greitt þar til uppsagnarákvæði yrði virkt í samn- ingi hans, þann 1. október. Jón Páll vildi ekki una þessum málalokum og sendi kröfubréf þar sem hann fór fram á að félagið greiddi honum það fjártjón sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ólögmætrar upp- sagnar en kröfum hans var hafnað. Jón Páll fór síðan í mál við Vík- ing og krafðist meðal annars að fá miskabætur vegna skaða á mann- orði. Hann sagðist ekki hafa van- efnt skyldur sínar að neinu leyti og ekki fengið hæfilegan frest til úrbóta. „Dómurinn fellst á það með stefnda (Víkingi Ólafsvík) að honum hafi verið heimilt að afþakka frekari vinnuframlag stefn- anda á fundi aðila 13. júlí 2020 enda er það réttur vinnuveitenda að afþakka vinnuframlag launþega ef greitt er umsamið endurgjald.“ segir í dómnum. Því er það niðurstaða dómsins að Víkingur Ólafsvík hafi sýnt fram á að samningurinn hafi verið í fullu gildi þar til honum var sagt upp 1. október 2020. vaks Vesturlandsliðin að hefja leik í Mjólkurbikarnum Jón Þór og Benó handsala lánssamninginn. Ljósm. kfía Benedikt Warén að láni til ÍA Víkingur Ólafsvík vann málið gegn Jóni Páli Jón Páll Pálmason, fyrrum þjálfari Víkings Ó. Ljósm. úr safni

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.