Skessuhorn - 06.04.2022, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 31
Garða- og Saurbæjarprestakall
Helgihald í Dymbilviku og páska
Hallgrímskirkja í Saurbæ
Frá Betaníu til Emmaus
9. apríl Laugardagur fyrir
Pálmasunnudag
Síðdegisguðsþjónusta kl. 18.00 með
minningu smurningar Jesú í Betaníu.
10. apríl Pálmasunnudagur
Íhugun um Pálmavið kl. 18.00
11. apríl Mánudagur
Guðsþjónusta með íhugun um iðrun
og fyrirgefningu kl. 18.00.
12. apríl Þriðjudagur
Íhugun um vatnið og skírnina
kl. 18.00.
13. apríl Miðvikudagur
Fjórtán stöðvar krossferilsins
kl. 18.00. Íhuganir um krossferils
myndir Önnu G. Torfadóttur og
kross – og upprisumyndir
Gunnars J. Straumland.
14. apríl Skírdagur
Fermingarmessa kl. 11.00
Fermd verða:
Arna Rún Guðjónsdóttir
Árni Rögnvaldsson
Heimir Brynjólfsson
Íhugun um síðustu kvöldmáltíð Jesú
og lærisveinanna kl. 18.00.
15. apríl Föstudagurinn langi
Lestur passíusálmanna og
tónlistarflutningur kl. 13-18.30.
Dagskráin stendur fram eftir degi,
fólk getur komið og farið að vild.
16. apríl Hinn helgi laugardagur
Kvöldbænir með lestri
50. Passíusálms kl. 18.00
Páskanæturvaka kl. 23.00
17. apríl Páskadagur
Páskaguðsþjónusta kl. 08.00
Morgunverður að lokinni
guðsþjón ustu í Saurbæjarhúsi
18. apríl Annar páskadagur
Emmausmessa
Göngumessa (ef veður leyfir)
kl. 16.00 Hefst við kirkjuna.
Auðveld ganga sem hentar flestum
Akraneskirkja
14. apríl Skírdagur
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
17. apríl Páskadagur
Páskaguðsþjónusta kl. 11
Heitt súkkulaði í Vinaminni eftir
guðsþjónustu í boði sóknarnefndar
Þjálfarar yngri landsliða Íslands í
körfuknattleik hafa valið loka leik-
mannahópa sína fyrir sumarið
2022. Hóparnir hefja æfingar í lok
maí eftir úrslit yngri flokka og æfa
saman í sumar. U15 fer á æfinga-
mót og æfingabúðir í Finnlandi
með U15 liðum þeirra og U16 tek-
ur þátt á Norðurlandamótinu og
Evrópumótum FIBA.
Nokkrir leikmenn úr liðum af
Vesturlandi voru valdir í landsliðin.
Í hópi U15 stúlkna er Amanda
Bríet Bergþórsdóttir frá Snæfelli
og í U15 drengja er Eiríkur Frí-
mann Jónsson frá Skallagrími.
Skallagrímur á þrjá leikmenn í
U16 hóp stúlkna en það eru þær
Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir,
Viktoria Lind Kolbrúnardóttir og
Kolfinna Dís Kristjánsdóttir. Þá
er Díana Björg Guðmundsdótt-
ir, leikmaður Aþenu, einnig í U16
hóp stúlkna en hún er frá Borgar-
nesi.
vaks
Íslandsmeistaramótið í klifri fór
um helgina fram í Klifurhús-
inu í Reykjavík. Keppt var í öllum
aldursflokkum en fjórir klifrarar
frá ÍA höfðu tryggt sér þátttökurétt
eftir undankeppni sem haldin var
fyrr í vikunni.
Sylvía Þórðardóttir (Youth-A)
keppti Í Opnum flokki fullorðinna
(Youth A/Junior/Senior) og var í
góðri stöðu eftir undankeppnina,
þar sem hún toppaði fimm af átta
leiðum og fór inn í úrslit í öðru
sæti. Í úrslitum kom hún ákveðin til
leiks og toppaði fyrstu þrjár leiðir
mótsins örugglega í fyrstu tilraun
og náði Zone-gripi í þeirri síð-
ustu, einnig í fyrstu tilraun. Lengra
komst hún þó ekki og tryggði sér
þar með sinn fyrsta Íslandsmeist-
aratitil í Youth-A, og silfurverðlaun
í Opnum flokki fullorðinna.
Beníta Líf Pálsdóttir og Sverr-
ir Elí Guðnason höfnuðu í 5. og 6.
sæti í Youth-B, og Rúnar Sigurðs-
son fékk bronsverðlaun í Youth-A.
þs
Á laugardaginn tók ÍA á móti liði
Völsungs í riðli 2 í C deild kvenna
í Lengjubikarnum og fór leikurinn
fram í Akraneshöllinni. Leikurinn
var jafnframt styrktarleikur fyr-
ir hina 19 ára Þuríði Örnu Óskars-
dóttur sem hefur barist við heila-
æxli frá tveggja ára aldri. Þeir sem
vilja styrkja hana geta lagt inn á
reikning meistaraflokks kvenna:
552-14-401121 kt. 500487-1279
og eru frjáls framlög vel þegin til að
fjármagna útskriftarferð fyrir Þur-
íði Örnu til Lundúna.
Ylfa Laxdal Unnarsdóttir kom
Skagastúlkum yfir á 19. mínútu og
var aftur á ferðinni fimm mínútum
síðar með sínu öðru marki. Lilja
Björg Ólafsdóttir bætti við þriðja
markinu fyrir ÍA á 62. mínútu og
öruggur sigur þeirra staðreynd,
3-0. ÍA er í efsta sæti riðilsins ásamt
KH með níu stig eftir þrjá leiki en
þessi lið mættust í úrslitaleik um
sigur í riðlinum og öruggt sæti í
úrslitum C deildar. Leikurinn fór
fram í gær, þriðjudag, í Akraneshöll
en var ekki lokið áður en Skessu-
horn fór í prentun.
Karlalið ÍA lék síðasta fimmtu-
dag æfingaleik gegn Selfossi og fór
leikurinn fram syðra. Skagamenn
unnu stórsigur 5-0 og skoraði Vikt-
or Jónsson tvö mörk og þeir Eyþór
Aron Wöhler, Steinar Þorsteinsson
og Guðmundur Tyrfingsson voru
með eitt mark hver.
Reynir Hellissandi lék síðasta leik
sinn í riðli 3 í C deild karla í Lengju-
bikarnum gegn Hvíta riddaranum á
laugardaginn og fór leikurinn fram
á Ólafsvíkurvelli. Þar urðu Reynis-
menn að sætta sig við stórtap, loka-
tölur 0-8 fyrir gestunum. Reynir
lék fjóra leiki, tapaði þeim öllum og
hafnaði í neðsta sæti riðilsins.vaks
Nokkrir leikmenn af
Vesturlandi í lokahópi
yngri landsliða í körfu
Kvennalið ÍA er nýkomið úr æfingaferð á Spáni. Ljósm. kfía
ÍA vann Völsung
í Lengjubikarnum
Sylvía landaði fyrsta Íslands-
meistaratitlinum í Youth-A