Feykir


Feykir - 16.06.2021, Side 6

Feykir - 16.06.2021, Side 6
Borgin Indianapolis er höfuðborg Indiana-fylkis, rétt austan við miðju Banda- ríkjanna, en Indiana þýðir í raun land indíánanna. Samkvæmt vinkonu þeirra sem leita upplýsinga á netinu, Wikipedíu, var Indianapolis- bær settur á laggirnar 6. janúar 1821 en í dag nálgast íbúar borgarinnar það að teljast 900 þúsund – það eru talsvert fleiri „Liðsfélagarnir héldu að þjálfarinn þekkti pabba“ Nú bankar Feykir upp á í Indíánalandi í Banda- ríkjunum. Þar kemur til dyranna Lara Margrét Jónsdóttir frá Hofi í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu, dóttir Jóns Gíslasonar og Eline Manon Schrijver. Lara Margrét stundar nám í íþróttafræði við University of Indianapolis og þegar hún er spurð hvernig það hafa komið til að hún fór til Indíánalands að nema segir hún: „Ég sá að margir krakkar voru að fara til Bandaríkjanna að stunda íþróttir meðfram námi, sem mér fannst mjög spennandi, svo ég ákvað að láta reyna á það.“ Svona gerast ævintýrin á okkar dögum. Nú eru kannski einhverjir lesendur orðnir pirraðir á þessu stagli Feykis um að Lara Margrét stundi nám í Indíánalandi svo það er kannski rétt að útskýra málið. Lara Margrét í búningi Indianapolis Greyhounds. MYNDIR: AÐSENDAR ( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is Lara Margrét Jónsdóttir | úr paradís Vatnsdalsins á fótboltavöllinn í Indíánalandi yfirleitt annað hvort pasta með kjúklingi eða fisk og hrísgrjón. Um hálf eitt byrjar síðasti tími dagsins en hann er á Zoom til klukkan tvö. Eftir tímann geri ég heimanámið mitt fram að æfingu en ég þarf að vera mætt í íþróttahúsið rúmlega fimm. Æfingin byrjar svo klukkan sex og varir í tvo til tvo og hálfan tíma. Eftir æfingu fer ég með liðsfélögunum í mötuneytið og skelli mér svo í sturtu áður en ég fer og hitti vini mína eða held áfram með heimanámið.“ Hver er hápunktur dagsins? „Klárlega æfingar, sama hvort það eru fótbolta- eða styrktaræfingar.“ hausar en sleikja sólina í Vatnsdalnum að jafnaði. Það kemur kannski ekki á óvart að reiðmennska sé áhugamál hjá Löru Margréti enda hross í hávegum höfð á Hofi. Það er hins vegar óvenjulegra – en alls ekki einstakt eins og þeir vita sem fylgst hafa með liði Tindastóls – að fótboltinn eigi stóran sess í lífi sveitastelpunnar. Lara Margrét hefur síðustu sumur æft og spilað með liði Tindastóls og á dögunum kom hún inn á í leik Tindastóls og Vals í Pepsi Max deildinni og varð þar með mögulega fyrsti Vatns- dælingurinn til að spila í efstu deild íslenska kvenna- fótboltans... Ah, nú komst upp um Feyki, því það skal viðurkennt að Feykir bankaði ekki upp á hjá Löru í Bandaríkjunum. Hún var komin heim til Íslands þegar Feyki langaði að forvitnast um dag í lífi hennar utan landsteinanna. Og bankið var heldur ekki á útidyra- hurðina á Hofi heldur í gegnum Facebook-skilaboð. En við látum bara sem hún sé úti og biðjum hana því um að lýsa venjulegum degi í Indianapolis. „Dagarnir eru svolítið mismunandi en týpískur dagur væri þannig að ég myndi vakna um hálf átta og græja mig áður en ég mæti í tíma klukkan átta,“ segir Lara Margrét. „Ég er ekki mikið fyrir amerískan morgun- mat en ég fæ mér yfirleitt morgunkorn eða jógúrt með múslí. Ég er í skólanum til klukkan tíu en þá tekur styrktaræfing með liðinu við. Hún tekur tæpan klukkutíma og eftir hana dríf ég mig í næsta tíma sem byrjar klukkan ellefu. Eftir tímann hef ég hálftíma hádegispásu og fæ mér eitthvað úr mötuneytinu í skólanum, Lara Margrét fagnar með samherjum sínum. Hún er efst á mynd. Hversu lengi ertu í kjör- búðina frá heimili þínu? Um fimm mínútur. Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina með öllu? Kjúklingasamloku frá Chick-fil-A. Hvað kostar mjólkurlítr- inn? Um hundraðkall. Hver er skrítnasti mat- urinn? Djúpsteikt oreo eða ís. Hvert ferðu til að gera vel við þig? Geng meðfram Indianapolis Canal. 5 á 15 sekúndum Það er víðar en hér á klakanum sem æft er við vetraraðstæður. 6 24/2021

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.