Feykir - 12.08.2021, Page 8
Heilir og sælir lesendur góðir.
Þar sem nú að undanförnu hefur mátt heyra
Njálssögu lesna á kvöldin á Rás 1, rifjast
upp vísa sem tengist persónum úr henni,
veit því miður ekki um höfund.
Ég því svara ef þú spyr
hvað auðnu heimsins brjálar.
Það eru of margir Merðirnir
en miklu færri Njálar.
Lagleg hringhenda kemur hér næst, veit því
miður ekki um höfund.
Sagnir falla mjög á mis
mannorðs halla sóma.
Ég hata alla helvítis
heimsins palladóma.
Það er Eiríkur frá Dagverðargerði sem er
höfundur að eftirfarandi ferhendu.
Þó að ljóðalistin sjatni
lestri mætti betur una.
Ef að lögg af lífsins vatni
lekið hefði á flatneskjuna.
Björn Ingólfsson lék sér oft að yrkingum
í því formi sem kallast limra. Hér kemur
sýnishorn af því.
Það gustaði um góðskáldið Óðin
Þegar gleiður í salinn hann óð inn.
Þá viknuðu fljóðin
og funaði glóðin
er flutti hann þrumandi ljóðin.
Hallmundur Kristinsson yrkir svo vel í
limrustíl.
Margur í limranna línum
leikur að hugmyndum fínum.
Sæmir hver sér
sjálfur ég er
stoltur af stuðlunum mínum.
Það er Kristján Árnason frá Skálá í Sléttu-
hlíð í Skagafirði sem yrkir svo á fallegu
sumarkvöldi.
Ískaldur blærinn andann missir
undan lítur um stund.
Er miðnætursólin kafrjóð kyssir
kot við Málmeyjarsund.
Önnur í svipuðum dúr kemur hér eftir
Kristján.
Loftið í vestrinu litast sem blóð
af lækkandi röðulsins eldi.
Svo hverfur í djúpið hin deyjandi glóð
og dagur er orðinn að kveldi.
Sá kunni hagyrðingur og ágæta ljóðskáld,
Sigurður Þórarinsson, mun hafa einhverju
sinni horft til fjalla og ort svo.
Hæruskotin Herðubreið
hrikalega ferleg.
Einhvern tíma alla leið
upp á hana fer ég.
Jakob Böðvarsson sem mun hafa starfað
sem brúarsmiður á sinni ævi mun hafa ort
svo magnaða sléttubandavísu.
Þokan liðugt fagurt fer
flughratt skarðið austur.
Vísnaþáttur 789
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Pokann sniðugt Bleikur ber
burðarjálkur traustur.
Það er Einar Hjálmar Guðjónsson sem tekur
sterklega til orða í næstu vísu.
Frekja og heimska fylgjast að
fölskuð rök og lygi.
Eiga sér á einum stað
örugg saman vígi.
Mildari er næsta vísa Einars er hann hugsar
til vorsins.
Vorinu fylgir von og sól
vaxtarþrá og draumar.
Blómaskrúð á bæjarhól
og blakkir jökulstraumar.
Adolf J. Petersen mun hafa verið á Öræfa-
ferð er hann orti svo.
Hvar sem fer þín ferðasál
um fjöll og eyðisanda.
Töfrar lands og tungumál
tala í sama anda.
Önnur vísa vel gerð hringhenda kemur hér
eftir Adolf.
Fjallahreimur fyllir sál
fögnuð heima vandar.
Heiðin geymir huldumál
hljóðir sveima andar.
Gott er nú að heyra frá Skagfirðingnum
Pétri Stefáns.
Hann Húbert var holdugur krakki
hrifinn af kóki og snakki.
Hann elskaði mat
og át ef hann gat
kíló af kjúklingahakki.
Önnur limra kemur hér eftir Skagfirðinginn.
Hún Katrín á kurteisi‘ er blind
og klæmin – en það er vart synd.
Hún er uppþembd og mögur
og alls ekki fögur
og alltaf að leysa vind.
Okkar góði félagi hér áður fyrr, Skarphéðinn
Ásbjörnsson, leggur okkur til næstu vísu.
Til ég öðlist innri frið
og andans minnki spenna.
Ég afsökunar á því bið
sem öðrum er að kenna.
Það er Ingólfur Ómar sem gefur góð ráð.
Eitt er ráðið allra best
eyðir sálardrunga.
Fá sér bæði hund og hest
og heimasætu unga.
Fékk nú fyrir skömmu senda ágæta
hringhendu og höfundur sagður Eggert J.
Levy, þekki einn mann með því nafni en tel
ekki líklegt að vísan sé eftir hann.
Loftið tæra lungun þrá
ljósið nær að skína.
Yndið hlær og allir sjá
ástin fær að hlýna.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Feykir setti sig í samband við
Sigríði Gunnarsdóttur,
sóknarprest á Sauðárkróki, og
forvitnaðist um smíði hjóla-
stólaramps við safnaðarheimili
Sauðárkrókskirkju.
Í máli Sigríðar kom fram að
nýi inngangurinn hafi verið til-
búinn um síðustu áramót en
þeir sem notast við hann fara á
milli kirkju og safnaðarheimilis
og inn að vestan eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum.
Smiðirnir Ólafur Þorbergsson
og Ómar Helgi Svavarsson sáu
um verkið.
Er stefnt að fleiri fram-
kvæmdum við safnaðarheim-
ilið í náinni framtíð? „Í sumar
var safnaðarheimilið málað að
utan og skipt út borðum og
stólum í salnum. Þetta gamla
hús þyrfti sannarlega meiri
Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju
Loks viðunandi aðgengi fyrir alla
að bæði kirkju og safnaðarheimili
endurbætur en viðhald er
fjárfrekt svo ekki verður meira
gert á næstunni. Okkur dauð-
langar til að skipta út gólf-
efnum, það er næst á verk-
efnalistanum.“
Er þá aðgengi fyrir fatlaða
að safnaðarheimilinu fram-
úrskarandi eða viðunandi?
„Aðgengi að safnaðarheimil-
inu er orðið viðundandi.
Gömul hús verða seint með
framúrskarnandi aðgengi.“
Er sóknarprestur ánægður
með verkið? „Ég er auðvitað
mjög ánægð með að nú sé
aðgengi fyrir alla bæði að
kirkju og safnaðarheimili,
annað er ekki boðlegt. Verst að
við höfum ekki enn haft
tækifæri til að bjóða sóknar-
börnunum að koma og skoða
en það verður vonandi fyrr
enn síðar.“
Hvenær má reikna með að
nýr líkbíll líti dagsins ljós?
„Nú styttist mjög í nýja lík-
bíllinn. Hann er kominn til
landsins og við eigum von á að
fá hann afhentan um næstu
mánaðamót. Við bíðum
spennt,“ sagði séra Sigríður að
lokum /ÓAB
Hjólastólarampurinn við safnaðarheimilið. MYNDIR: ÓAB Horft ofan og sunnan frá safnaðarheimilinu niður á Aðalgötu.
8 30/2021