Feykir


Feykir - 15.12.2021, Blaðsíða 4

Feykir - 15.12.2021, Blaðsíða 4
4 48/2021 Dregið hefur verið úr réttum lausnum í myndagát- unni sem birtist í jólablaði Feykis. Líkt og fyrri ár var þátttaka góð meðal lesenda. Lausnin er eftirfarandi: Hringekja uppbótarþingmanna fór óvænta aukaferð eftir endurtalningu kosninga haustsins. Þrír bókavinningar, frá Bókaútgáfunum Veröld, Hólum og Völuspá, eru í verðlaun og vinningshafar eftirfarandi: Gísli Már Arnarson Hvammstanga :: Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson skráði Sif Guðmundsdóttir Blönduósi :: Ekki var það illa meint – Ljóð og lausavísur eftir Hjálmar Freysteinsson Birgitta Sveinsdóttir Varmahlíð :: Á flótta í 40 ár. Öðruvísi Íslandssaga – Höfundur Jón Hjaltason Feykir þakkar þátttakendum fyrir innsendar lausnir og óskar vinningshöfum til hamingju. /PF Verðlaunahafar jólamyndagátu Þrjú heppin fá bókavinninga Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Framkvæmdastjóri óskast Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda óskar eftir að ráða starfsmann til að sjá um starfsemi sambandsins frá 1. mars næstkomandi. Helstu verkefni eru umsjón með daglegum rekstri, nautgripa- og sauðfjársæðingum, jarðabótaúttektum og öðrum þeim verkefnum sem stjórn ákveður. Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólapróf í búvísindum eða hafi lokið sambærilegu námi sem nýtist í starfi. Mikilvægt er að umsækjendur hafi þekkingu á félagskerfi bænda, geti unnið sjálfstætt og séu færir í mannlegum samskiptum. Um er að ræða hlutastarf en nánari útfærsla á starfinu getur verið samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar veitir formaður BHS, Ingvar Björnsson í síma 893 0120 eða á tölvupósti holabaksbuid@gmail. com. Umsóknafrestur er til 1. janúar 2022. Umsókn um starfið skal fylgja kynning á umsækjanda ásamt starfsferilsskrá. Sérfræðikomur í janúar 2022 www.hsn.is 13. OG 14. JANÚAR Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir 17. OG 18. JANÚAR Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir 24. TIL 27. JANÚAR Bjarki Karlsson, bæklunarlæknir Tímapantanir í síma 432 4236 Fengu hluta húss Sigurðar Pálmasonar til afnota Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra Halldór Hreinsson afhendir fulltrúum stjórnar Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra lyklavöld að gamla verslunarhúsnæði Sigurðar Pálmasonar. AÐSEND MYND Föstudaginn 3. desember afhenti Halldór Hreinsson, fyrir hönd eigenda Brekkugötu 2, Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra lyklavöldin að jarðhæð og kjallara húss Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga. Hefur félagið frjáls afnot af húsnæðinu fram til 17. júní á næsta ári og greiðir aðeins fyrir rafmagn og hita. „Stjórn félagsins er afar þakklát fyrir þennan rausnar- skap og stefnir að því að nýta þetta húsnæði sem best fyrir nýjungar og fjölbreyttara félagsstarf í þágu eldri borgara og samfélagsins alls þennan tíma,“ segir í tilkynningu stjórnar. Boðað hefur verið til söngstundar í dag, með Elinborgu söngstjóra, og að henni lokinni hægt að grípa í spil eða handavinnu. Heitt verður á könnunni. Fimmtudaginn 30. desem- ber klukkan 14:00 – 16:00 verður samvera þar sem lesið verður m.a. úr jólabókunum, kaffi og jólasætindi. /PF Fékk nafnið Grettir sterki Dráttarbátur Skagafjarðarhafna skírður Í gær var nýja dráttarbáti Skagafjarðarhafna gefið nafn við látlausa athöfn á Suðurbryggju á Sauðárkróki. Fékk hann nafnið Grettir sterki eftir einum frægasta útlaga Íslandssögunnar. Vegna samkomutakmark- ana var einungis 50 manns boðið að vera viðstaddir athöfnina sem hófst á því að Sigfús Ingi Sigfússon, sveitar- stjóri, bauð gesti velkomna. Þá flutti sr. Sigríður Gunnars- dóttir bæn og blessaði skipið áður en Ingibjörg Huld Þórðardóttir skírði skipið með hefðbundnu flöskubroti á skipshlið. Að athöfn lokinni var viðstöddum boðið að þiggja veitingar í Hús frítímans./PF Pokar úr Feyki Feykir fullnýttur „Um leið og ég þakka gott blað, vil ég sýna ykkur dæmi um endurnýtingu Feykis,“ skrifar Sigrún Grímsdóttir á Blönduósi til blaðsins. „Fyrst lesið, síðan búnir til pokar utan um jólapakkana og svo má auðvitað lesa aftur,“ skrifar hún og Feykir tekur heilshugar undir. Nýtum eins og hægt er. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.