Feykir


Feykir - 15.12.2021, Blaðsíða 6

Feykir - 15.12.2021, Blaðsíða 6
6 48/2021 Jólagleði í íslenskutíma AÐSENT | Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Í áfanganum ÍSLE3BF05 í FNV er hluti af námsefni lærdómsaldar sálmar og þar á meðal er sálmurinn Kvæðið af stallinum Kristí eða Nóttin var sú ágæt ein eftir Einar Sigurðsson í Eydölum. Kvæðið birtist fyrst í Vísnabók Guðbrands Þorlákssonar 1612 en birtist fyrst í Sálmabókinni 1945 en þá hafði Sigvaldi Kaldalóns samið lag við sálminn 1940. Þar sem komið var að lokum annar og mikill jólahugur kominn í nemendur fengu þeir í hendur verkefni í annarlok sem varð jólaverkefni, samvinnuverkefni í anda CLIM. Ein megin hugsun í því samvinnunámi er að: Enginn getur allt en allir geta eitthvað. Þennan anda greip hópurinn og lagðist á eitt við að undirbúa Jólaverkefni sem kynnt var í síðustu kennslustund annar. Hópurinn var leiddur áfram undir styrkri stjórn Írisar Helgu Aradóttur og Dagnýjar Gunnarsdóttur. Stofnuð var FB síða þar sem nemendur deildu hugmyndum sem síðar var kosið um og út frá því skipt í hópa. Afraksturinn var svo kynntur með metnaðarfullri dagskrá í síðustu kennslustund. Þar var meðal annars: skreyting á stofu, söngur hefðbundinna jólalaga Sálmabókar, myndband með jólabakstri nemenda og viðtöl við nemendur skólans um jólahald og jólahefðir þeirra, Kahoot spurningakeppni um efni lokaprófs, frumsamin jólaþula eins nemanda, þakkir til kennara í bundnu máli og síðast en ekki síst jólasmákökur (bakaðar af nemendum), jólate, tónlist og spjall. Því miður var tíminn til að njóta veitinga og spjalls skammur þar sem dagskráin var efnismikil. Þessi skemmtilega jólaþula er eftir einn nemanda hópsins, Sigrúnu Sigur- jónsdóttur. Þarna fengu nemendur upp í hendurnar viðburðastjórnun og stóðu þeir sig með prýði. Jólaþula (Sigrún Sigurjónsdóttir) Ketkrókur Bjúgnakrækir Sauðárkrókur Hver er nú það? Er hann jólasveinn? Klókur, hreinn og beinn og hrókur alls fagnaðar. Jólakötturinn á höttunum eftir börnunum Átt þú jólaflík? sem engri er lík? Annars jólakötturinn í knattleik fer á eftir krökkunum. Já, jólakisi enginn aukvisi þeysist um Nafirnar eftir þeim sem ekki fá gjafirnar læsir klónum í (Sauð)kræklinga og matar krókinn. Bestu kveðjur Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir, íslenskukennari Stofan skreytt. AÐSENDAR MYNDIR Bogi, Ólöf Bára og Rakel flytja kennara frumsamið þakkarljóð. Bogi fagnar sigri í Kahoot keppni. Viðtal við 2 góða (körfuboltamenn) í íþróttahúsinu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.