Feykir - 15.12.2021, Page 6
6 48/2021
Jólagleði í íslenskutíma
AÐSENT | Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir skrifar
Í áfanganum ÍSLE3BF05 í FNV er
hluti af námsefni lærdómsaldar
sálmar og þar á meðal er sálmurinn
Kvæðið af stallinum Kristí eða Nóttin
var sú ágæt ein eftir Einar Sigurðsson
í Eydölum. Kvæðið birtist fyrst í
Vísnabók Guðbrands Þorlákssonar
1612 en birtist fyrst í Sálmabókinni
1945 en þá hafði Sigvaldi Kaldalóns
samið lag við sálminn 1940.
Þar sem komið var að lokum
annar og mikill jólahugur kominn í
nemendur fengu þeir í hendur verkefni
í annarlok sem varð jólaverkefni,
samvinnuverkefni í anda CLIM. Ein
megin hugsun í því samvinnunámi er að:
Enginn getur allt en allir geta eitthvað.
Þennan anda greip hópurinn og lagðist
á eitt við að undirbúa Jólaverkefni sem
kynnt var í síðustu kennslustund annar.
Hópurinn var leiddur áfram undir
styrkri stjórn Írisar Helgu Aradóttur
og Dagnýjar Gunnarsdóttur. Stofnuð
var FB síða þar sem nemendur deildu
hugmyndum sem síðar var kosið um
og út frá því skipt í hópa. Afraksturinn
var svo kynntur með metnaðarfullri
dagskrá í síðustu kennslustund. Þar var
meðal annars: skreyting á stofu, söngur
hefðbundinna jólalaga Sálmabókar,
myndband með jólabakstri nemenda
og viðtöl við nemendur skólans um
jólahald og jólahefðir þeirra, Kahoot
spurningakeppni um efni lokaprófs,
frumsamin jólaþula eins nemanda,
þakkir til kennara í bundnu máli
og síðast en ekki síst jólasmákökur
(bakaðar af nemendum), jólate, tónlist
og spjall. Því miður var tíminn til að
njóta veitinga og spjalls skammur þar
sem dagskráin var efnismikil.
Þessi skemmtilega jólaþula er eftir
einn nemanda hópsins, Sigrúnu Sigur-
jónsdóttur. Þarna fengu nemendur upp
í hendurnar viðburðastjórnun og stóðu
þeir sig með prýði.
Jólaþula
(Sigrún Sigurjónsdóttir)
Ketkrókur
Bjúgnakrækir
Sauðárkrókur
Hver er nú það?
Er hann jólasveinn?
Klókur, hreinn og beinn
og hrókur alls fagnaðar.
Jólakötturinn
á höttunum
eftir börnunum
Átt þú jólaflík?
sem engri er lík?
Annars jólakötturinn
í knattleik fer á eftir krökkunum.
Já, jólakisi
enginn aukvisi
þeysist um Nafirnar
eftir þeim sem ekki fá gjafirnar
læsir klónum í
(Sauð)kræklinga og matar krókinn.
Bestu kveðjur
Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir,
íslenskukennari
Stofan skreytt. AÐSENDAR MYNDIR Bogi, Ólöf Bára og Rakel flytja kennara
frumsamið þakkarljóð.
Bogi fagnar sigri í Kahoot keppni. Viðtal við 2 góða (körfuboltamenn) í íþróttahúsinu.