Feykir


Feykir - 15.12.2021, Síða 16

Feykir - 15.12.2021, Síða 16
16 48/2021 Norway Grants. Hvað þýðir þetta á venjulegri norðlensku? „Við vini og vandamenn segi ég oftast að það sé eins með mig og Chandler í Friends – það er ómögulegt að útskýra hvað ég geri í raun í vinnunni. En ef ég reyni að gera þetta einfalt þá stuðlar Uppbyggingarsjóður EES að umbótum og uppbygg- ingu í efnaminni ríkjum Evrópusambandsins í gegnum styrkjakerfi sem er fjármagnað af Íslandi, Noregi og Liechten- stein. Sjálf vinn ég mest með Eystrasaltsríkjunum og veiti lögfræðiráðgjöf. Það er mjög skemmtilegt að vinna í alþjóð- legu umhverfi og kollegar mínir á skrifstofunni eru alls staðar að, en ég er líka langt frá því eini Íslendingurinn.“ Kristín segir að Belgía hafi farið gríðarlega illa út úr Covid og landsmenn mátt glíma við miklar og langvinnar takmark- anir. „Síðasta vetur var engin menningarstarfsemi leyfð, veitingahús voru lokuð og heimavinna var skylda. Ég ákvað því að eyða vetrinum heima á Hólum. En það var óneitanlega skrýtið að byrja í nýrri vinnu í nýju landi án þess að hitta flesta kollega og yfirmenn fyrr en eftir níu mánuði í starfi.“ Þú ert búin að flækjast eitthvað meira á stuttri ævi, á hvaða fleiri stöðum hefurðu búið og hvar fannst þér best að vera? „Ég bjó sem barn í einn vetur í Guelph í Kanada, eftir mennta- skóla var ég hálfan vetur í Tromsö í Noregi og hálfan vetur í Vín í Austurríki. Í meistaranáminu mínu fór ég svo í árslangt skiptinám til Melbourne í Ástralíu sem stendur algjörlega upp úr. Það er mjög skemmtilegur andi í Ástralíu, veðrið er gott og það eru endalausir ferðamöguleikar í svona stóru landi. Eini gallinn við Ástralíu er hversu langt í Nú býður Feykir lesendum sínum að stökkva um borð í hraðlest til Brussel í Belgíu en þar hittum við fyrir Kristínu Kolku Bjarnadóttur. Hún starfar í þessari höfuðborg evrópskrar samvinnu sem lögfræðingur hjá Uppbyggingarsjóði EES. Kristín Kolka er fædd árið 1994 og er frá Hólum í Hjaltadal, foreldrar hennar eru Guðrún Þóra Gunnars- dóttir og Bjarni Jónsson og svo á hún tvo bræður, þá Gunnar Loga Guðrúnarson og Jón Kolka Bjarnason. „Ég flutti til Belgíu haustið 2020 til að fara í starfsnám en flúði til baka í Skagafjörðinn fimm vikum seinna vegna ömurlegs Covid ástands og eyddi vetrinum á Hólum en áfram að vinna í belgísku vinnunni minni,“ segir Kristín þegar hún er spurð hvenær hún hafi flutt til Brussel. „Ég fór hins vegar aftur til Belgíu í vor, kláraði starfsnámið mitt og hélt áfram að vinna hjá sama vinnuveitanda sem lögfræð- ingur,“ bætir hún við. Á Facebook segir að þú sért Legal Officer hjá EEA and „Þarna er ég á rooftop bar í Brussel, glittir í ráðhústurninn bak við mig vinstra megin,“ segir Kristín Kolka. MYNDIR AÐSENDAR burtu landið er, ég gæti aldrei búið þar lengi því ég er svo heimakær og þarf að komast heim til fólksins míns reglu- lega.“ Góður staður fyrir ferðasjúka manneskju Hvernig myndir þú lýsa venju- legum degi hjá þér? „Á venju- legum degi myndi ég fara úr húsi upp úr átta og labba í vinnuna, stundum gríp ég nýbakað croissant á leiðinni. Í hádeginu fer ég yfirleitt með vinnufélögum á einhvern af þeim fjölmörgu stöðum í nágrenninu sem selja tilbúna rétti og samlokur á góðu verði. Eftir vinnu geri ég stundum eitthvað með vinnufélögunum, það er mjög góður andi í Hversu lengi ertu í kjör- búðina frá heimili þínu? Þriggja mínútna labb. Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina með öllu? Belgískar franskar. Hvað kostar mjólkurlítr- inn? Drekk ekki útlenska mjólk þannig veit ekki! Hver er skrítnasti mat- urinn? Hráa hakkið sem allir hakka í sig. Hvert ferðu til að gera vel við þig? Mathöllina í byggingunni minni. 5 á 15 sekúndum Belgía kemur á óvart ( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is Kristín Kolka Bjarnadóttir | úr skjóli Hjaltadalsins í Evrópuslaginn í Brussel Við skrifborðið á vinnustaðnum. Kristín Kolka og Guðrún Þóra mamma hennar í Gent. Ásamt Gunnari litla bróðir sínum í miðborg Brussel,

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.