Feykir


Feykir - 15.12.2021, Page 17

Feykir - 15.12.2021, Page 17
48/2021 17 vinnunni og mikið félagslíf, en oftar en ekki fer ég bara heim og horfi á eitthvað skemmtilegt á Netflix,“ segir Kristín en tekur fram að eftir langan tíma af heimavinnu þá sé það enn- þá hápunktur dagsins að fá að mæta á skrifstofuna, sem er bara búið að vera leyfilegt síðan í júlí. „Það er stundum fínt að vinna heima en mér finnst betra að vinna með fólki og til dæmis taka gott spjall í hádeginu.“ Hvað er best við að búa í Belgíu? „Það besta við að búa í Belgíu fyrir ferðasjúka mann- eskju eins og mig er hvað það er auðvelt að hoppa upp í lest til þess að skoða aðrar borgir í Belgíu eða fara í helgarferð til annarra landa. Bara í sumar og haust er ég búin að ferðast til Champagne héraðsins og Parísar í Frakklandi, Kölnar í Þýskalandi og Lúxemborg. En það er líka fínt að vera í Belgíu sjálfri og ég er búin að ferðast mikið innanlands, þetta land kemur á óvart.“ Belgíska súkkulaðið er frægt, ertu búin að kanna málið og hverju mælirðu þá með? „Ég er svo sannarlega búin að kanna málið í þaula og mæli með Neuhaus. Fylltir súkkulaðimol- ar voru fundnir upp af Neuhaus og þeir eru líka mjög góðir hjá þeim. Ég hef því miður ekki séð Neuhaus súkkulaði á Íslandi en um að gera að ferðast til Belgíu og prófa – ásamt belgíska bjórnum.“ Hvað hefur komið þér mest á óvart í Belgíu? „Belgía getur verið gríðarlega óskilvirkt og óskipulegt land en samt reddast flest að lokum hjá þeim og oft með stæl. Annað reddast reyndar ekki og skemmtilegt dæmi er að í miðbænum er gríðarlega stór og flott bygging, dómshúsið Palais de Justice, sem ákveðið var að flikka upp á árið 1984 og stillansar reistir. Það vill ekki betur til en svo að á þessu ári var ákveðið að nú Kristín Kolka ásamt vinnufélögum og vinkonum á góðri stund í Brussel. Kristín og Jón Kolka við Manneken Pis, helsta kennileiti Belgíu. Nokkrir bitar um Brussel... Brussel er höfðuborg Belgíu en Belgar lýstu yfir sjálfstæði frá Hollandi 4. október 1830. Þrjú tungumál eru opinber tungumál Belga; hollenska, franska og þýska. Raunar er oft talað um að flæmska sé töluð í Belgíu en flæmskan ku vera mállýska af hollensku í Flæmingjalandi í norðurhluta Belgíu. Vilji menn slá um sig í Flæmingjalandi þá segja þeir goeiendag að morgni og goedenacht áður en farið er í háttinn. Virkar ekki flókið... Í Belgíu búa um ellefu og hálf milljón manns en á Stór-Brussel-svæðinu teljast íbúar vera um 2,1 milljón en borgin er miðsvæðis í landinu. Antwerpen er næstfjölmennasta borg landsins með ríflega hálfa milljón íbúa en þar á eftir koma Gent, Charleroi og Liege. Belgía liggur á milli Hollands í norðri og Frakklands í suðri en Þýskalandi í austri. Ermarsundið skilur svo á milli Belgíu og Bretlands. Höfuðstöðvar Evrópubandalagsins eru í Brussel og þar búa um 40 þúsund starfsmenn bandalagsins og að auki um 4000 starfsmenn NATO. Yfir 80 bæir eða borgir í Belgíu hafa yfir 30 þúsund íbúa. Þegar telja skal til fræga íbúa Brussel þá er kannski ekki um auðugan garð að gresja. Þó má nefna Eddu Van Heemstra sem var betur þekkt undir nafninu Audrey Hepburn. Hún var á tímabili ein stærsta kvikmyndastjarna heims, fræg fyrir að leika í myndum á borð við Roman Holiday, Breakfast at Tiffanys og My Fair Lady upp úr miðri síðustu öld. Af öðrum frægum Brusselum má nefna leikkonuna Stellu Max- well, rapparann Stromae, Michi Batshuayi sem spilar fótbolta líkt og Adnan Januzaj sem átti að verða næsti Ronaldo hjá Manchester United áður en Ronaldo varð næsti Ronaldo. Frægasti íbúi Brussel er þó væntanlega teiknimyndahetjan heimsfræga, Tinni, og félagar hans; Tobbi, Kolbeinn, Vandráður, Vaíla og Axar-Skaftarnir. Skapari Tinna var Hergé (Georges Prosper Remi) en hann var að sjálfsögðu ekki fæddur í Brussel en Musée Hergé, eða Hergé-safnið, er í bænum Louvain- la-Neuve skammt suður af Brussel. Kannski má segja að næstfrægasti Belginn sé einnig uppdiktuð persóna, nefnilega hinn sérvitri Hercule Poirot, einkaspæjari Agöthu Christie, sem sjónvarpsáhorfendur fá seint leið á. Belgar eru heimsfrægir fyrir súkkulaðið sitt auk þess sem þeir eru stórtækir þegar kemur að vöfflum og bjór en yfir 800 tegundir af bjór eru seldar í Brussel. Súkkulaðibúðir er að finna um alla borgina og í nágrenninu og eðlilega er síðan flugvöllurinn í Brussel mesti súkkulaðisölustaður heims! Þá er rétt að leið- rétta þann misskilning að franskar kartöflur séu franskar – þær eru að sjálfsögð belgískar. Tinni og félagar á góðri stundu. Tinni býr í Brussel. Audrey Hepburn og Hercule Poirot. MYNDIR AF NETINU Belgísku Neuhaus konfektmolarnir eru listaverk út af fyrir sig. þyrfti að gera við stillansana – sem hafa staðið í 37 ár...“ Saknar íslenska landslagsins „Um helgar labba ég oft um í Brussel til að kynnast borginni eða fer í dagsferðir til annarra borga í Belgíu. Þær eru margar mjög flottar og skemmtilegar en Gent stendur upp úr,“ segir Kristín þegar hún er spurð hvort hún hafi eitthvað náð að ferðast um landið þennan stutta tíma sem hún hefur dvalið þar. „Ég var líka í sumar aðeins á belgísku ströndinni, sem er aðeins kaldari upplifun en spænsku strendurnar, en Belgar mega eiga það að þeir halda þeim snyrtilegum og hreinum.“ Hvers saknar þú mest að heiman? „Ég sakna mest fjöl- skyldunnar og íslenska lands- lagsins. Það getur orðið pínu þreytt til lengdar að búa í miðborg stórborgar þó það sé mjög gaman líka.“ Eru Belgar ólíkir Íslendingum og er eitthvað sem Íslendingar gætu lært af Belgum? „Það vantar allt þjóðarstolt í Belga en Belgía er ungt land sem er í raun tvö lönd með mismunandi hefðir og tungumál. Þessi sundurleita þjóð kemur eiginlega bara saman til að styðja karlalandsliðið þeirra í fótbolta. Þannig ég myndi segja að það væri helsti munurinn á Belgum og Íslendingum þar sem við Íslendingar eigum það stundum til að næstum rifna af þjóðarstolti. Ég veit ekki hvað við gætum lært af Belgum, kannski að búa til gott súkku- laði? Ég verð samt að segja mér fannst gott að fá sendingu af íslensku suðusúkkulaði um daginn,“ segir Kristín Kolka að lokum.Lestarstöðin í Antwerpen. Kristín Kolka að búa til sitt eigið belgíska súkkulaði.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.