Feykir


Feykir - 15.12.2021, Síða 18

Feykir - 15.12.2021, Síða 18
18 48/2021 Við óskum lesendum Feykis og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og góðs nýs árs Nokkur orð á aðventu 2021 AÐSENT | Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Kæri lesandi. Nú þegar líður að jólum þá kvikna svo margar minningar tengdar þessum göldrótta árstíma þegar sólin dregur sig í hlé og gefur myrkrinu eftir sviðið að mestu. Á síðari tím- um hafa orðið til minningar sem margar tengjast löngum setum í þinghúsinu við Austurvöll. Það er alltaf eitthvað hátíðlegt við störfin í þinghúsinu á þessum tíma og orðaskak þingmanna á einhvern hátt innilegra og blíðara þótt hart sé oft tekist á. Árið 2021 kveður nú brátt. Það hefur tekið á fyrir okkur flest en faraldurinn hefur breytt lífi okkar um stund. Það er þó ánægjulegt að betur hefur gengið en við áætluðum að koma hjólum atvinnulífsins af stað þrátt fyrir ýmsar brekkur. Það er alltaf ánægjulegt að taka þátt í kosningum til Alþingis. Kosningabaráttunni fylgja ferðalög um allt land þar sem ég hef notið þess að hitta fólk sem hefur brennandi áhuga á samfélaginu okkar og sterkar skoðanir á því hvert það stefnir og hvaða leiðir séu ákjósanlegastar. Ég er virkilega þakklátur fyrir þann stuðning sem við í Framsókn fengum um land allt. Framtíðin er spennandi þótt mörg krefjandi verkefni séu framundan. Í stjórnarsátt- málanum eru loftslagsmálin áberandi enda er loftslagsváin það verkefni sem brýnast er í heiminum í dag og næstu ár og áratugi. Fólk hefur áhyggjur og á það sérstaklega við um unga fólkið sem sér framtíð sinni ógnað. Heiminum verður ekki bjargað með því að hafa áhyggjur. Óttinn getur haft lamandi áhrif. Þess vegna er sá tónn sem sleginn er í nýjum stjórnarsáttmála tónn vonar og bjartsýni. Við ætlum að nýta þær einstöku aðstæður sem við búum við á Íslandi, þá þekkingu sem við höfum á endurnýjanlegum orkugjöfum og þann kraft sem býr í fólki og atvinnulífi til að leysa þau verkefni sem að okkur snúa og gefa öðrum verkfæri til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Við leggjum áherslu á að orku- skiptin eru sameiginlegir hags- munir og að þeim verði náð með jöfnuði og réttlæti að leiðarljósi. Ég hef þá bjargföstu trú að næstu ár verði okkur gjöful á Íslandi. Tækifærin eru víða og ekki síst á landsbyggðinni þar sem þekking og reynsla af höfuðatvinnuvegunum er mest. Nýr dráttarbátur er nýkominn í skagfirska höfn og fyrir dyrum stendur uppbygging hafnar- innar svo eitthvað sé nefnt. Í stjórnarsáttmálanum er sleginn nýr tónn þegar kemur að uppbyggingu atvinnutækifæra hringinn í kringum landið. Það á einnig við um hið opinbera en síðustu fjögur árin hefur hugmyndin um störf án staðsetningar náð miklu flugi enda mikilvægur þáttur í því að gefa fólki aukna möguleika á því að velja sér hvar það vill búa. Í stjórnarsáttmálanum segir að „til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega.“ Þessi orð marka að mörgu leyti tímamót í viðhorfi til starfa hjá ríkinu. Ekki er talað um störf án staðsetningar sem sérstakt atriði heldur er hugsuninni snúið við: sérstaklega þarf að rökstyðja að störf séu staðbundin. Þetta er stórt mál. Einnig ætlum við að styðja við klasasamstarf hins opinbera og einkaaðila til að búa til starfsaðstöðu á lykilstöðum á landinu en fyrsta verkefnið af þessu tagi er að hefjast á Selfossi. Lesandi góður, ég vona að aðventan verði þér góð og að þú njótir jólahátíðarinnar með þínum nánustu. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og innviðaráðherra. Stillt upp fyrir myndatöku með eyjarnar fögru í baksýn. AÐSEND MYND VÉLAVERKSTÆÐI Molduxar

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.