Fréttablaðið - 09.08.2022, Síða 1
1 6 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 9 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Tónlistarlegur
hvalreki
Már og Max á
þurru Englandi
Lífið ➤ 16 Lífið ➤ 18
n Getum safnað talsverðu sparifé
n Getum safnað svolitlu sparifé
n Endar ná saman með naumindum
n Notum sparifé til að ná endum saman
n Söfnum skuldum
49%
16%
24%
5% 5%
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/id5
Alrafmagnaður
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll
Verð frá 7.690.000 kr.
UMHVERFISMÁL Sérfræðingar hafa
vanmetið líftölur íslenska lundans,
ef marka má niðurstöður umfangs-
mikilla endurútreikninga síðan í
vor.
Þá bendir margt til þess að kísil-
skortur í hafi seinki tímasetningu
vistkerfa sem leiðir til hruns í stofn-
um sem treysta á rauðátuna, sem
nærist á kísilþörungum. SJÁ SÍÐU 4
Kísilskortur í hafi
ógnar lundanum
Dr. Erpur Snær
Hansen, líf-
fræðingur hjá
Náttúrustofu
Suðurlands
Samkvæmt nýrri könnun
safna 10 prósent landsmanna
skuldum eða þurfa að ganga á
eigið sparifé til að ná endum
saman. Staðan er verri á
landsbyggðinni en höfuð-
borgarsvæðinu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FJÁRMÁL Fjárhagur er erfiður hjá
þriðjungi heimila samkvæmt nýrri
könnun Prósents. Hjá 24 prósentum
ná endar með naumindum saman
um hver mánaðamót en 10 prósent
safna skuldum eða þurfa að ganga á
eigið sparifé til að ná endum saman.
Hjá tekjulægsta hópnum, með
undir 400 þúsund krónur í laun, eru
77 prósent í þessari stöðu og þar af
46 prósent í mínus.
Þriðjungur heimilanna á ekki afgang
43 prósent af þeim sem hafa
tekjur á bilinu 400 til 800 þúsund
krónur eru á núlli um hver mánaða-
mót og 15 prósent þeirra í mínus.
Staðan er áberandi verst á Reykja-
nesi. Þar eru 57 prósent íbúa annað
hvort á núllinu eða í mínus um hver
mánaðamót. Í heildina litið er fjár-
hagur heimila verri á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu, og
er munurinn 8 prósent. Í tveimur
landshlutum mældist fjárhagurinn
þó betri en á höfuðborgarsvæðinu,
það er á Vesturlandi og Austurlandi.
Munurinn á fjárhagsstöðu eftir
kynjum mældist ekki jafn mikill
og munurinn eftir búsetusvæðum.
Fleiri konur eru þó í fjárhagserfið-
leikum og er sá munur 3 prósent.
Nærri helmingur svarenda könn-
unarinnar, það er 49 prósent, sögð-
ust geta safnað svolitlu sparifé um
hver mánaðamót. 16 prósent sögð-
ust geta safnað talsverðu sparifé.
Af þeim sem eru í efsta tekju-
hópnum, með heimilistekjur upp
á 1,5 milljón krónur eða meira, eru
88 prósent með afgang um hver
mánaðamót, 42 prósent talsverðan.
Þegar litið er til aldurs er fólk
á aldrinum 55 til 64 ára í bestri
stöðu. 77 prósent þess á afgang um
hver mánaðamót. Staðan er áþekk
í öðrum aldurshópum nema þeim
yngsta, 18 til 24 ára. Þar voru fáir
á núllinu um hver mánaðamót en
margir sem annað hvort geta safnað
talsverðu sparifé eða skuldum.
Könnunin var netkönnun fram-
kvæmd 28. júlí til 4. ágúst. Úrtakið
var 1.750 og svarhlutfallið 53,5 pró-
sent. n
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína að eldgosinu í Meradölum í gær þrátt fyrir að svæðinu hefði verið lokað vegna veðurs. Mörg dæmi voru um að fólk væri með börn með í för, væri illa búið og hundsaði
tilmæli björgunarsveitafólks og lögreglu um að fara ekki að gosinu. Fjöldi fólks neyddist til að snúa við og aðrir þurftu á aðstoð að halda. SJÁ SÍÐU 2. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK