Fréttablaðið - 09.08.2022, Side 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Þórunn Högna, stílisti og fagurkeri
með meiru, hefur ávallt gaman af
því að hafa fallegt í kringum sig
og sér fegurðina í hverri árstíð,
hátíða- og tyllidögum og viðburð-
um. Þá fer hún af stað og undirbýr
eitthvað dásamlegt, hvort sem
það eru kræsingar, umgjörð eða
skreytingar.
Missir sig í skreytingum
„Ég hef alla tíð haft gaman af því að
nostra í kringum í mig en ástríðan
fyrir matar- og kökukræsingum
kviknaði fyrir um það bil tíu árum.
Og magnaðist upp eftir að ég
eignaðist Leuh Mist, þá fór ég alveg
alla leið og hef eiginlega síðan þá
misst mig í öllum afmælum og
öðrum veislum. Ég spái mikið í
hvernig ég ætli að stílisera bæði
matinn og annað borðskraut og
er alltaf með eitthvað þema. Ég fer
bara á flug þegar ég byrja, ég hrein-
lega elska þetta,“ segir Þórunn.
Þórunn útbjó dásamlegt nesti
sem er fullkomið fyrir hvaða pikk-
nikk-ferð sem er þegar metnaður-
inn á að vera við völd. „Fyrir þetta
pikknikk á pallinum ákvað ég að
vera með svart, hvítt og náttúr-
legt og allar kræsingar á svörtum
bökkum og kökudiskum.“
Nesti í bíltúrinn
Yfir verslunarmannahelgina naut
fjölskyldan samverustunda við
hlaðborð kræsinga bæði í sveitinni
sem og heima við. „Við vorum í
sumarbústaðnum okkar, en síðan
hittum við stórfjölskylduna í
sveitinni okkar á Hörgslandi á Síðu
og nutum saman. Svo þurfti líka að
dytta að ýmsu heima og gott að fá
svona langa helgi.“
Þórunn segist stundum undir-
búa ljúffengt nesti til að njóta, fyrir
bíltúrinn eða lengri ökuferð en
þessa dagana sé það sumarbústað-
urinn sem þau nýta sem mest fyrir
stundir með kræsingar.
„Við förum ekki oft í „road trip“
núna, en gerðum meira af því áður
en við eignuðumst bústaðinn. Þá
var ég alltaf með eitthvað nesti í
tösku. Oftast nær var stoppað við
foss og borðað og notið.“
Þórunn deilir hér með lesendum
sælkeranesti sem erfitt er að stand-
ast. Hér eru á ferðinni ljúffengir
sælkeraréttir sem bornir eru fram
á fallegan hátt fyrir bæði auga og
munn. Það má með sanni segja að
matur sé mannsins megin. n
Ekki amalegt
að setjast við
veisluborð á
pallinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Til upplýsingar fyrir þá sem vilja setja upp svona fallegt borð þá fékk Þórunn blómin í Blómavali,
diskar, servíettur, rör, glös fyrir blóm, krukkur og blómalengjur eru frá Confettisisters og bakk-
arnir frá Magnolia. Fremst er snakk í bréfpokum.
Beikonvafðar kokteilpylsur sem velt hefur verið upp úr tómatsósu hitta í
mark hjá yngri kynslóðinni. Þær eru hitaðar á pönnu.
Þriggja hæða Nutella-kaka sem bráðnar í munni. Krakkar elska þessa. Hér þarf einungis svamp-
botna, hægt er að vera með tvo en Þórunn notaði þrjá svampbotna, einn lítra af rjóma, eina krukku
Nutella-súkkulaði og skreytti og bragðbætti með jarðarberjum, bláberjum og brómberjum.
Girnilegar beyglur með Philadelphia-osti, hráskinku, basilíku og tómötum.
Pestó-salat með tómötum, ferskri basilíku og mozzarella-osti.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Ég spái mikið í
hvernig ég ætli að
stílisera bæði matinn og
annað borðskraut og er
alltaf með eitthvað
þema. Ég fer bara á flug
þegar ég byrja, ég hrein-
lega elska þetta.
2 kynningarblað A L LT 9. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR