Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 26. apríl 2022
Auglýsendur athugið
SÉRBLAÐ
B A
BLAÐ
Páll Vilhjálmsson blaðamaður
þekkir nokkuð til í bæjarpóli-
tíkinni á Seltjarnarnesi því að
hann var í forystu
fyrir Samfylk-
inguna þar á árum
áður. Í færslu á
blog.is í gær bendir
hann á að „Viðreisn
og Píratar eru
systurflokkar á
Seltjarnarnesi. Það
má bara ekki segja það upphátt.
Sameiginlegur listi þessara
tveggja flokka á Nesinu heitir
Framtíðin.
- - -
Á heimasíðu Pírata segir á hinn
bóginn: „Björn Gunnlaugsson
verður oddviti Pírata á Seltjarnar-
nesi en Píratar bjóða þar fram í
samstarfi við Viðreisn og óháða.“
- - -
Hvers vegna koma Píratar og
Viðreisn ekki hreint fram og
kenna framboðslistann við flokk-
ana sem standa að framboðinu?
- - -
Atkvæðaveiðar undir fölsku
flaggi eru hvorki til marks
um gagnsæi né virðingu fyrir kjós-
endum.“
- - -
Spurningar Páls eiga fullan rétt
á sér en svarið er sennilega
það að þessir flokkar kenna fram-
boðið ekki við flokkana vegna þess
að þeir telja þá tengingu ekki
framboðinu til framdráttar.
- - -
Um leið eru þeir auðvitað að
gera kjósendum erfiðara fyr-
ir að leggja mat á þá kosti sem eru
í boði.
- - -
Þetta á við víðar en á Seltjarn-
arnesi og getur verið skiljan-
legt í smærri sveitarfélögum, en
Viðreisn, Píratar og Samfylking
virðast eiga góða samleið víða án
þess að vilja vekja á því athygli.
Páll Vilhjálmsson
Feluframboðin
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Með sölu á 22,5% hlut ríkissjóðs í Ís-
landsbanka, sem skilaði ríkissjóði
52,7 milljörðum króna, gefst aukið
svigrúm til fjárfestingar í innviðum
samfélagsins. Slíkt er raunar í sam-
ræmi við inntak stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarflokkanna þar sem lögð
er áhersla á að nýta þá fjármuni til
uppbyggingar innviða samfélagsins.
Þetta segir í bókun bæjarstjórnar
Stykkishólms sem ræddi málið á
fundi sínum í síðustu viku.
Bæjarstjórnin gerir þá kröfu í
bókun sinni að hluti fjármuna sem
fengust með sölunni á Íslandsbanka
hf. verði nýttur til samgöngumála.
Þar sé margt nú í ólagi. Þar er sér-
staklega tiltekinn Skógarstrandar-
vegur og að endurnýja þurfi Breiða-
fjarðarferjuna Baldur.
Grunninnviðir sem séu í óboðlegu
ástandi á alla mælikvarða eigi að
vera í forgangi við ráðstöfun fjár-
muna. Umrædd mál séu til að mynda
forgangsatriði í samgönguáætlun
Vesturlands. Þá hafi í kosningum
fyrir skemmstu, þar sem sameining
Helgafellssveitar og Stykkishólms-
bæjar var samþykkt, verið rætt um
áðurnefnd mál. Úrbætur á þeim séu
að nokkru leyti forsenda sameining-
ar sveitarfélaganna. Forgangsröðun
ríkisstjórnar í innviðamálum á land-
inu eigi að taka mið af því. sbs@mbl.is
Bankasala borgi fyrir nýjan Baldur
- Stykkishólmur - Íslandsbankafé fari
í innviði - Svigrúm er til fjárfestinga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferja Endurnýja þarf Baldur sem er
í daglegum Breiðafjarðarferðum.
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir í samtali við Morgunblaðið að
sambandinu hafi yfirsést afleiðingar
breyttra reglna um hæfi kjörstjórn-
armanna er kosningalögin voru í um-
sagnarferli.
Kosningalögin voru samþykkt á
síðasta þingi og tóku gildi um ára-
mótin. Reynir því í fyrsta skipti á þau
í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Fulltrúi í kjörstjórn má ekki eiga
maka, fyrrverandi maka, núverandi
eða fyrrverandi sambýlismann eða
-konu, foreldri, barn, systkin, mág
eða mágkonu sem eru í framboði. Þá
ná nýju reglurnar líka yfir systkina-
börn, barnabörn, afa, ömmu og
systkini foreldra.
„Ég verð bara að viðurkenna að af-
leiðingar þess fóru framhjá okkur.
Það voru einhver sveitarfélög sem
gerðu athugasemdir en í umsögn
sambandsins hefur þetta farið
framhjá okkur, að þetta myndi hafa
svona mikil áhrif,“ segir Aldís.
Hún segir það ekki vera spurningu
að það þurfi að breyta lögunum.
„Það þarf að taka þetta til endur-
skoðunar. Þetta er alltof víðtækt,“
segir Aldís og nefnir til dæmis að í
Reykjavík séu hátt í 500 manns í
framboði sem þýði að vanhæfið verði
svo víða.
Þá hafi þetta einnig mikil áhrif í
smærri sveitarfélögum þar sem færri
búa.
„Þetta er komið langt út fyrir þau
ákvæði sem sett voru í sveitarstjórn-
arlögum,“ segir hún og bætir við að í
sveitarstjórnarlögum séu tilgreind
ákvæði um vanhæfi.
SÍS yfirsást afleið-
ingar breytinganna
- SÍS gerði ekki at-
hugasemd í umsögn
um málið á sínum tíma
Formaður Aldís Hafsteinsdóttir.