Morgunblaðið - 11.04.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 11.04.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur • Vesti • Kjólar Peysur • Bolir • Jakkar Blússur • Buxur VORVÖRUR Vinsælu velúrgallarnir Alltaf til í mörgum litum og í stærðum S-4XL Einnig stakar svartar velúrbuxur Velferðarsjóðurinn Vinátta í verki, í samvinnu við Grænlandsvini í Kalak og Veraldarvini, auk fjölda íslenskra og grænlenskra fyrirtækja og fé- laga, standa fyrir hátíð á Grænlandi um páskana. Hún fer fram í einu af- skekktasta þorpi Grænlands, Ittoqqortoormiit á austurströndinni. Á dagskránni verða m.a. skákmót, sirkuslistir, tónleikar og listasmiðj- ur. Skákfélagið Hrókurinn stóð fyrir árlegum hátíðum í Ittoqqortoormiit á árunum 2007-2019 og er það Grænlandsvinum mikið ánægjuefni að hátíðin skuli nú endurvakin eftir tveggja ára hlé. Gleðistundir fyrir börnin Leiðangursmenn eru Axel Diego, sirkuslistamaður og margreyndur Grænlandsfari með Hróknum, Linus Orri Gunnarsson Cederborg, tónlist- armaður, skákmaður og sirkuslista- maður, og hin bandaríska Sage Sov- ereign sem sögð er ein fremsta sirkuslistakona samtímans. Hátíðin hefst í dag og stendur til 20. apríl. Bakhjarlar hátíðarinnar eru sveitarfélagið Sermersooq, Nor- landair, Air Greenland, Tusass, Brim hf., Fulltingi, Bónus, Hagkaup, Extrakaup, Forlagið, Margt smátt, Penninn, Krumma, Ásgarður og ís- lenskar prjónakonur og aðrir vel- unnarar grænlenskra barna. Skipu- leggjandi er Hrafn Jökulsson. Meginmarkmið hátíðarinnar er að skapa gleðistundir fyrir börn, ung- menni og aðra íbúa í Ittoqqortoormi- it. Leið Hróksins lá þangað fyrst fyr- ir 15 árum og Ittoqqortoormiit er mesta skákþorp Grænlands og jafn- framt það þorp þar sem ísbirnir gera sig oftast heimakomna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu um hátíðina. Grænland Hátíðin um páskana verður haldin í einu afskekktasta þorpi Grænlands, Ittoqqortoormiit á austurströndinni. Stundum nefnt Scoresbysund. Vinátta í verki á Grænlandi Páskar Markmið hátíðarinnar er að skapa gleðistundir fyrir börnin í þorpinu, sem fá m.a. páskaegg frá Íslandi. Skák Mikill áhugi er á skák á Grænlandi, sem þakka má átaki Skákfélagsins Hróksins og Grænlandsvina. - Skák, sirkus, tónlist og myndlist á dagskrá hátíðar á Grænlandi um páskana - Fjölmargir íslenskir aðilar standa að hátíðinni - Hrókurinn átti frumkvæðið Lárus Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri og fv. atvinnumaður í knattspyrnu, er efstur á lista Mið- flokksins í Garðabæ fyrir komandi kosn- ingar. Í öðru sæti er Íris Kristina Óttarsdóttir markaðsfræðingur og Snorri Mar- teinsson atvinnurekandi skipar þriðja sætið. Elena Alda Árnason hagfræðingur er í fjórða sæti og Haraldur Ágúst Gíslason ferða- þjónustubóndi í því fimmta. Heið- urssæti listans skipar fv. bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins, Sigrún Aspelund. Fyrir helgi var í blaðinu greint frá því að Karen Elísabet Halldórs- dóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi, myndi leiða Miðflokkinn þar í bæ. Allur listinn hefur verið birtur og er söngvarinn Geir Ólafsson í öðru sæti. Lárus Guðmundsson Lárus leiðir Mið- flokkinn í Garðabæ Karl Pétur Jóns- son, bæjar- fulltrúi Viðreisnar/Nes- listans á Sel- tjarnarnesi, skip- ar efsta sæti á nýjum lista Framtíðarinnar á Seltjarnarnesi. Listann skipa 14 Seltirningar sem eru „sammála um að stöðnun hafi ríkt í sveitarfélaginu,“ eins og það er orðað í tilkynningu. Ætlar fram- boðið að koma rekstri bæjarins í jafnvægi, bæta þjónustu við börn og gera umhverfi bæjarins „skemmti- legra og heilsusamlegra“. Í öðru sæti listans er Áslaug Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri og Björn Gunnlaugsson kennari í því þriðja. Katrín Pálsdóttir hjúkr- unarfræðingur skipar heiðurssæti Framtíðarinnar. Karl Pétur efstur á lista Framtíðarinnar Karl Pétur Jónsson 2022 Við opnun yfirlitssýningar Errós í Listasafni Reykjavíkur sl. laugar- dag afhenti listamaðurinn Fjólu Ingþórsdóttur myndlistarkonu við- urkenningu úr Listasjóði Guð- mundu. Erró stofnaði Guð- munduverðlaunin árið 1997 til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur. Styrkur úr sjóðnum er veittur framúrskarandi listakonu, að jafn- aði árlega, og er ætlað að vera hvatning til dáða á sviði mynd- listar. Upphæðin, ein milljón króna, er ein hæsta viðurkenning sem veitt er á sviði myndlistar á Íslandi. Þetta var í 22. sinn sem styrkurinn er veittur. Gagnvirk verk og þátttaka Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, sem er fædd 1976, er menntuð í mynd- list og listasögu frá Listaháskóla Íslands og háskólanum í Árósum í Danmörku. Í sköpun sinni fæst Ingunn við ýmsa miðla eins og mál- verk, vefnað og innsetningar. Verk hennar fela oft í sér gagnvirkni eða beina þátttöku og hafa þau verið sýnd víða í galleríum og söfnum á Íslandi. Má þar nefna Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands og Hafnarborg. Ingunn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga erlendis og margt spennandi er á döfinni í starfi hennar – svo sem einkasýn- ing í Listasafni Íslands sem opnuð verður í maí nk. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Listamaður Fjóla Ingþórsdóttir með viðurkenningu og Erró í bakgrunni. Fjóla fékk Guð- munduverðlaun - Viðurkenning Errós - Ein millj. kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.