Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 England Norwich – Burnley.................................. 2:0 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Arsenal – Brighton................................... 1:2 Everton – Manchester United ................ 1:0 Southampton – Chelsea ........................... 0:6 Watford – Leeds....................................... 0:3 Aston Villa – Tottenham.......................... 0:4 Brentford – West Ham ............................ 2:0 Leicester – Crystal Palace ...................... 2:1 Manchester City – Liverpool .................. 2:2 Staða efstu liða: Manch. City 31 23 5 3 72:20 74 Liverpool 31 22 7 2 79:22 73 Chelsea 30 18 8 4 64:23 62 Tottenham 31 18 3 10 56:37 57 Arsenal 30 17 3 10 45:36 54 West Ham 32 15 6 11 51:42 51 Manch. Utd 31 14 9 8 49:42 51 Wolves 32 15 4 13 33:28 49 Crystal Palace 31 8 13 10 43:40 37 C-deild: Bolton – Sheffield Wednesday............... 1:1 - Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 56 mín- úturnar með Bolton. Þýskaland C-deild: Dortmund II – Viktoria Berlín .............. 0:1 - Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leik- inn með Dortmund. Ítalía B-deild: Perugia – Pisa.......................................... 1:1 - Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 79 mín- úturnar með Pisa. C-deild: AlbinoLeffe – Virtus Verona ................. 0:0 - Emil Hallfreðsson lék fyrstu 78 mínút- urnar með Verona. Frakkland B-deild: Niort – Nimes........................................... 0:0 - Elías Már Ómarsson kom inn á hjá Ni- mes á 80. mínútu. Quevilly Rouen – Rodez.......................... 2:0 - Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með Rodez. Rússland Khimki – CSKA Moskva ......................... 4:2 - Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA. Rúmenía Universitatea Craiova – Cluj ................. 3:2 - Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á hjá Cluj í uppbótartíma. Belgía Gent – OH Leuven ................................... 5:0 - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Leuven. Danmörk Silkeborg – Bröndby............................... 3:0 - Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 71 mínútuna hjá Silkeborg. SönderjyskE – OB ................................... 2:2 - Atli Barkarson var allan tímann á bekknum hjá SönderjyskE og Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í hópnum. - Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn með OB. B-deild: Horsens – Fredericia .............................. 0:0 - Aron Sigurðarson lék fyrri hálfleikinn með Horsens. Bandaríkin Inter Miami – New England................... 3:2 - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 57 mínúturnar með New England og lagði upp mark. Houston Dynamo – SJ Earthquakes ..... 4:3 - Þorleifur Úlfarsson kom inn á hjá Hou- ston á 71. mínútu. Svíþjóð Degerfors – Häcken ................................ 1:2 - Valgeir Lunddal Friðriksson lék fyrstu 86 mínúturnar með Häcken. AIK – Norrköping ................................... 1:0 - Ari Freyr Skúlason lék fyrri hálfleikinn með Norrköping en Jóhannes Kristinn Bjarnason var ekki í hópnum. B-deild: Öster – Brage........................................... 1:2 - Alex Þór Hauksson lék fyrstu 68 mín- úturnar með Öster. Dalkurd – Trelleborg.............................. 2:0 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Trelleborg. Noregur Sandefjord – Bodö/Glimt ....................... 1:2 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Viking – Aalesund ................................... 1:0 - Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan leikinn með Viking en Samúel Kári Frið- jónsson var allan tímann á bekknum. EM U19 kvenna Milliriðill á Englandi: England – Ísland ...................................... 2:0 Undankeppni HM kvenna H-riðill: Þýskaland – Portúgal............................... 3:0 _ Þýskaland 21, Serbía 15, Portúgal 13, Tyrkland 10, Ísrael 0, Búlgaría 0. 50$99(/:+0$ Fram tryggði sér deildarmeist- aratitil kvenna í handbolta með stæl á laugardag er liðið vann sannfærandi 24:17-heimasigur á Val í toppslag. Valur hefði með sigri farið upp í toppsætið fyrir lokaumferðina en það var aldrei í boði hjá Framkonum sem keyrðu yfir Valsara. Sigurinn hefði getað orðið enn stærri en Fram slakaði aðeins á í lokin þegar úrslitin voru ráðin. Úrslitin gera væntanlega mikið fyrir Fram, rétt fyrir úr- slitakeppnina, en Valur hafði unnið alla þrjá leiki liðanna í vet- ur þar til á laugardag. Valur féll niður í þriðja sætið með tapinu og leikur hreinan úr- slitaleik um annað sætið við ríkjandi Íslandsmeistara KA/Þórs næstkomandi fimmtudag. Þá tryggði ÍBV sér fjórða sætið með 27:27-jafntefli við Hauka en Haukar hefðu með sigri enn átt möguleika á þriðja sætinu í loka- umferðinni. Þess í stað leika Haukar úrslitaleik við Stjörnuna um fimmta sætið. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Safamýri Framkonur fagna deildarmeistaratitlinum á heimavelli eftir sannfærandi sigur á Val í næstsíðustu umferð Olísdeildarinnar á laugardag. Framarar fögnuðu Haukar leika til úrslita um Íslands- meistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir að hafa unnið Val 80:73 í gærkvöldi og þar með 3:0 í einvíginu. Haukar komust skrefi á undan strax í fyrsta leikhluta og létu for- ystuna aldrei af hendi. Varnar- leikur Hauka í leiknum var mjög góður og sóknarleikurinn gekk smurt með Haiden Palmer í broddi fylkingar. Helena Sverrisdóttir sýndi svo mikilvægi sitt þegar mest var undir en hún setti niður mikil- væg vítaskot, ásamt því að ná í dýrmæt fráköst og spila frábæra vörn. Það kemur ekki alveg strax í ljós hverjir andstæðingar Hauka verða í úrslitaeinvíginu en Njarðvík kom sér í kjörstöðu með 72:51 útisigri gegn Fjölni. Njarðvík leiðir nú ein- vígið 2:1 og getur klárað það á heimavelli á miðvikudaginn. Það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í gær en Njarðvík gaf tóninn snemma og komst í 11:2. Forystuna lét liðið aldrei af hendi og sigldi að lokum einstaklega þægilegum sigri í höfn. Deildarmeistarar Fjölnis lenda í vandræðum þegar aðrir leikmenn en Aliyah Mazyck ná sér ekki á strik, eins og gerðist í gær. Sanja Orozovic skoraði bara eitt stig og Dagný Lísa Davíðsdóttir átta svo dæmi sé tekið. Hjá Njarðvík var allt annað uppi á teningnum. Fjórir leikmenn skor- uðu 10 stig eða meira og gekk sóknarleikurinn eins og vel smurð vél mestallan leikinn. Ljóst er að Fjölnir þarf að eiga tvo frábæra leiki ætli liðið sér ekki snemma í sumarfrí. aronelvar@mbl.is Haukar með sópinn á lofti á Hlíðarenda Morgunblaðið/Árni Sæberg Karfa Hildur Björg Kjartansdóttir lék vel fyrir Val í gærkvöldi. HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valur er deildarmeistari karla í handbolta eftir sannfærandi 38:26- útisigur á Selfossi í lokaumferð Ol- ísdeildarinnar í gærkvöldi. Eftir sig- ur á Haukum í toppslag í síðustu um- ferð var ljóst að Valsmönnum nægði sigur á Selfossi og var aldrei spurn- ing hvort liðið færi með sigur af hólmi. „Það var ljóst strax í upphafi leiks að Valur hafði aðeins eitt markmið í dag og fyrirætlanir þeirra gengu auðveldlega upp á móti Selfossliði sem hafði ekki að neinu að keppa,“ skrifaði Guðmundur Karl Sigur- dórsson m.a. um leikinn á mbl.is. Hjá Valsmönnum skoruðu Finnur Ingi Stefánsson, Róbert Aron Hostert og Arnór Snær Óskarsson allir fimm mörk. Valur varð bikarmeistari á dög- unum og er ljóst að lið verða að vinna Val til að verða Íslandsmeistari. Valur byrjar úrslitakeppnina á leik við nágranna sína í Fram en Fram- arar tryggðu sér sæti í úrslitakeppn- inni á kostnað Aftureldingar með 26:23-sigri í Mosfellsbænum. Fram fékk fimm stig í síðustu þremur leikj- unum gegn Stjörnunni, FH og Aftur- eldingu og laumaði sér upp í áttunda sætið. Afturelding vann síðast leik í febrúar og er því komin í sumarfrí. Haukar þurftu að sætta sig við annað sætið, þrátt fyrir nauman 32:31-heimasigur á FH. Haukar koma í fínu standi inn í úrslitakeppn- ina en FH vann aðeins einn leik af síðustu fimm, eftir að hafa verið í mikilli baráttu um deildarmeistara- titilinn. Brynjólfur Snær Brynjólfs- son og Stefán Rafn Sigurmannsson voru markahæstir í liði Hauka með sex mörk hvor. Haukar mæta KA í átta liða úrslit- unum en KA tapaði illa gegn Gróttu á útivelli, 28:33, þar sem Andri Þór Helgason, Akisama Abe og Ólafur Brim Stefánsson skoruðu sex mörk hver fyrir Gróttu. FH mætir Selfossi í átta liða úrslitum. Þá mætast ÍBV og Stjarnan í átta liða úrslitum. ÍBV gulltryggði sér þriðja sætið með 37:33-sigri á föllnu liði HK á útivelli á meðan Stjarnan vann fallna Víkinga á heimavelli, 42:30. Valur fagnaði deildartitlinum - Framarar óvænt í úrslitakeppnina Ljósmynd/Guðmundur Karl Fögnuður Valsmenn eru deildarmeistarar í handbolta eftir sannfærandi útisigur á Selfyssingum í lokaumferð Olísdeildarinnar í gærkvöldi. Bandaríkjamaðurinn Scottie Scheffler bar sigur úr býtum á Masters-mótinu í gærkvöldi, fyrsta risamóti ársins í golfi í karlaflokki. Leikið var á Augusta National í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Scheffler, sem er 26 ára, er í efsta sæti heimslistans, þrátt fyrir að hafa aldrei áður fagnað sigri á risamóti. Besti árangur hans á risamóti fyrir Masters- mótið í ár var fjórða sæti á PGA-meistaramótinu árið 2020. Besti árangurinn á Masters-móti var 18. sæti á síð- asta ári. Scheffler var í toppsætinu fyrir lokadaginn í gær og gaf fá færi á sér. Hann lék lokahringinn á einu höggi undir pari og lauk leik á samanlagt tíu höggum undir pari. Norður-Írinn Rory McIlroy lék best allra í gær eða á átta höggum undir pari og hafnaði í öðru sæti á samtals sjö höggum undir pari. Írinn Shane Lowry og Ástralinn Cameron Smith deila þriðja sætinu á fimm höggum und- ir pari. Fyrsti sigurinn á risamóti Scottie Scheffler _ U19 ára landslið Íslands tapaði 2:0 gegn Englandi í milliriðli EM kvenna í fótbolta í á laugardag. Leikið var á Englandi. Þetta var annar leikur beggja liða í riðlinum. Ísland tapaði einnig fyrsta leik sínum gegn Belgíu og er því án stiga eftir tvo leiki. Eng- land vann Wales í fyrsta leik sínum og er því með fullt hús stiga. Síðasti leikur Íslands í riðlinum er gegn Wa- les á morgun. _ Daníel Jóhannesson og Júlíana Karitas Jóhanns- dóttir urðu Ís- landsmeistarar í einliðaleik í bad- minton á laug- ardag. Daníel hafði betur gegn Róberti Þór Henn í úrslitum í karla- flokki og Júlíana vann Sigríði Árnadóttur í kvenna- flokki. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson urðu Ís- landsmeistarar í tvíliðaleik karla og Anna Karen Jóhannsdóttir og Sig- ríður Árnadóttir urðu Íslandsmeist- arar í tvíliðaleik kvenna. Í tvennd- arleik fögnuðu áðurnefndur Kristófer Darri og Drífa Harðar- dóttir sigri. _ Charles Leclerc frá Mónakó kom fyrstur í mark í Ástralíukappakstr- inum í Formúlu 1 sem fram fór í Melbourne. Leclerc keppir fyrir Ferr- ari en hann tók forystuna strax í byrj- un kappakstursins og lét hana aldrei af hendi. Hinn mexíkóski Sergio Pe- réz á Red Bull kom annar í mark og Bretarnir George Russell og Lewis Hamilton komu þar á eftir en þeir aka báðir fyrir Mercedes. Leclerc er efstur í stigakeppni ökuþóra með 71 stig, Russell í öðru sæti með 37 stig og Carlos Sainz á Ferrari í þriðja sæti með 33 stig. _ Viðar Örn Kjartansson skoraði bæði mörk Vålerenga í 2:1-heimasigri á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Leikurinn var liður í 2. umferð deild- arinnar og voru mörkin þau fyrstu sem Vålerenga skorar á leiktíð- inni og sigurinn sá fyrsti sömu- leiðis. Brynjar Ingi Bjarnason lék fyrri hálfleikinn í vörninni hjá Vålerenga og Viðar fór af velli á 70. mínútu. _ Gerpla hafnaði í fjórða sæti í flokki blandaðra liða á Norð- urlandamóti unglinga í hópfimleikum í Randers í Danmörku á laugardag. Gerpla hlaut 42.000 stig. Höttur varð í sjötta sæti með 37.700 stig. Í stúlknaflokki hafnaði Gerpla í 5. sæti Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.