Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022
Útsölustaðir: Apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Gleðilega meltingu!
u Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll
efnaskipti líkamans.
u Betri melting, meiri orka, betri líðan!
u 100% vegan hylki.
u Digest Basic hentar fyrir börn
„RÓAÐU ÞIG. HANN HEFUR EKKERT Á
OKKUR. HANN ER BARA ALLTAF AÐ REYNA
AÐ FISKA EFTIR EINHVERJU.“
„ÞÚ ÆTLAR ÞÓ EKKI AÐ LÁTA MIG
BORGA FYRIR ÞRIGGJA MÍNÚTNA
KENNSLUSTUND?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara aldrei of
varlega.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EYÐA
GRETTIR, ÉG SETTI UPP APP
Í SÍMANUM HANS JÓNS…
„TRYLLT TÓFÚ“
EINN SMELLUROG ÞÚ FÆRÐ
TÓFÚ-RÉTT SENDAN HEIM!
HVAÐ FINNST
ÞÉR?
ÞAÐ ER AÐ
ÞYKKNA
UPP!
ÞIÐ ENGIL-
SAXAR
HLJÓTIÐ
AÐ HATA
ÞESSAR
STÖÐUGU
REGN-
SKÚRIR!
SUMIR ELSKA RIGNINGARHLJÓÐ EN
MÉR VERÐUR ALLTAF MÁL AÐ PISSA!
Ö
KU
KE
NN
SL
A
VERSLUNARMI
ÐSTÖÐ
INNGANGUR
dóttir, f. 4.3. 1962, sjúkraliði. Þau
búa í Ægisbyggð 24 í Ólafsfirði.
Foreldrar Agnesar: Númi Jóhanns-
son, f. 30.1. 1939, og d. 7.1. 2022,
skipstjóri og Ásgerður Gústafs-
dóttir, f. 4.3. 1944, býr í Ólafsfirði.
Börn Magnúsar og Agnesar: 1)
Númi Magnússon (kjörsonur Magn-
úsar), f. 8.4. 1982, d. 2.1. 2015, sjó-
maður. Stjúpsonur Núma er Aron
Óli Ödduson; 2) Magnús Jón Magn-
ússon, f. 20.1. 1985, grunnskóla-
kennari á Akureyri. Maki: Jónína
Björg Helgadóttir. Börn þeirra eru
Aðalsteinn Óli, Bergvin Ingi og
Númi Þór; 3) Hildur Magnúsdóttir,
f. 30.11. 1986, snyrtifræðingur í
Dalvíkurbyggð. Maki: Ingvar Þór
Óskarsson. Börn þeirra eru Alex-
andra Líf, Guðmundur Árni, Kar-
ítas og Aníta; 4) Alexander Magn-
ússon, f. 25.9. 1991, yfirþjónn á
Strikinu á Akureyri. Maki: Ída
Irene Oddsdóttir. Börn þeirra eru
Íunn og Ýmir.
Alsystir Magnúsar er Aðalbjörg
Ólafsdóttir, f. 1961, húsmóðir og
veitingarekandi í Ólafsfirði. Hálf-
systkini sammæðra eru Helgi Jó-
hannsson, f. 1964 þjónustufulltrúi
við Arion banka í Fjallabyggð, og
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, f.
1969, viðskiptafræðingur og sviðs-
stjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dalvíkurbyggðar. Hálfsystkini sam-
feðra eru Stefán Ólafsson, f. 1964,
matreiðslumaður í Vestmanna-
eyjum, Hörður Ársæll Ólafsson, f.
1969, fiskeldisfræðingur í Vest-
mannaeyjum, og Ragnhildur Ólafs-
dóttir, f. 1973, skólastjóri leikskól-
ann Hnoðraholti í Garðabæ.
Foreldrar Magnúsar: Hildur
Magnúsdóttir, f. 7.2. 1942, d. 25.5.
2019, húsmóðir í Ólafsfirði, og Ólaf-
ur Már Sigmundsson, f. 11.3. 1942,
vélstjóri í Vestmannaeyjum. Stjúp-
faðir Magnúsar og eiginmaður
Hildar er Jóhann Helgason, f. 1.10.
1940, húsasmiður, býr í Ólafsfirði.
Magnús
Guðmundur
Ólafsson
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Ólafsfirði
og á Siglufirði
Jóhann Kristinsson
sjómaður og verkamaður
í Ólafsfirði og á Siglufirði
Jósefína Marsibil Jóhannsdóttir
húsmóðir í Ólafsfirði
Magnús Jón Guðmundsson
sjómaður í Ólafsfirði
Hildur Magnúsdóttir
húsmóðir í Ólafsfirði
Freydís Guðmundsdóttir
húsfreyja í Ólafsfirði
Guðmundur Ólafsson
sjómaður og útgerðarmaður í Ólafsfirði
Elín Oddsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Kristján Jónsson.
trésmíðameistari í
Vestmannaeyjum
Klara Kristjánsdóttir
húsmóðir í Vestmannaeyjum
Sigmundur Karlsson
sjómaður og verkamaður í Vestmannaeyjum.
Sesselja Jónsdóttir
húsfreyja á Eyrarbakka
og Stokkseyri
Guðmundur Karlsson
bóndi og formaður á Eyrarbakka og Stokkseyri
Ætt Magnúsar G. Ólafssonar
Ólafur Már Sigmundsson
vélstjóri í Vestmannaeyjum,
stjúpfaðir Magnúsar er
Jóhann Helgason húsasmiður
Maðurinn með hattinn skrifar á
Boðnarmjöð: „5,7 þús. með-
limir hér á Boðnarmiði og engum
þeirra líkar kveðskapur minn. Svo
sjálfsálitið minnki ekki meira er
best að kveðja þessa samkundu.“
Ég er varla vinsæll hér,
vísurnar það segja.
Finnst nú ráð að forða mér,
fara burt og þegja
Daníel Viðarsson svarar:
Þú munt verða vinsæll hér
vísan mér það segir
farðu ekki að forða þér:
ferlegt ef þú þegir
Enn orti Maðurinn með hattinn:
Þó ástandið sé ekki gott
og árans pestin skrokkinn þjaki,
veikindum skal víkja á brott
með vænum slurk af koníaki.
Guðmundur Arnfinnsson orti á
föstudag um það sem hann sá fyrir
utan gluggann:
Sólin skín á gluggans gler,
glatt nú þröstur syngur
dátt á grein og dillar sér,
dagsins ljóðsnillingur.
Friðrik Steingrímsson yrkir „upp
úr þurru“:
Oft ég tala manna mest
margt ég þarf að segja,
en mér fer þó allra best
yfirleitt að þegja.
Björn Ingólfsson svarar:
Með játning þína, vinur, verður
varlega að fara.
En fyrst að þú ert þannig gerður
þegiðu þá bara.
Þórunn Hafstein:
Öðruvísi það áður var,
ekkert mátti segja.
Nú „heitar“ sjóða sögurnar
og sjaldan hægt að þegja.
Björn Ingólfsson yrkir:
Hann Sámur var geltinn í gær.
Á gamalær rauk hann tvær
og elti þær heim.
Þá var hundur í þeim
en rakkinn var orðinn ær.
Magnús Halldórsson skrifar „6
stiga frost kl. 6 að morgni, napurt“:
Hugar lítt að hreiðurgerð,
hnípinn fugl á vappi.
Blínir á snjallúr, bætir ferð,
berlæraður kappi.
Hlymrekur handan orti:
Í Botni var Borðeyrar-Stjana
og bjó við sín hænsni að vana.
Það var oftastnær frí,
hana undraði á því
hversu örfáa langaði í hana.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dagsins ljóðsnillingur