Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 JANÚAR 2015 Hann handfjatlaði bækurnar með sömu lotningu og prestur opnaði Biblíuna í predikunarstólnum. Um morguninn hafði ég bónað leðrið þar til það gljáði sem silki og fingur hr. Pumpherstons snertu það á sama hátt og fiðrildi sitt útvalda blóm. Það var eins og hann malaði af ánægju við snertinguna. Gesturinn lagaði á sér gleraugun áður en hann tók að fletta og auðséð var að hrifning hr. Pumpherstons var ósvikin. Augustus Muir, The Intimate Thoughts of John Baxter, Bookseller (Methuen & Co., London 1942) Þegar Augustus Muir skrifaði gamansama ævisögu Johns Baxter, er íhugunarefni hvort honum hafi verið fyllilega ljóst að einmitt þetta er það besta við að selja bækur og sennilega við bókasöfnun líka – að finna og hand- fjatla eitthvað sjaldgæft og merkilegt. Einu sinni átti ég tveggja binda út- gáfu af Antiqui- ties of Scotland eftir Francis Grose. Í augum kaup- andans var það merkilegasta bók sem til var. Grose og Robert Burns kynntust árið 1798 og urðu vinir. Grose bað Burns að skrifa yfirnátt- úrlega sögu með teikningu af Auld Alloway Kirk í Antiquities of Scot- land, bók sem hann var þá að afla efn- is í. Þannig varð til eitt besta ljóð Burns, Tam o’ Shanter. Þótt það hefði komið fram á tveimur öðrum stöðum áður var Antiquities of Scot- land fyrsta bókin sem það birtist í. Hún er ekkert óskaplega verðmæt (síðast seldi ég hana á 340 pund) en er afar merkileg í augum aðdáenda Burns, að hluta til vegna þess að Burns hefði kannski aldrei samið Tam o’ Shanter nema fyrir áeggjan Grose. Sá sem ég seldi bókina hafði ferðast norðan frá Ayr eftir að vinur hans sagði honum að ég ætti til ein- tak. Það var ekki fyrr en hann hafði borgað að hann sagði mér frá teng- ingunni við Robert Burns. Hefði hann ekki gert það væri mér líklega ókunnugt um hana enn þann dag í dag. Hið kaldhæðnislega við starf mitt er að þótt ég sé alla daga um- kringdur bókum hef ég þekkingu mína á þeim að mestu frá kúnnunum, því sama fólki og ég vil fyrir alla muni að tali sem minnst. Lýsing Muirs á handfjötlun hr. Pumpherstons á bókinni er rökrétt: Fólk sem umgengst sjaldgæfar bæk- ur tekur greinilega á þeim á sérstak- an hátt, styður við spjöldin þegar það opnar þær, togar ekki efst í kjölinn þegar fólk tekur þær úr hillu. Þegar maður hefur verið innan um sjald- gæfar bækur um tíma verður maður mjög næmur fyrir slæmri meðferð á þeim. Ánægjan við að fara höndum um bækur sem hafa áunnið sér sess sem merkilegar á sviði menningar eða vís- inda er óneitanlega það sem mest yndi má hafa af í starfsgrein minni. Fáar aðrar greinar bjóða upp á jafn mörg tækifæri til að njóta slíks. Þess vegna kvíði ég því ekki á morgnana að dagurinn verði leiðinlegur og við- burðalaus heldur vænti ég þess að fá ef til vill tækifæri til að handfjatla eintak af verki sem kveikti hugmynd og breytti gangi sögunnar, hvort sem væri The Rights of Man frá 1791, enska þýðingin á Das Kapital frá 1887 eða gömul útgáfa af Uppruna tegundanna frá 1859 eftir Darwin. Um slíkt snýst málið. FIMMTUDAGUR 1. JANÚAR Netpantanir: Fundnar bækur: Lokað á nýárs- dag. Eftir góðan morgunblund hjólaði ég til Callums vinar míns í árlega ára- mótagleði hans um hádegið. Þaðan fór ég um þrjúleytið til að missa ekki dagsbirtuna á heimleiðinni, kveikti upp í arninum í sófakróknum mínum og fór að lesa Ungfrú einmana eftir Nathaniel West. Mér var bent á hana af kúnna sem hafði keypt aðrar bæk- ur sem ég hafði líka notið þess að lesa. FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR Netpantanir: Lokað Fundnar bækur: Morgunninn fór í að taka til. Síðan fór ég í stutta gönguferð við Rigg- víkina í roki og rigningu með Callum og austurrískri kærustu hans, Petru, rétt fyrir myrkur. Í því að ég gekk frá bílnum að búðinni flugu gæsirnar yfir Wigtown til næturgistingar á salt- sléttunum undir hæðinni sem bærinn stendur á. Þessi sjón og hljóðið hefur alltaf áhrif á mann, þegar þúsundir kvakandi fugla í fullkomnu oddaflugi hverfa inn í rökkrið í rökum miðs- vetrarkuldanum. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR Netpantanir: 10 Fundnar bækur: 10 Eðlilegur vinnutími á ný eftir að hafa opnað kl. tíu í viku, ekki níu eins og venjulega. Grár dagur en þó ekki rok og rigning lengur. Að hátíðirnar séu að baki sést alltaf á snöggri fækk- un viðskiptavina en í dag var tóm- leikatilfinningin minni af því fyrsti kúnni dagsins var Jeff Mead. Hann er prestur skosku kirkjunnar í Kirk- inner-sókn hér skammt frá og fram- komu hans á opinberum vettvangi er líklega best lýst með orðum Finns vinar míns sem sagði eitt sinn: „Jeff líður betur með að grafa fólk en gifta það.“ Það stangast hins vegar á við þann óopinbera sem er prakkari, fyndinn og skarpgreindur, auk þess að hafa formlega guðfræðimenntun. Hann er að nálgast eftirlaunaaldur og er stór og mikill maður á allan hátt. Skömmu eftir að ég keypti búðina, árið 2001, kom hann inn til að skoða sig um. Ég hafði keypt stóra beina- grind sem ég ætlaði að hengja upp í loftið (ég veit ekki af hverju en hún er þar enn og leikur á fiðlu) en til bráða- birgða sat hún í stól við arininn í setu- stofu búðarinnar með eintak af Rang- hugmyndin um Guð eftir Richard Dawkins í kjúkuberum höndunum. Ég heyrði skellihlátur að innan og svo kom Jeff fram og tilkynnti: „Ein- mitt svona vil ég finnast þegar sú stund rennur upp.“ Um ellefuleytið hringdi kona frá Ayr. Hún er með bækur sem hún vill fá mig til að skoða í næstu viku. Í morgunfréttum sagði frá fjórum mönnum sem fjarlægðir voru úr bókabúð í Hong Kong fyrir að lof- sama ritverk sem gagnrýndi kín- versk yfirvöld. Bóksala getur verið viðsjárverð starfsgrein en sem betur fer er það eingöngu fjárhagslegt spursmál í Wigtown. Svo bar við að ég fann allar tíu netpantanir dagsins og það má teljast kraftaverk. Flestar voru þær nýlega innskráðar og úr safni manns sem kom með fjóra kassa rétt fyrir jólin. Mary, vinkona mín, sem er forn- sali, kom með kassa af barnamyndum og uppstoppuðum greifingja sem ég stillti upp til sölu á 100 pund. Callum og kærastan Petra komu um hádegið og spurðu hvort ég ætl- aði í viskísmökkun klukkan fjögur í Beltie Books. Ég sagðist sjá til, það færi eftir annríkinu í búðinni. Um hálffjögur hafði enginn komið í klukkutíma og ég var að íhuga að loka og fara og sötra viskí hjá And- rew þegar um það bil 20 manns um þrítugt komu inn. Allir keyptu bækur. Sala samtals 136,50 pund 10 viðskiptavinir MÁNUDAGUR 5. JANÚAR Netpantanir: 7 Fundnar bækur: 7 Annar grár dagur og annað krafta- verk. Ég fann allar pöntuðu bæk- urnar. Patrick frá Sögublöðum kom til að taka staflann okkar af sendingum til útlanda sem safnast hafði upp yfir hátíðirnar. Við sendum innanlands með Royal Mail en til útlanda eru burðargjöldin lægri hjá Sögublöðum svo við fljótum með þeim þar. Petra leit inn til að spyrja hvort hún mætti kenna magadans í stóru stofunni uppi. Ég veit ekki hversu mikil aðsókn er í slíkt en ég sagði að henni væri velkomið að nota stofuna á föstudagsmorgnum. Viðskiptavinur bað mig um nafn- spjald en ég fann það hvergi. Það er meira en ár síðan ég var beðinn um það síðast. Hugmyndin er fallega gamaldags í hraða nútímatækninnar. Þegar ég keypti búðina skildu við- skiptavinir nafnspjöld sín iðulega eft- ir, einkum aðrir bóksalar, en slíkt gerist ekki lengur. Þýsk hjón á sextugsaldri gröms- uðu í meira en klukkutíma. Konan keypti eintak af ævisögu Jane Austen eftir David Cecil. Þegar hún borgaði, sagði hún: „Indælt að hitta þig loks- ins,“ sem hljómaði ögn undarlega þar til hún skýrði ástæður komu þeirra til Wigtown. Hún hefði lesið bók Önnu, kærustunnar minnar, sem fjallar að hluta til um Wigtown (og mig). Skömmu eftir að þau fóru kom maður í appelsínugulum vinnugalla sem keypt hafði eintak af bók Önnu, Three Things You Need to Know about Rockets viku áður. Hann hafði heillast svo af tilvísunum hennar í Moby Dick að hann þurfti að kaupa þá bók líka. Tom leit inn til að ræða hugmynd sem Anna setti fram – um Höfunda- hús. Hún vill stofna félag um að kaupa og breyta húsnæði við torgið í eins konar sköpunarmiðstöð, með námskeiðum í ritlist, leshópum og teikningu, í tengslum við Spring Fling (árlega listahátíð á svæðinu í júní). Nú vill Tom halda hugmynda- fund hér í búðinni en var ekki viss um hverja hann ætti að boða. Ég lét hann fá nokkur nöfn. Fundurinn verður hér í stóru stofunni sem við gerum að athvarfi rithöfunda meðan á hátíðinni stendur. Það verður á föstudags- kvöldið og Tom leggur til mat og vín. Sala samtals 87,50 pund 13 viðskiptavinir Alla daga umkringdur bókum Bókarkafli | Shaun Bythell, fornbóksali í Wig- town í Skotlandi, sló í gegn með bók sinni Dagbók bóksala sem lýsir lífinu í fornbókaverslun. Hann tekur upp þráðinn í Játningum bóksala og bregð- ur upp myndum af sérvitringunum og furðufugl- unum sem eru daglegir gestir í bókabúðinni og skrýtna fólkinu sem vinnur þar. Christchurch City Libraries/Donn Fornbókasalinn Shaun Bythell hefur vakið athygli fyrir frásagnir sínar af lífi manns sem sýslar með gamlar bækur og fólki sem hefur áhuga á þeim. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.