Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Precaliber 20” 1g TREK Black 49.990 kr. Precaliber 20” 1g CrystalWhite 49.990 kr. Precaliber 20” Voodoo Black 7 gírameð dempara 57.990 kr. Precaliber 20” TREK BLACK 7 gírameð dempara 57.990 kr. Precaliber 20” 1g Alpine blue 49.990 kr. Precaliber 12” Vice Pink 40.990 kr. Precaliber 12” Royal 40.990 kr. 2-4ára Precaliber 16” TREK Black 45.990 kr. Precaliber 16” Pink Frosting 45.990 kr. 3-6ára 5-9ára Precaliber 24” 8g Radioactive Red 61.990 kr. 65.990 kr. 8-12 ára ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA BARNAHJÓL Í MIKLU ÚRVALI 2022 ÁRGERÐ Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is Sendum hvert á land sem er fyrir 2.990 (verð fyrir eitt reiðhjól) FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890 Precaliber 24” 8g dempari CrystalWhite Góður gangur er í framkvæmdum við byggingu nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá í uppsveitum Árnes- sýslu. Verkið er í höndum Ístaks og hafa starfsmenn fyrirtækisins unn- ið að framkvæmdum í allan vetur. Í síðustu viku var verið að slá upp fyrir landstólpum brúarinnar, sem verður 145 m löng, tvíbreið og í fjórum höfum. Verkinu fylgir jafn- framt gerð nýs kafla á Skeiða- og Hrunamannavegi, beggja vegna við brúna nýju. Þá verða útbúin ný gatnamót á nærliggjandi afleggj- urum. Verkinu á að ljúka í sept- ember næstkomandi. Núverandi brú, sem er einbreið, mun standa áfram og nýtist m.a. sem reiðvegur. Framkvæmd þessi er hluti af þeirri viðleitni Vega- gerðar að fækka einbreiðum brúm, sem eru þekktar slysagildrur. Nokkrar slíkar nýjar hafa á síðustu árum verið byggðar á hringveg- inum, en einnig á leiðum utan hans þar sem umferð er mikil. Undir það fellur Stóra-Laxárbrúin sem er tenging við Flúðir og Hrunamanna- hrepp . sbs@mbl.is Nýja brúin auki öryggi - Ístak - Stóra- Laxá - 156 metrar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Suðurland Nýja brúin er samliggj- andi þeirri eldri sem nýtist áfram. Eftir einn jafnasta úrslitaleik í sögu heimsmeistaramótsins í brids hampaði lið Sviss Bermúdaskál- inni, verðlaunagripnum í opnum flokki, en liðið vann Hollendinga, 167-164, í úrslitaleiknum sem var 96 spil. Lið Sviss er raunar fjölþjóðlegt, skipað Svisslendingunum Pierre Zimmerman og Fernando Piedra, Hollendingunum Sebastiaan Drij- ver og Sjoert Brink og Pólverj- unum Peter Gawrys og Michal Klu- kowski. Fjórir þeir síðastnefndu hafa áður unnið Bermúdaskálina í landsliðum heimalanda sinna. Í kvennaflokki héldu Svíar Fen- eyjabikarnum sem þeir unnu árið 2019 en sænsku konurnar lögðu lið Tyrklands í úrslitaleik. Í sænska liðinu spiluðu Kathrine Bertheau, Jessica Larsen, Sanna Clementsen, Louise Hallqvist, Ylva Johansson og Emma Ovelius. Í flokki seníora, spilara 63 ára og eldri, lögðu Pól- verjar lið Indlands í úrslitaleik og í blönduðum flokki þar sem karl og kona spila saman vann lið Frakka. Mótið fór fram í bænum Salso- maggiore á Ítalíu. Kórónuveiran setti nokkurt strik í reikninginn þegar langt var liðið á keppnina og var spilamennsku sl. miðvikudag aflýst og allir spilarar sendir í skimun. Keppni var síðan haldið áfram í flestum flokkum daginn eftir en í nokkrum liðum þurftu spilarar að fara í sóttkví eftir að þeir greindust með veiruna. Íslenskt lið tók þátt í seníora- flokki og endaði það í 9. sæti af 24 þjóðum. Sviss hreppti Bermúdaskálina Ljósmynd/World Bridge Federation Niðursokknar Kvennalið Svía og Pólverja í undanúrslitum HM í brids. - Einn jafnasti úrslitaleikur í sögu heimsmeistaramótsins í brids Lögð hefur verið fram á Alþingi til- laga til þings- ályktunar um að félagsmálaráð- herra láti gera út- tekt á tækifærum í fjarvinnu. Þor- björg Sigríður Gunnlaugsdóttir úr Viðreisn er fyrsti flutnings- maður tillögunnar. Í greinargerð segir að fjarvinna hafi aukist mjög í heimsfaraldri og reynslan sé góð. Fólk hafi sinnt sínu á ólíkum starfs- stöðvum þegar heimilið varð óvænt vinnustaður margra. Mikilvægt sé hins vegar að skoða allar hliðar þess- ara mála, svo sem með tilliti til sam- gangna og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Þá sé fjarvinna til þess fall- in að auka tækifæri fólks sem búsett er úti á landi. Meðan á heimsfaraldri Covid-19 stóð hafi allt að 37% starfs- fólks í Evrópu sinnt sínu í fjarvinnu. Hún hafi jafnframt verið talin já- kvæð fyrir bæði starfsfólk og vinnu- veitendur, því framleiðni hafi aukist sem og sveigjanleiki, sem hafi aukið starfsánægju. sbs@mbl.is Úttekt sé gerð á fjarvinnu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.