Morgunblaðið - 11.04.2022, Síða 17

Morgunblaðið - 11.04.2022, Síða 17
hinsvegar þegar Kristín eftirmað- ur hennar var líka kölluð Stefanía en ekki Guðrún. Á þeim árum urðu auk þess talsverð skipti milli mín og þáverandi eiginmanns hennar, Sverris Hólmarssonar, og ýmissa góðvina þeirra. Tveim árum eftir að ég hvarf til starfa á Þjóðminjasafni Íslands var sumarið 1971 í fyrsta sinn haldinn hér á landi ráðsfundur Sambands norrænna safnmanna, og það kom í minn hlut að hafa til- sjón með undirbúningi hans fyrir hönd safnsins. Ég fékk leyfi til að ráða starfsmann um sumarið og biðlaði til Rúnu, en hún hafði þá hætt störfum hjá MR fyrir fjórum árum og einbeitt sér að því að fjölga mannfólki. Hún sló til og ég man hún tók svo til orða að líklega hefði hún gott af að fá svolítið loft í vængina. Hún stýrði undirbún- ingnum af sínum alkunna dugnaði og allt starfsfólk safnsins var henni einkar þakklátt. Uppfrá þessu tók Rúna einmitt að fá nýtt loft í vængina orðin hálf- fertug. Hún var kjörin í stjórn BSRB 1972, heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra, Magnús Kjartans- son, bjó árið 1973 til nýtt embætti deildarstjóra hjá Tryggingastofn- un ríkisins sem sjá skyldi um rétt- indamál hins almenna styrkþega. Slíkt hafði ekki verið til áður. Hann réð Guðrúnu í starfið sem mótaði það fyrstu sjö árin við rétt- mætar vinsældir. Þaðan lá leiðin í borgarstjórn 1978 og bar mönnum nokkuð saman um að hún hefði átt drjúgan þátt í sigri Alþýðubanda- lags í það skipti. Árið eftir varð hún þingmaður þess í 16 ár og for- seti sameinaðs Alþingis í þrjú ár. Hún hafði stundum gaman af að tjá sig laus við tepruskap. Fyrr- verandi deildarforseti minntist þess að eitt sinn á fundi forseta hafði talið borist að kynferðislegu áreiti, og Guðrún sagðist aldrei hafa orðið fyrir slíku. „Mér fannst það nú heldur verra“ bætti hún við, og karlhlunkarnir á fundinum höfðu orðið heldur kindarlegir við þetta hispursleysi. Um svipað leyti fékk hún líka loft í vængina sem rithöfundur. Jón Oddur og Jón Bjarni byrjuðu að birtast 1974, og hún gerði mér þann heiður að sýna mér handritið að Ástarsögu úr fjöllunum ásamt Brian Pilkington. Þótt við sæj- umst fremur sjaldan á seinni ár- um má segja að við höfum verið dágóðir æskuvinir fram á elliár. Árni Björnsson. Guðrún Helgadóttir er látin. Hún var borgarlistamaður og þjóðargersemi og ól okkur öll upp í gegnum bækur sínar. Rithöfund- ur, borgarfulltrúi og þingkona. Sannur brautryðjandi og þannig mætti raunar áfram telja. Hún brá ljósi á lífið, líf barna og venju- legra fjölskyldna, ekki síst borg- arlífið og Reykjavík, með glettni, húmor og einstakri frásagnar- gáfu. Guðrún setti börn í hásæti bóka sinna og frásagna og var löngu á undan sinni samtíð í heimi íslenskra barnabóka. Hún var bara svo ótrúlega skörp, snjöll og hnyttin. Það var því einstakur heiður fyrir Reykjavíkurborg þegar Guðrún féllst á að stofnuð væru barnabókaverðlaun í hennar nafni. Ég man enn hvað ég var stressaður áður en ég hringdi í hana til að biðja um leyfi. Og ánægjuna og þakklætið þegar hún féllst á erindið. Barnabókaverð- laun Guðrúnar Helgadóttur munu sannarlega halda áfram. Guðrún var líka gerð að borg- arlistamanni Reykjavíkur árið 2017 – og Guðrún hefði auðvitað átt þann heiður skilinn miklu fyrr. Líklega tafði pólitískur ferill hennar fyrir því – en Guðrún átti hvað stærstan þátt í að fella meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins, þegar það gerðist í fyrsta skipti árið 1978. Það var afrek. Þar naut hún gáfna sinna, réttsýni, mælsku og ómælds sjarma sem talaði beint inn í hjarta fólks og lét aldrei eiga neitt inni hjá sér – að óþörfu. Ég þakka Guðrúnu við leiðar- lok fyrir góð kynni sem mér þótti innilega vænt um, ótrúlegt ævi- starf og höfundarverk sem mun lifa áfram með okkur. En líka fyrir að brjóta glerþökin mörg og þykk og gera borgina og Ísland að betra og manneskjulegra samfélagi, fyr- ir konur og karla en sérstaklega börn og unglinga. Takk Guðrún! Innilegar samúðarkveðjur kæru Hörður, Þorvaldur, Helga og Halla og allir aðstandendur. Blessuð séð minning Guðrúnar Helgadóttur. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Enginn annar hefur gerbreytt þjóðmálum Íslendinga með einni setningu. Sjarmerandi sat hún í sjónvarpssal vorið 1978; fundvís á rökin. Kappræður kvöldið fyrir kosningar til sveitarstjórna. For- ingi Sjálfstæðisflokksins hamraði á kenningunni um glundroðann, óefnin ef valdaflokkurinn stýrði ekki Reykjavík. Kankvís með stríðnisglampa í augum eyddi Guðrún vörninni: „Auðvitað verður þú áfram borg- arstjóri, Birgir minn!“ Íhaldsfrúr í Vesturbænum og víðar í borginni skunduðu á kjörstað og kusu glað- ar Guðrúnu. Höfðu lesið sögurnar um Jón Odd og Jón Bjarna fyrir barnabörnin. Öllu óhætt. Birgir yrði áfram. En meirihlutinn féll í fyrsta sinn. Jarðskjálfti í stjórnmálum. Titring- urinn entist inn á nýja öld. Setn- ingin eina hitti í mark og næsta ár var Guðrún líka kosin á Alþingi. Leikrit frambjóðandans þá sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins. Í 1000 ára sögu Alþingis varð hún fyrst kvenna til að skipa æðsta forsætið. Stjórnaði þinginu eins og MR forðum þegar hún, nýr ritari rektors, stormaði um gangana. Þingmennirnir lutu ag- anum sem hún skóp enda fylgdi með orðsnilld og fljúgandi fyndni forsetans. Það voru forréttindi að vera vinur og félagi Guðrúnar á langri leið, sitja í stofunni hennar og þiggja góð ráð; þurfa líka stundum að greiða úr flækjum sem prinsip- festa hennar skóp í ýmsum mál- um. Þar reyndist Gervasoni, franskur flóttamaður, samvisku- fangi, þrautin þyngst. Guðrún fór þó að lokum með sigur af hólmi, mátaði sjálfan skáksnilling ís- lenskra stjórnmála, forsætisráð- herrann Gunnar Thoroddsen. Best var þó að fá hana í heim- sókn, færandi fjölskyldunni árit- aðar nýjar bækur. Daginn eftir andlát Guðrúnar sat yngsta dótt- urdóttir mín í bílnum og skegg- ræddi strákapör hinna sögufrægu tvíbura. Guðrún fyrir löngu orðin klassísk eins og H.C. Andersen og Astrid Lindgren. Komin í hof nor- rænna bókmennta þar sem hún mun um aldir skipa öndvegi. Ólafur Ragnar Grímsson. Margt leitar á hugann þegar Guðrún Helgadóttir er kvödd, enn einn félaginn úr þingflokki Al- þýðubandalagsins sem ég gekk inn í 1983. Guðrún var þar eina konan fyrsta kjörtímabilið og hafði verið árin á undan ein aðeins þriggja kvenna á Alþingi. Félags- og jafnréttismál voru henni alltaf ofarlega í huga og það var því verðskuldað er hún fyrst kvenna í sögunni varð forseti sameinaðs Alþingis og braut þar með eitt glerþakið. Bókmenntir og menn- ingarmál almennt voru að sjálf- sögðu, í tilviki hins ástsæla rithöf- undar, annar rauður þráður í hennar störfum og beitti hún sér með ýmsum hætti á því sviði. Guðrún Helgadóttir var einnig mikill Norðurlandasinni og lét til sín taka í Norðurlandaráði. Þekkt var vinátta hennar og Margrete Auken og samstarf á þeim vett- vangi þar sem þær þóttu nokkuð róttækar og fyrirferðarmiklar í málflutningi. Það svo að enn voru sagðar af þeim sögur þegar ég kom í Norðurlandaráð tæpum áratug á eftir Guðrúnu. Þó svo tímarnir væru að breytast á þessum árum, hlutur kvenna að vaxa og rödd þeirra að styrkjast, hefur Norður- landaráði örugglega ekki veitt af hressilegum málflutningi í þágu kvenfrelsis og jafnréttis frekar en öðrum stofnunum þess tíma. En fyrst og fremst var Guðrún Helgadóttir eftirminnilegur og stór persónuleiki að kynnast. Hún var ákaflega orðheppin og hnyttin í tilsvörum. Stuttar athugasemdir hennar eða innskot í umræður sögðu iðulega meira en langar ræður og þeirri aðferð beitti hún oft, t.d. í umræðum í þingflokki. Ef til vill var það vopn sem eina kon- an í karlaklúbbnum fann að beit henni einna best. Guðrún var líka, þegar sá gállinn var á henni, af- spyrnu fyndin og skemmtileg og yfirleitt var engin lognmolla í kringum hana hvað sem uppi var. Í mörg ár keypti hún af elstu börnum mínum í grunnskóla jóla- stjörnu sem seld var í fjáröflunar- skyni og þá var farið heim til hennar með þær. Ekki þurfti að hvetja drengina til fararinnar og oftar en ekki snerum við til baka með áritaðar bækur, auk þess sem maður upplifði þá töfra sem Guð- rún bjó yfir gagnvart börnum. Ég kveð Guðrúnu Helgadóttur með mikilli virðingu og eftirsjá og þakka henni samfylgdina í stjórn- málum. Sem foreldri þakka ég fyr- ir mína hönd og annarra slíkra þær gersemar sem rithöfundur- inn Guðrún Helgadóttir skilur eft- ir sig til gagns og ómældrar ánægju kynslóða og aftur kyn- slóða íslenskra barna og ung- menna. Ég votta börnum Guðrúnar og öðrum aðstandendum innilega samúð mína og fjölskyldu minnar. Steingrímur J. Sigfússon. Menn hafa það fyrir satt, að í kappræðum í sjónvarpssal fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 1978 hafi frambjóðandi Alþýðubandalagsins í vonlausu sæti, að því er talið var, látið að sér kveða með slíkum tilþrifum, að þá- verandi borgarstjóri Sjálfstæðis- flokksins, sem hafði ráðið Reykja- víkurborg lengur en elstu menn mundu, fékk ekki rönd við reist. Konan var Guðrún Helgadóttir. Hún var þarna í essinu sínu, bæði skelegg og skemmtileg. Þar með var hún flogin inn í borgarstjórn, öllum á óvart og þvert á spár. Og þar með var þetta höfuðvirki valda- kerfis Sjálfstæðisflokksins fallið. Hinn verðandi rithöfundur og pólitíkus hafði kvatt sér hljóðs með eftirminnilegum hætti. Aðdá- endur hennar í hópi ungra les- enda, sem síðar meir urðu fjöl- margir, hefðu kannski ekki orðið neitt hissa. En það átti eftir að koma á daginn, að lesendur henn- ar kunnu vel að meta hispursleysi hennar, húmor og frásagnargleði. Sjálfur hafði ég fengið að kenna á því, þegar Guðrún stýrði gamla MR í krafti embættis rektorsrit- ara. Hún átti það til að hringja fyr- ir allar aldir og skipa fyrir um að vekja heimasæturnar mínar á bænum til þess að þær mættu í tíma í tæka tíð. Ekkert hangs eða slugs á þeim bæ. Það var á þessum árum, sem Guðrún kom eftirminnilega við sögu, þegar ný kynslóð á vinstri væng stjórnmálanna var að láta til sín taka og heimtaði uppgjör við hugmyndalegt þrotabú gömlu kommanna. Það væri forsenda þess, að unnt væri að sameina lýð- ræðisjafnaðarmenn sem ráðandi afl á vinstri væng stjórnmálanna. Mér er enn minnisstætt, þegar Guðrún snaraðist upp að sjálfum Guðmundi jaka, sem þar var fund- arstjóri á frægum Tónabíósfundi, reif í tætlur félagsskírteini sitt í Alþýðubandalaginu og fleygði því í fundarstjórann, áður en hún strunsaði brott. Seinna átti Guðrún eftir að sitja á Alþingi vel á annan áratug fyrir þann hinn sama flokk, þar af sem vel látinn forseti sameinaðs Al- þingis í tíð vinstri stjórnar Stein- gríms Hermannssonar 1988-91. Þá höfðu reyndar flestir gert ráð fyrir því, að flokkseigendafélagið hefði vit á að fela hinum mikils- metna rithöfundi að stýra menntamálaráðuneytinu – ekki síður skörulega en Menntaskólan- um í Reykjavík forðum daga – og þá fyrst kvenna. Þar með varð hún besti menntamálaráðherrann, sem við aldrei fengum – eftir Gylfa Þ. Máttur orðsins blífur. Þegar fram líða stundir þykist ég vita, að orðstír rithöfundarins muni halda nafni hennar lengi á loft í huga þakklátra lesenda. Jón Baldvin Hannibalsson. Guðrún Helgadóttir var eftir- minnilegur og öflugur einstakling- ur, sem kom víða við. Ég var sam- flokksmaður hennar í Alþýðubandalaginu í aldarþriðj- ung og fylgdist með störfum henn- ar, einkum í þingflokki þar sem við áttum samleið í 15 ár. Hún varð ritari flokksins í formannstíð Lúð- víks Jósepssonar 1977 og lands- þekkt árið eftir þegar hún átti hlut í stórsigri Alþýðubandalagsins í borgarstjórnarkosningum vorið 1978. Þar vakti hún athygli með skörulegum málflutningi og fyrir góða þekkingu á kjörum almenn- ings, sem hún hafði öðlast í starfi sínu hjá Tryggingastofnun ríkis- ins allt frá árinu 1973. Einnig var hún þá orðin vinsæl sem höfundur að bókinni um Jón Odd og Jón Bjarna sem út kom 1974. Hálfu öðru ári seinna, í vetrar- kosningunum 1979, var Guðrún kosin á þing þar sem hún tók við af Svövu Jakobsdóttur. Ég hafði ver- ið sessunautur Svövu í þingflokki AB árið á undan. Þær voru ólíkir einstaklingar, báðar rithöfundar en með ólíka reynslu og sam- félagssýn. Þingflokkur AB hafði lengi að- setur í Hlaðbúð upp undir rjáfri í þinghúsinu. Þar vorum við Guðrún sessunautar í nokkur ár uns hún sem ritari þingflokksins færði sig nær borðsendanum. Fundargerðir hennar voru sjaldan lesnar upp og þóttu eftir á ekki mjög ábyggilegar heimildir. Guðrún var félagslynd og kunni best við sig í blönduðum hópi við langborðið í kaffistofunni, þar sem lengi vel var leyft að reykja að vild. Við Guðrún náðum vel saman um ýmis þingmál, en um annað bar nokkuð á milli, m.a. hvernig réttast væri að þoka fram jafnrétti kynjanna, Kvennalistinn náði inn á þing 1983 og viðhorf okkar Guðrún- ar til samstarfs um þeirra sjónar- mið reyndust nokkuð ólík. Af eigin reynslu taldi hún að konur ættu að vera fullfærar um að standa á eigin fótum við hlið karla í stjórnmálum. Guðrún varð forseti Sameinaðs þings í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar 1988-1991, en þingið var þá enn deildaskipt. Sem varaforseti í neðri deild sat ég oft fundi undir hennar stjórn. Reynd- ist hún standa sig með ágætum í þessu starfi, sem ekki var alltaf auðvelt, þar eð stjórnarmeirihluti var þá stundum valtur. Hún lauk fastri þingsetu 1995, en kom haust- ið 1998 sem varaþingmaður inn í þingflokk okkar Óháðra og tók sæti í stuttan tíma á Alþingi. Þegar kom að því að bjóða fram fyrir VG í Reykjavík í fyrsta sinn 1999 hafði Guðrún óvænt hug á sæti framar- lega á lista, en hlaut ekki til þess stuðning. Urðu það lyktir á stjórn- málaferli hennar. Ég á margar góðar minningar um samstarf okkar Guðrúnar og hennar verður lengi minnst bæði sem rithöfundar og stjórnmála- manns. Hjörleifur Guttormsson. Þau voru ófá skiptin sem ég trítl- aði yfir Miklubrautina og hringdi bjöllu í Skaftahlíðinni. Kominn til að heilsa upp á mína góðu vinkonu og ræða pólitíkina. Og leggja línur fyrir baráttuna fram undan. Borg- arstjórnarkosningarnar 1978 þeg- ar Guðrún kom, sá og sigraði með svo eftirminnilegum hætti. Í þing- kosningum árið eftir var hún svo kosin á Alþingi. Ég var mennta- skólastrákur að stíga mín fyrstu skref í stjórnmálastarfi þegar við kynntumst, Guðrún var lífsreynd og þá þegar orðin einn ástsælasti barnabókahöfundur landsins. Ald- ursbilið þvældist aldrei neitt fyrir, Guðrún kom jafnt fram við alla eins og bækurnar hennar bera svo glöggt vitni um. Ég naut þess reyndar ugglaust að hafa verið með Helga gamla á sjó þótt hálf öld væri milli okkar í aldri, það var mikill öð- lingur. Guðrún var virk í norrænu sam- starfi og þegar ég dvaldi við nám í Noregi og Svíþjóð á níunda ára- tugnum kom það oftar en ekki í minn hlut að skipuleggja stjórn- málafundi með Guðrúnu fyrir ís- lenska námsmenn. Það voru ánægjulegir viðburðir því Guðrún var skelegg og vel heima í málefn- um námsmanna, talaði venjulega íslensku, laus við skrúðmælgi sem stundum hrjáir stjórnmálamenn, auk þess að segja skemmtilega frá. Hún var einkar lagin við að ná til fólks, var hrein og bein og lá ekki á skoðunum sínum. En hún kunni líka þá list að hlusta. Þessir eigin- leikar hennar áttu ríkan þátt í því trausti sem hún naut meðal al- mennings. Þegar við hjónin eignuðumst frumburð okkar var Guðrún fyrst til að koma í heimsókn á fæðing- ardeildina í Stokkhólmi áður en hún skellti sér til Danmerkur að heimsækja sinn eigin sonarson ný- fæddan, en þeir urðu síðan góðir vinir. Mér er minnisstætt að Guð- rún henti gaman að því að sam- kvæmt sænskum reglum bar ný- fætt barn ógiftra foreldra föðurnafn móður og því lét fæðing- ardeildin son okkar heita „pojke Thorsteinsdottir“. En það varð reyndar til þess að Guðrún tók þessar norrænu nafnareglur upp á vettvangi Norðurlandaráðs og að endingu fengu íslensk börn að fylgja íslenskum nafnareglum á hinum Norðurlöndunum þótt það tæki vissulega tímann sinn að koma því í gegn. Í stjórnmálastarfinu lét Guðrún ekki síst félags- og tryggingamál til sín taka. Hún þekkti þau mál vel úr starfi sínu hjá Tryggingastofnun og flutti mörg þingmál sem vörð- uðu almannatryggingar og málefni aldraðra. Hún flutti líka ítrekað frumvarp um embætti Umboðs- manns barna sem varð að veruleika skömmu áður en hún lét af þing- mennsku. Eftir að Guðrún hætti á Alþingi fækkaði heimsóknum mínum til hennar en við héldum samt alltaf góðu sambandi og það var alveg augljóst að pólitískur áhugi hennar hafði lítið dofnað, hún fylgdist býsna vel með og pólitíski komp- ásinn var enn jafn réttvísandi og hann var alla tíð. Það voru forréttindi að eiga Guðrúnu að vini og samherja. Hún skilur eftir sig drjúgt æviverk sem mun halda nafni hennar á lofti um langan tíma. Ég kveð félaga Guð- rúnu fullur þakklætis fyrir vináttu og tryggð og sendi börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúðar- kveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og allt kæra vinkona. Árni Þór Sigurðsson. Guðrún Helgadóttir var ein af allra bestu félögum mínum á Al- þingi. Við vorum bæði í Íslands- deild þingmannanefndar EFTA og ferðuðumst saman á fundi nefndarinnar alloft meðan við vor- um samferða í þinginu. Guðrún var einstaklega skemmtileg og góð í viðkynningu. Strax í fyrstu ferð okkar beggja til Genfar sem Pála mín kom líka með í náðum við vel saman og ógleymanlegur er hádegisverður við Lac Léman þar sem rithöfundurinn og skáldkon- an fóru saman á flug. Úr þessum hádegisverði óx mikil vinátta milli Guðrúnar og okkar Pálu. Minnisstæðasta ferðalagið okk- ar Guðrúnar saman var heimsókn sendinefndar EFTA-nefndarinnar til Prag til að eiga fund með þing- mönnum á þingi gömlu Tékkóslóv- akíu nokkru áður en skiptingin varð í Tékkland og Slóvakíu. Vinir okkar í Prag vildu kynna sér EFTA- og EES-málin sem þá voru í gangi og höfðu sett saman tveggja daga stífa dagskrá. Þegar til kom datt botninn úr dagskránni eftir upphafsræður forsvarsmanna EFTA og formlegum fundi var nánast lokið því vinir okkar höfðu sjálfir afar lítið fram að færa. Við áttum þó eftirminnilegan hádegis- verð með Alexander Dubcek sem þá var forseti þingsins. En Guðrún dó ekki ráðalaus þegar hádegis- verðinum lauk og hafði samband Morgunblaðið/Ómar Guðrún Helgadóttur á stóran þátt í því að barnabókmenntir hafa verið hafnar til vegs og virð- ingar hérlendis en bækur hennar eru orðnar 25 talsins. Myndin er tekin í tilefni af uppsetningu á leikriti hennar Óvitum í Þjóðleikhúsinu 13. október 2013. SJÁ SÍÐU 18 HINSTA KVEÐJA Vertu blessuð og sæl Rúna! Þakka þér fyrir einlæga vináttu alla tíð. Þegar bját- aði á vorum við góðir vinir jafnt og endranær. Fylgi þér allir góðir vættir. Haukur Jóhannsson. UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.