Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 32
FERMINGAR
TILBOÐ
GÓÐUR
STUÐNINGUR
VIÐMJÓBAK
ÝMIR
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
POKAGORMAKERFI
Styður mun betur við líkamann en venjuleg
%ECG4!'C=, 8E!4%ECG4CF#C 'C@ G'QG#B0
L3!!@G ?*C '&A#C L?* $?4C L'#C 'C@ BA4QB'AA#C
* (MF@FF#,9"N!#C ?#Q 4>R4B?-Q#2 BA*=C ?#Q
G"P)4!BB?-Q#2G#RR#BA*=C * G#Q"@FF#,
330 gormar per fm2, 7?*$'CA BA.R,
VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
99.900 kr.
114.900 kr.
129.900 kr.
89.900 kr.
104.900 kr.
119.900 kr.
1RR ?'CQ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G,
J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#,
V
e
rð
b
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
in
n
sl
á
tt
a
rv
il
lu
r
o
g
/e
ð
a
b
re
yt
in
g
a
r.
FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN:
1RR ?'CQ 'C@ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#,
STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
139.900 kr.
159.900 kr.
179.900 kr.
119.900 kr.
139.900 kr.
159.900 kr.
IÐUNN
GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT
VIÐ LÍKAMANN
HEER '&F4)R4F(4F 4QR4%4BA R*!4G4F@GE%
%'&@C )'AC# OF(@F,;PQLCMBA#"O&F@FE% C+AA@C
BA@QF#F%@C AC3%%#C )'AC4 )RPQI-Q# E%)'AC# R*Q4F2
LN &-CQ(MDC# E%)'AC# B?'&F,
FRIGG
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C
G"P)4!BBA@QF#F%@C, 9M!C4 E% )'AC4 4>R4B?-Q#,
/CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F, 54F(4Q4C
!4FABA3C!#F%4C, <@RR!EG#F FMA#F% . B?'&FI'A#,
ÓÐINN
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C
G"P)4!BBA@QF#F%@C,9M!C4 E%)'AC4 4>R4B?-Q#,
/CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F,54F(4Q4C
!4FABA3C!#F%4C,<@RR!EG#FFMA#F% . B?'&FI'A#,
– MILLISTÍF
– STÍF
25%
AFSLÁTTUR
AF FYLGIHLUTUM
VIÐ DÝNUKAUP
VERÐ SEM
KOMA Á
ÓVART
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Í dagskrá í Borgarbókasafninu í Grófinni í dag, mánu-
dag, frá kl. 13 til 15 takast tónlistarkonurnar Unnur
Sara Eldjárn og Rebekka Sif Stefánsdóttir meðal ann-
ars á við spurninguna „Hver er miðborgin okkar?“ Þær
segja líflegar sögur af miðborg Reykjavíkur í bland við
tónlist og virka þátttöku fjörugra grunnskólakrakka.
Viðburðurinn er við upphaf páskaleyfisins í grunnskól-
unum og hugsaður fyrir börn á aldrinum átta til tólf
ára. Að fyrirlestri loknum tekur við fjársjóðsleit utan-
dyra í nánasta umhverfi bókasafnsins.
Unnur Sara og Rebekka Sif segja
börnum sögur af miðborginni
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Víkingur úr Reykjavík sigraði Breiðablik 1:0 í Meist-
arakeppni KSÍ á Víkingsvelli í Fossvogi í gærkvöldi. Er
leikurinn árlegur leikur ríkjandi Íslands- og bikarmeist-
ara. Þar sem Víkingur vann tvöfalt á síðasta ári mætti
liðið Breiðabliki sem varð í öðru sæti í úrvalsdeildinni.
Sigurinn var sá þriðji hjá Víkingi í keppninni en Foss-
vogsliðið vann einnig árin 1982 og 1983.
Erlingur Agnarsson sá um að skora sigurmark Vík-
inga í gærkvöldi á 23. mínútu eftir undirbúning hjá
Helga Guðjónssyni. »27
Enn einn bikarinn í Fossvoginn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Halldóra Gyða Matthíasdóttir
Proppé hefur verið óstöðvandi síðan
hún komst á hlaupabragðið 2011 og
að undanförnu hefur hún líka látið á
sig reyna í skíðagöngu. „Ég er vel
gift, æfi fyrir og eftir vinnu hjá vel-
ferðarsviði Reykjavíkurborgar og
æfingar og keppni eru mín skemmt-
un, minn félagsskapur, mitt líf. Ég
elska að takast á við nýjar áskor-
anir.“
Ekki verður annað sagt en að
skammt sé stórra högga á milli hjá
Halldóru. Í fyrrahaust setti hún per-
sónulegt met þegar hún lauk 350 km
fjallahlaupinu Tor des Géants á Ítal-
íu. Í árslok 2021 gekk hún 120 km í
styrktarskíðagöngu fyrir Ljósið og
er það sennilega Íslandsmet kvenna.
Fyrir skömmu gerði hún gott betur,
þegar hún var með í sænsku Vasa-
gönguskíðakeppninni og gekk vega-
lengdina, sem er um 90 km, í þrí-
gang á einni viku eða samtals 270
km. Í sumar ætlar hún síðan að
hlaupa þrisvar umhverfis Mont
Blanc, hæsta fjall Alpanna. Fyrst
hleypur hún tvisvar sem leiðsögu-
maður á vegum Náttúruhlaupa og
síðan sem þátttakandi í 100 mílna
(167 km) keppninni Ultra-Trail du
Mont Blanc (UTMB).
Rétt hugarfar
„UTMB-hlaupið 26. ágúst er
stærsta áskorunin í sumar en undir-
búningurinn felst í mörgum hlaup-
um eins og Laugavegshlaupinu,
Lavaredo-hlaupinu og auðvitað Mt.
Blanc-ferðunum,“ segir Halldóra.
„Ég náði ekki að klára hlaupið vegna
tímamarka 2017, en stefni að því
núna með gleðina að leiðarljósi.“
Í Vasagönguvikunni (Vasaloppet)
er boðið upp á tólf mismunandi
gönguskíðakeppnir, frá 10 km upp í
90 km göngu. Halldóra var búin að
eiga miða í aðalkeppnina í tvö ár þar
sem hún komst ekki vegna Covid-19.
Hana langaði að prófa að fara í „Op-
ið spor“ (Öppet spär) keppnina með
góðum vinum, en það er sama vega-
lengd og í aðalkeppninni, þ.e. 90 km
leiðin frá Sälen til Mora. Þá var hún
minnt á að aðalkeppnin í ár væri 100
ára afmæliskeppni og hún hvött til
að vera með. Þar sem hún hafi form-
lega átt eftir að ljúka næturkeppn-
inni (Nattvasan), sem er líka sama
vegalengd og leið, hafi hún ákveðið
að vera með í öllum þremur keppn-
unum.
„Ég veit ekki um aðra Íslendinga
sem hafa farið í þrjár 90 kílómetra
langar göngur á einni viku,“ segir
Halldóra. „Ég lauk fyrstu Vasa-
göngunni 2016 og ætlaði aldrei aftur
að taka þátt í henni, því mér þótti
hún svo erfið.“ Þá hafi hún því
ákveðið að ljúka á sama ári sænsku
fjögurra þrauta keppninni „En
Svensk Klassiker“ sem svipar til
Landvætta á Íslandi. „Ég var fljót
að gleyma sársaukanum og fór árið
eftir í næturkeppnina, sem ég náði
reyndar ekki formlega að ljúka þá,
og fór svo á ný í aðalkeppnina 2019.“
Halldóra segir að erfiðið hafi verið
mikið en andlegi þátturinn hafi skipt
mjög miklu máli. „Í fyrstu keppninni
gekk ég með vinkonu minni og fé-
lagsskapurinn var mjög skemmti-
legur. Í næturgöngunni var mjög
kalt, allt að 20 stiga frost um nóttina,
og freistingin því mikil að hætta og
fara inn í heita rútu á drykkjar-
stöðvum. Maður kemst alltaf lengra
en maður heldur og rétta hugarfarið
skiptir öllu, að vera jákvæður og
glaður. Ég er með möntru, „grjót-
hörð og jákvæð“, og mæti erfið-
leikum eins og öðru mótlæti í dag-
legu lífi. Kuldinn var mikil áskorun í
næturgöngunni, ég datt og týndi
staf, bað til guðs og fann hann óbrot-
inn í niðamyrkrinu.“ Halldóra lagði
þreytt af stað í aðalkeppnina en
ákvað að taka þátt í gleðinni. „Ég er
ekki besta skíðagöngukonan en ég
hef gaman af þessu, rétt eins og
ofurhlaupunum. Gangan fyrir Ljósið
var góður grunnur að Vasagöng-
unum þremur.“
Halldóra óstöðvandi
- Gekk 270 km í sænsku Vasagönguskíðakeppninni
- Ætlar að hlaupa þrisvar umhverfis Mont Blanc í sumar
Ánægð Halldóra kemur í mark í þriðju og aðal-Vasagöngunni.
Kuldi Næturgangan tók á en erfiðið
gleymdist að henni lokinni.