Morgunblaðið - 29.04.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
MALLORCA
FLUG, GISTING OG ÍSLENSKUR FARARSTJÓRI Í VIKU
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS
24. JÚNÍ - 01. JÚLÍ
GLOBALES NOVA APART. 3*
ÍBÚÐ MEÐ SJÁVARSÝN
VERÐ FRÁ96.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 127.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
01. - 08. JÚLÍ
EIX LAGOTEL 4*
FJÖLSKYLDUGISTING MEÐ MORGUNV.
VERÐ FRÁ129.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 147.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
BEINT
FLUG
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Talsverð umræða hefur verið um
fjölgun andláta á fyrsta fjórðungi
þessa árs miðað við fyrri ár. Ýjað hef-
ur verið að því að kórónuveiru-
faraldrinum sé um að kenna. Emb-
ætti landlæknis bendir á það í frétt að
engir tölfræðilegir útreikningar hafi
verið gerðir á fjölda andlátanna í sam-
anburði við fjölda andláta undan-
gengin ár.
Marktæk fjölgun andláta sást ein-
ungis hjá einstaklingum 70 ára og
eldri í mars 2022 en ekki í heildar-
fjölda andláta, samkvæmt fréttinni.
„Líklega má skýra þessa fjölgun and-
láta af mikilli útbreiðslu Covid-19 á
þessum tíma,“ segir í fréttinni.
Alls hafa 119 andlát vegna Covid-19
verið tilkynnt beint til embættis sótt-
varnalæknis. Þar af hafa 82 andlát
verið tilkynnt á þessu ári, 8 árið 2021
og 29 árið 2020. 61 tilkynning kom frá
Landspítala og 40 frá hjúkrunarheim-
ilum. Líklegt er talið að einhver and-
lát af völdum Covid-19 hafi ekki verið
tilkynnt sóttvarnalækni en það komi í
ljós þegar dánarvottorð verði yfirfar-
in. gudni@mbl.is
Fjöldi andláta á mánuði á 100.000 íbúa
Meðaltal 2012-2019 og janúar-mars 2022, allur aldur, allar orsakir
90
80
70
60
50
40
30
Heimild: Embætti landlæknis
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Meðaltal 2012-2019
2020 2021 2022
Fleiri 70 ára og
eldri létust í mars
Guðlaugur Þór Þórðarson, um-
hverfis-, orku- og loftslagsráðherra,
gagnrýndi stjórnarandstöðuna á Al-
þingi í gær og sagði að það eina
sem stæði í vegi fyrir framfara-
málum væri málþóf stjórnarand-
stöðunnar. Þar skaut hann að Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur,
þingmanni Viðreisnar.
Guðlaugur tók sérstaklega fyrir
ræður Andrésar Inga Jónssonar,
þingmanns Pírata:
„Þetta er nú ekki búið að vera
hans dagur, svo mikið er víst, en
hann toppaði sig hins vegar alveg í
sinni ræðu en það er ekki tími til að
elta ólar við allar þær rangfærslur
sem þar fóru fram. Reyndar er það
svo að háttvirtur þingmaður sýnir
hér í hverri ræðu á fætur annarri
mikla heift og hatur og það væri nú
gott ef hægt væri að virkja það í
þágu orkuskiptanna og það myndi
auðvelda verkefnið mjög.“
Málþóf tefji
framfaramál
- Guðlaugur skaut föstum skotum á þingi
Sýnatökur vegna kórónuveiru-
faraldursins í Reykjavík færast í
dag frá Suðurlandsbraut 34 í höfuð-
stöðvar Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins í Mjóddinni. Eingöngu
verður boðið upp á PCR-sýnatökur
en hægt er að bóka hraðpróf vegna
ferðalaga hjá einkaaðilum.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins hefur verið með starfsemi á
Suðurlandsbraut 34 frá því í ágúst
2020, snemma í heimsfaraldrinum.
Aðstaðan í húsinu hefur bæði verið
nýtt undir bólusetningar og sýna-
tökur.
Þótt verulega hafi dregið úr
bólusetningum við kórónuveirunni
eru þær áfram í boði fyrir þá sem
þurfa.
Síðustu sýnin tekin
við Suðurlandsbraut
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Pakkað saman Síðasti sýnatökudagurinn við Suðurlandsbraut var í gær.
„Vorið liggur í loftinu, ljósátan er í sjónum
sem er fullur af æti og lífríkið verður blóm-
legra með hverjum degi,“ segir Christian
Schmidt, leiðsögumaður hjá Norðursiglingu
á Húsavík. Þar er tímabil hvalaskoðunar
gengið í garð og iðandi líf er í Skjálfandaflóa.
Norðursigling hefur að undanförnu gert út
tvær til þrjár skoðunarferðir á dag og í þær
eru notaðir bátarnir Náttfari og Bjössi Sör.
Ferðum þessum verður svo fjölgað strax í
næstu viku, þegar maímánuður gengur í
garð. „Við höfum séð talsvert af hval í ferð-
um síðustu daga,“ segir Schmidt. „Hnúfubak-
urinn var við Lundey en hrefnurnar út við
Kinnarfjöll. Hvölunum fjölgar raunar mjög
þegar er komið fram á þennan tíma. Yfirleitt
eru skoðunarferðirnar um þrjár klukku-
stundir og til viðbótar við hvalina hafa far-
þegar okkar náð að sjá einstakt fuglalíf.“
Christian Schmidt er frá Þýskalandi og
hefur starfað við leiðsögn hjá Norðursiglingu
frá árinu 2009. Er hér á landi æ stærri hluta
úr árinu, eða allt að níu mánuði. „Ferðamenn
flykkjast nú til landsins og í ferðum síðustu
daga hefur verið fólk frá til dæmis Þýska-
landi, Spáni, Ítalíu og Frakklandi og auðvitað
mörgum fleiri löndum.“ sbs@mbl.is
Sjórinn fullur
af æti og
hvölum fjölgar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigling Leiðsögumaðurinn Christian fræðir ferðafólk í upphafi ferðar. Húsavík er með réttu oft nefnd höfuðborg heimsins í hvalaskoðun.