Morgunblaðið - 29.04.2022, Blaðsíða 40
FERMINGAR
TILBOÐ
GÓÐUR
STUÐNINGUR
VIÐMJÓBAK
ÝMIR
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
POKAGORMAKERFI
Styður mun betur við líkamann en venjuleg
gormakerfi. Pokagormarnir eru meðmis-
þykkum vír eftir því hvar þeir eru staðsettir
í dýnunni.Mjúkir við axlasvæði, stífir við
mjóbakssvæði,millistífir í miðjunni.
330 gormar per fm2. Tvíhert stál.
VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
99.900 kr.
114.900 kr.
129.900 kr.
89.900 kr.
104.900 kr.
119.900 kr.
Öll verð með PU botni og fótum.
ATH. fleiri stæðir í boði.
V
e
rð
b
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
in
n
sl
á
tt
a
rv
il
lu
r
o
g
/e
ð
a
b
re
yt
in
g
a
r.
FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN:
Öll verð eru með PU botni og fótum. ATH.fleiri stæðir í boði.
STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ
120×200
140×200
150×200
139.900 kr.
159.900 kr.
179.900 kr.
119.900 kr.
139.900 kr.
159.900 kr.
IÐUNN
GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT
VIÐ LÍKAMANN
Cool efnablandan aðlagast líkamanumog
gefur betri öndun.Góðþrýstijöfnunog réttur
stuðningur tryggir betra blóðflæði ogbetri líðan,
þú færðdýpri ogbetri svefn.
FRIGG
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
Með5 svæðaskiptu pokagormakerfi.Góður
mjóbaksstuðningur. Mýkra og betra axlasvæði.
Þrýstijöfnunarefni í bólstrun. Vandaðar
kantstyrkingar. Fullkomin nýting á svefnfleti.
ÓÐINN
HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT
HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI
Með5 svæðaskiptu pokagormakerfi.Góður
mjóbaksstuðningur.Mýkra ogbetra axlasvæði.
Þrýstijöfnunarefni í bólstrun.Vandaðar
kantstyrkingar.Fullkominnýting á svefnfleti.
– MILLISTÍF
– STÍF
25%
AFSLÁTTUR
AF FYLGIHLUTUM
VIÐ DÝNUKAUP
VERÐ SEM
KOMA Á
ÓVART
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Soffía Björg heldur útgáfutónleika vegna plötu sinnar,
The Company You Keep, í Iðnó í kvöld, 29. apríl, kl. 20.
Er það önnur breiðskífa Soffíu og kom út í árslok í
fyrra. Á tónleikunum koma fram með Soffíu þau Unnur
Jónsdóttir sem leikur á selló, Ragnhildur Gunnarsdóttir
sem leikur á trompet, Pétur Ben gítarleikari, Magnús
Trygvason Eliassen trommuleikari og bakradda-
söngkonurnar Fríða Dís og Karítas. Sérstakir gesta-
söngvarar verða Pétur Ben og Krummi.
Soffía Björg flytur The Company
You Keep í Iðnó í kvöld
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Selfyssingar eru komnir í undanúrslitin á Íslandsmóti
karla í handknattleik eftir sigur á FH í tvíframlengdum
og mögnuðum oddaleik liðanna í Kaplakrika í gærkvöld.
Þeir mæta Valsmönnum í undanúrslitum en Haukar og
ÍBV mætast í hinu einvíginu. »35
Selfyssingar sendu FH í sumarfrí
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Húsið ber virðulegan svip og starf-
semin þarf að vera við þess hæfi,“
segir Ísak Eldjárn Tómasson, veit-
ingamaður í Konungskaffi á Selfossi.
Staðurinn er í nýja miðbænum þar í
bæ, en veitingastaðirnir þar nálgast
tuginn. Hver þeirra hefur sína sér-
stöðu; í Konungskaffi býðst smur-
brauð í dönskum stíl, brauðtertur,
kökur og annað slíkt. Einnig kaffi og
úrvalsbjór í sérmerktum glösum.
Smekklegt hús og hlýlegt
Ferðamenn flykkjast í miðbæinn
nýja á Selfossi. Öll húsin þar eiga sér
fyrirmyndir í eldri byggingum sem
eru horfnar. Konungskaffi er til
húsa í byggingu tilsvarandi þeirri
sem var reist á Þingvöllum árið 1907
fyrir Íslandsheimsókn Friðriks 8.
Danakonungs og Lovísu prinsessu.
Húsið var upphaflega rétt fyrir neð-
an Öxarárfoss og kallað Konungs-
húsið. Það var seinna flutt og endur-
reist skammt frá Hótel Valhöll og
var til að mynda bústaður Kristjáns
konungs 10. og Alexandrínu drottn-
ingar á Alþingishátíðinni árið 1930.
Upp frá því hófu ráðherrar í ríkis-
stjórn Íslands að nota Konungshúsið
sem sumarbústað. Húsið brann 10.
júlí 1970. Þar létust Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra, Sigríður
Björnsdóttir kona hans og dóttur-
sonur þeirra, Benedikt Vilmundar-
son.
Konungshúsið nýja á Selfossi er
sunnanvert við torgið í miðbænum
nýja. „Húsið er smekklega byggt og
hlýlegt. Nú þarf ég bara myndir af
Danakonungum og hengja hér upp.
Slíkt rifjar upp þá sögu sem Kon-
ungshúsinu fylgdi,“ segir Ísak Eld-
járn sem hefur starfað við veitinga-
rekstur frá unglingsaldri.
Samstarfskona hans í Konungskaffi
er Sunna Mjöll Caird.
„Við opnuðum á sumardaginn
fyrsta og viðtökurnar hafa verið góð-
ar, enda þótt við höfum ekki kynnt
okkur mikið. Staðurinn, sem tekur
um 40 manns í sæti, hefur spurst vel
út, sem er besta kynningin sem
hægt er að fá,“ segir Ísak Eldjárn.
Meira byggt í nýjum miðbæ
Á árinu hefjast framkvæmdir við
annan áfanga nýja miðbæjarins á
Selfossi. Reist verða alls 22 hús, en
13 byggingar eru í þeim hluta mið-
bæjarins sem tekinn var í notkun
síðasta sumar. Í þeim húsum eru
meðal annars verslanir og veitinga-
staðir, en í þeim sem nú á að reisa
verða m.a. hótel, skrifstofur og svo
íbúðir. Uppbygging þessi mun taka
næstu tvö til þrjú árin.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Veitingafólk Ísak Eldjárn og Sunna Mjöll við afgreiðsluborðið á kaffihúsinu sem var opnað á sumardaginn fyrsta.
Kóngar, kökur og kaffi
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Selfoss Konungshúsið er snoturt og bjórinn er í sérmerktum glösum.
- Eldjárn vert á Konungskaffi í nýja miðbænum á Selfossi