Morgunblaðið - 29.04.2022, Síða 14

Morgunblaðið - 29.04.2022, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Reykjavík- urborg glímir við gríðarlegan vanda og fjölþættan sem afar mikilvægt er að tekið verði á þegar að kosningum loknum. Að því leyti má taka undir orð Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra og oddvita Samfylkingarinnar, sem sagði í samtali við mbl.is á dögunum að kosningarnar séu „rosalega mikilvægar“ en ástæða þess að kosningarnar eru „rosalega mikilvægar“ er að vísu önnur en Dagur tíndi til. Hann nefndi að á næsta kjör- tímabili „fara borgarlínan og Miklubrautarstokkur í fram- kvæmd, margar framkvæmdir klárast en aðrar fara í gang,“ og bætti því við að hætta væri á að framkvæmdir tefðust ef „fólk sem er með óljósa framtíðar- sýn“ kæmist að. Og hann nefndi einnig að ef ætti að kollvarpa stefnunni væri hætt við að hús- næðisuppbygging tefðist og taf- irnar í umferðinni yrðu meiri. Fyrir þá sem þurfa um þessar mundir að kaupa húsnæði þegar ekkert fæst og bíða löngum stundum í umferðinni, hvort tveggja í boði meirihluta Sam- fylkingar, Pírata, VG og Við- reisnar, eru þessi ummæli væg- ast sagt undarleg en þau lýsa líka þeirri fjarstæðukenndu kosningabaráttu sem nú er haf- in um höfuðborgina. Þýðing þeirra kosninga sem framundan eru ætti að vera mikil en ekki af þeim ástæðum sem Dagur nefnir og þeirrar stefnu sem hann og meiri- hlutaflokkarnir fylgja í þeim málum. Kosningarnar sem framundan eru í höfuðborginni ættu að vera þýðingarmiklar vegna þess að höf- uðborgin er í mikl- um vanda eftir langvarandi óstjórn vinstri manna og rangr- ar stefnu sem rekin er af ofsa og yfirgangi. Vandi Reykjavíkur kemur skýrt fram í fjárhag borgarinnar sem er vægast sagt slæmur og fer hratt versnandi. En vandi reykvískra kjósenda er að um þennan fjárhagsvanda borgarinnar ræðir varla nokkur frambjóðandi og ekkert fram- boð leggur áherslu á að leysa þennan vanda. Það er varla á hann minnst. Sumir minni- hlutaflokkar hafa að vísu nefnt hann þó að hann sé ekki efstur á blaði en meirihlutinn kannast ekki einu sinni við hann. Og kosningaloforðin bera þess merki. Í stað þess að fram- boðin leggi áherslu á aðhald í rekstri og ábyrga fjármála- stjórn eru útgjaldaloforðin alls- ráðandi rétt eins og aldrei komi að skuldadögunum. Stærsta út- gjaldamálið, borgarlínan svo- kallaða sem mun þrengja götur og tefja umferð, er meira að segja keyrt áfram eins og ekk- ert hafi í skorist. Og ekki nóg með það, einstaka framboð býð- ur jafnvel upp á að hraða ósköp- unum! Það er þess vegna rétt að næsta kjörtímabil getur verið afar þýðingarmikið og eru ástæðurnar fleiri en hér hafa verið nefndar. En kjósendum í borginni hlýtur að fyrirgefast þó að þeir eigi erfitt með að finna leiðina út úr ógöngunum. Mörg framboð vilja spóla áfram og jafnvel enn hraðar út í ógöngurnar} Mikill vandi, lítið um lausnir Kremlarbændur hafa lýst því yfir að vopnasend- ingar vestrænna ríkja til Úkraínu ógni öryggi Evrópu. Þetta væri auðvitað nokkuð brosleg yfirlýsing ef að- stæður væru ekki jafn grafalvar- legar og raun ber vitni. Stríðið hryllilega virðist ekki vera að nálgast endalokin, þvert á móti gæti það verið að færast í átt til langtímaátaka þar sem stór hluti Úkraínu yrði allt að því lagður í eyði. Og efnahagslega stríðið er farið að bíta. Óljóst er hvert bitið er á almenning austan megin enda fáar áreiðanlegar fregnir sem þaðan berast. En vestan megin efnahagslegu víg- línunnar sjást áhrifin orðið vel í vöruverði og minnkandi kaup- mætti. Hætt er við að þetta ástand fari versnandi áður en það lagast. Það að rússnesk stjórnvöld hafi ákveðið að skrúfa fyrir gas til tveggja ríkja Evrópu með tilheyrandi áhrifum á orkuverð var ekki til að bæta úr skák, en þó er lokun á gas- viðskipti líklega það efnahags- vopn sem helst gæti bitið á Rússa. Lokun Rússa kann því að hafa verið hættuspil, ekki síst ef hún verður til þess að þjóðir vest- an megin fara að átta sig á að þær geta ekki leyft sér að vera háðar Rússum um orku. En hækkandi orkuverð skilar sér líka í auknum tekjum Rúss- lands, sem vissulega var ekki ætlunin vestan megin. Gasrisi Rússa, Gazprom, tilkynnti í gær um gríðarlega aukinn hagnað í fyrra. Orkuverðið nú ætti að tryggja áframhaldandi góða af- komu. Þetta er öfugsnúið ástand og óskemmtilegt, en gæti líka orðið til að draga stríðið á langinn. Gazprom kynnir ofurhagnað og stríðinu virðist ekkert vera að linna} Öfugsnúið ástand V irk samkeppni er einn af horn- steinum efnahagslegrar vel- gengni. Efnahagsleg áhrif virkrar samkeppni hafa verið rannsökuð ítarlega af fjölmörg- um hagfræðingum víðs vegar um heiminn og meðal annars hefur Efnahags- og fram- farastofnunin OECD haldið vel utan um niðurstöður þeirra. Reynslan hefur sýnt að virk samkeppni hefur hvetjandi áhrif á fyrirtæki til þess að auka skilvirkni og hag- kvæmni í rekstri sínum, draga úr sóun og stuðla að bættri þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Í slíku umhverfi keppast fyrirtæki einnig við að laða að sér hæfasta mannauð- inn með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á hag launafólks. Þá leiðir virk samkeppni ótvírætt til lægra vöruverðs og aukins vöru- framboðs og heilbrigðari viðskiptahátta til hagsbóta fyrir neytendur. Hlutverk stjórnvalda er að skapa skilyrði fyrir virka samkeppni. Stjórnvöld reglusetja atvinnulífið með ítar- legum hætti á hverju ári og hagsmunasamtök fyrir- tækja og neytenda eru dugleg í að halda stjórnvöldum við efnið. Slíkt aðhald er mikilvægt. Það þarf að huga sérstaklega vel að því við undirbúning löggjafar og ann- arrar reglusetningar atvinnulífsins að áhrif reglnanna á atvinnulífið, neytendur og skilyrði fyrir virka sam- keppni séu metin, og til þess nýtt meðal annars hug- myndafræði OECD um samkeppnismat. Í skýrslu stofnunarinnar eru fjölmargar tillögur til breytinga á gildandi regluverki til að draga úr duldum og lítt duldum samkeppnishindrunum sem af því leiða og efla þannig samkeppni. Skilvirkni í eftirliti með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja er mikilvægur þáttur í að tryggja að ábati samkeppninnar skili sér til neytenda. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar kemur fram að stefnt skuli að samein- ingu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu og að kannaðir verði möguleikar á sameiningu við aðrar stofnanir eftir atvikum sem getur aukið samlegðaráhrif og skilvirkni í opinberu eftirliti. Meginmarkmiðið er að styrkja sam- keppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi netviðskipta og efla al- þjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnu- lífs. Leiðbeinandi hlutverk eftirlitsstofnana verður skýrt til að tryggja betri eftirfylgni. Samkeppnis- og neytendamál eru kannski ekki fyrsta umræðuefnið á kaffistofunni á hverjum degi en þau breyta svo sannarlega miklu fyrir daglegt líf okkar. Sér í lagi á þeim tímum sem við lifum á um þessar mundir þar sem hrávöruskortur og hækkandi vöruverð eru staðreynd um heim allan. Við þurfum ávallt að vera á tánum og tryggja bestu mögulegu umgjörð utan um virka samkeppni, samfélaginu öllu til hagsbóta. Ágúst Bjarni Garðarsson Pistill Samkeppnismál eru stórt efnahagsmál Höfundur er þingmaður Framsóknar og fyrsti varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is R íkasti maður í heimi, Elon Musk, hefur keypt einn áhrifamesta samfélags- miðil og umræðuvettvang veraldar, Twitter, og verði engin ljón á vegi þeirra viðskipta á næstunni getur hann farið sínu fram með þenn- an miðil að eigin geðþótta. Yfirlýst markmið hans með kaupunum er að opna þar allar gáttir málfrelsis, þannig að sérhverjar skoðanir sem ekki brjóta í bága við lög fái hindrunarlausa útrás. Margir hafa áhyggjur af því að nú fái haturs- orðræða og fordómar af öllu tagi að flæða yfir netið í nafni málfrelsis. En Musk tekur líka mikla áhættu með kaupunum; ef notendur verða ósáttir við þá stefnu sem Twitter mun taka í vasanum á honum geta þeir yfirgefið miðilinn og þá blasa við sóknarfæri keppinauta. Undrabarn En hver er þessi maður sem get- ur galdrað fram 44 milljarða banda- ríkjadala á nokkrum dögum? Fjár- hæðin er kaupverðið á Twitter. Elon Musk fæddist í Suður- Afríku árið 1971 og er því rétt rúm- lega fimmtugur. Sagan segir að að- eins tíu ára gamall hafi hann keypt sína fyrstu tölvu og 12 ára selt sinn fyrsta tölvuleik. Hann var semsé nokkurs konar undrabarn. En þrátt fyrir að hafa komist upp á lagið með tölvutæknina og forritun ungur er Musk ekki einn af þeim sem létu skólagöngu lönd og leið. Hann lauk raunar tveimur háskólagráðum frá háskólanum í Pennsylvaníu í Banda- ríkjunum, en þangað fluttist hann ár- ið 1992. Musk lauk bæði BA-gráðu í hagfræði og eðlisfræði og hugðist halda áfram í doktorsnám við Stan- ford-háskóla. Hann hóf þó aldrei nám við Stanford heldur hellti sér af full- um krafti út í netbransann og stofn- aði sitt fyrsta fyrirtæki, Zip2, um miðjan tíunda áratuginn. Þríkvæntur með sjö börn Ekki hefur hann verið sérlega farsæll í einkalífinu. Hann er þrí- kvæntur og á sjö börn og hefur staðið í mörgum samböndum. Skilnaður hans við fyrstu eiginkonuna, rithöf- undinn Justine Wilson, var erfiður og hún ber honum ekki vel söguna. Fimm barnanna eru úr því sam- bandi. Í þann mund sem þau stigu út á gólfið og af stað í brúðarvalsinn á hann að hafa hvíslað í eyra hennar „ég er „alfa“ í þessu sambandi“. Það reyndist rétt, hann vildi ráða yfir lífi hennar og hún varð smám saman óhamingjusamari í samvistum við milljarðamæringinn. Musk er sagður fullkomnunar- sinni sem aldrei hætti. Standi hann frammi fyrir óleystu vandamáli eigi hann afar erfitt með að hætta fyrr en málið sé leyst. Hann hefur einnig orð á sér fyrir að vera harður við undir- menn sína og hefur rekið fólk fyrir afar litlar sakir eins og að verða það á að senda tölvupóst með stafsetn- ingarvillu. Mörg fyrirtæki Einhvers konar snilligáfu og miklum frumkvöðlahæfileikum virð- ist hann þó búa yfir og helstu tækni- frömuðir heims bíða jafnan í ofvæni eftir því upp á hverju Elon Musk finnur næst. Frægastur er hann fyrir Tesluna, rafbílinn sem farið hefur sigurför um heiminn. Hjá Teslu ræð- ur hann öllu með um fimmtung hluta- fjár í sínum höndum. Hann stofnaði einnig geimferðafyrirtækið SpaceX árið 2002, á þar tæpan helming hluta- fjár, en það byggist á draumi Musks um að smíða tiltölulega einfaldar og ódýrar eldflaugar sem hægt er að skjóta upp í geim oftar en einu sinni. Musk er enn fremur maðurinn á bak við greiðslugáttina PayPal sem gerir notendum kleift að borga fyrir vörur á netinu. Hann seldi fyrirtækið síðar. Árið 2016 eignaðist hann sólarsellu- fyrirtækið SolarCity. Og hann er á bak við fyrirtækið StarLink sem heldur úti gífurlegum fjölda gervi- hnatta í því skyni að auðvelda umferð á netinu. Árið 2017 stofnaði hann Neuralink, fyrirtæki sem vinnur að þróun á tækni á sviði gervigreindar. Er hugmyndin að gera fólki kleift að stjórna tækjum með huganum ein- um. Óhætt er því að segja að Elon Musk ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hann vindur sér í verkefnin. Liggur ekki á skoðunum sínum Musk liggur ekki á skoðunum sínum um dægurmálin, kveður jafn- an fast að orði og lendir stundum í vandræðum fyrir vikið. En fram hjá því verður ekki horft að framlag hans til að leysa ýmis brýn umhverf- isvandamál hefur verið meira en flestra annarra, þar á meðal umhverfisverndarsinna og stjórn- málamanna sem tala meira en þeir framkvæma. Hið mikla veldi hans er byggt á hugviti og framtaki, hann er sístarfandi, er að allan sólarhringinn og uppsker í samræmi við það. Umdeildur maður hugvits og framtaks AFP Ríkastur í heimi Milljarðamæringurinn Elon Musk rekur fjölda fyrirtækja í Bandaríkjunum og er þekktur fyrir margs konar óvanaleg uppátæki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.