Morgunblaðið - 29.04.2022, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
✝
Árni Jón Árna-
son fæddist 18.
mars 1939 á fæð-
ingarheimili
Reykjavíkur. Hann
lést á hjúkr-
unarheimili Hrafn-
istu á Sléttuvegi í
Reykjavík 13. apríl
2022.
Foreldrar hans
voru Guðrún Sol-
veig Einarsdóttir
frá Hróðnýjarstöðum í Lax-
árdal, f. 7. janúar 1899, d. 27.
mars 1995, og Árni Jónsson
Árnason frá Köldukinn í Hauka-
dal, f. 9. maí 1896, d. 24. apríl
1949.
Systur Árna eru Steinunn, f.
15. maí 1929, d. 22. júní 2021,
Ingiríður (Inga), f. 5. mars 1932,
Guðrún Lilja (Lillý), f. 6. ágúst
1934, og (Brynhildur) Erna, f. 7.
júlí 1943.
Árni giftist Eddu Þorsteins-
dóttur, f. 11. maí 1945. For-
eldrar hennar voru Guðrún
Jónsdóttir, f. 23. apríl 1904, og
Árni ólst upp í Norðurmýr-
inni í Reykjavík, gekk í Austur-
bæjarskóla og síðar í Iðnskólann
og nam húsgagnasmíði. Hann
lærði hjá móðurbróður sínum,
Helga Einarssyni, sem áður
lærði hjá föður Árna. Hann vann
eftir nám hjá Helga, en fór svo
til Kaupmannahafnar og vann á
húsgagnaverkstæði Söborg Mö-
belfabrik, sem var í eigu Jacob-
sen-fjölskyldunnar. Þegar Árni
flutti aftur til landsins réð hann
sig í vinnu hjá frænda sínum
Þorvaldi Daníelssyni sem var
með umsjón með byggingar-
framkvæmdum hjá Loftleiðum.
Í framhaldi af því vann Árni
mikið fyrir Loftleiðir og stofn-
endur félagsins og setti upp sína
eigin húsgagnavinnustofu og
smíðaði húsgögn og innrétt-
ingar. Þegar hann hætti með
verkstæðið fór hann að vinna á
Hótel Loftleiðum í fjölmörg ár
við viðgerðir og viðhald, en síð-
ustu starfsárin vann hann hjá
Búnaðarbanka Íslands, síðar
Kaupþing og Arion banka, við
viðhald og rekstur fasteigna.
Útförin fer fram frá Háteigs-
kirkju í dag, 29. apríl 2022,
klukkan 14.
Þorsteinn Sigurðs-
son, f. 9. mars 1902.
Börn Árna og
Eddu eru: 1) Árni
Jón, f. 15. maí 1966,
giftur Ingibjörgu
Guðmundsdóttur, f.
15. janúar 1971.
Dóttir þeirra er
Kristín Lovísa, f.
23. nóvember 1998,
sambýlismaður
hennar er Óskar
Herbertsson. Barn Árna Jóns er
Aðalsteinn Dan, f. 3. desember
1991, móðir hans var Kristín Að-
alsteinsdóttir. 2) Þorsteinn, f.
14. júlí 1968. 3) Erna Sif, f. 3
apríl 1973, maki Guðni Gunn-
arsson, f. 16. janúar 1967. Börn
Ernu eru: Edda Kristín, f. 15.
apríl 1990, sambýlismaður er
Eyþór Smári Þórbjörnsson,
barn þeirra er Sóley Kara, f. 20.
desember 2018. Árni Hlynur, f.
29. júlí 1995, sambýliskona er
Ágústa Hjartardóttir. Smári, f.
26. september 2000. Aron
Guðni, f. 5. desember 2010.
Elsku pabbi er búinn að
kveðja okkur eftir erfið veikindi.
Síðustu dagar hafa verið
skrítnir en við fjölskyldan höf-
um verið umvafin væntumþykju
frá fjölskyldu og vinum sem
vilja allt fyrir okkur gera. Marg-
ar sögur af pabba hafa verið
sagðar og mikið hlegið enda var
pabbi bara einfaldlega svo vin-
gjarnlegur og léttur í skapi að
flestum líkaði strax vel við hann.
Krakkarnir mínir hlæja oft
þegar þeim dettur í hug hlut-
irnir sem afa þeirra datt í hug
að segja eða gera. Síðustu daga
hef ég oft kíkt á myndirnar sem
voru teknar í síðasta fríinu okk-
ar saman. Þá fóru mamma og
pabbi í langferð til að vera við
útskrift Smára sonar míns.
Heilsan var alls ekki góð og
hugmyndin um að fara með
hann í frí erlendis var dálítið
áhyggjuefni, en auðvitað varð
hann hrókur alls fagnaðar. Hon-
um datt í hug að spila tennis,
var upphafsmaðurinn að hverf-
isvatnsslag og var fyrstur mætt-
ur út í bíl þegar synir mínir og
tengdasonur fóru á rúntinn á
kvöldin. Með krökkunum mínum
fannst honum gaman og hann
naut hverrar mínútu.
Pabbi og mamma hafa alltaf
staðið þétt við hlið mér og verið
börnunum mínum stoð og stytta.
Þegar ég var 17 ára gömul og
eignaðist Eddu Kristínu, héldu
pabbi og mamma þétt utan um
okkur mæðgur.
Þau voru meira foreldraí-
mynd heldur en afi og amma
þar sem þau hugsuðu um hana
sem sína eigin dóttur á meðan
ég var í skóla og vann. Öll um-
hyggja hans og mömmu fyrir
mér og krökkunum mínum hef-
ur verið ómetanleg.
Mamma stóð alltaf við hlið
pabba, það kom ekki til greina
að láta aðra gera það sem hún
mögulega gat gert fyrir hann.
Hennar orð voru alltaf: við höf-
um gert allt saman síðan ég var
19 ára og ég ætla að halda því
áfram meðan ég get.
Á hliðarlínunni hafa systur
pabba: Inga, Lillý og Erna stað-
ið þétt við bakið á þeim enda
samrýmdari systkini ekki hægt
að finna. Eins hafa systkinabörn
pabba verið þeim ómetanleg. Má
þar sérstaklega nefna Tryggva
Gunnarsson sem fór með bros á
vör í óteljandi heimsóknir til
þeirra og eins Gurrý Sigurð-
ardóttir sem alltaf er reiðubúin
að rétta þeim hjálparhönd.
Elsku pabbi. Takk fyrir allt
sem þú hefur verið mér.
Þín dóttir,
Erna.
Elsku afi Árni, ég er svo
þakklátur fyrir að hafa átt þig
að. Þú varst mér sem faðir og
ég gat alltaf fundið hlýju og ást í
faðmi þínum. Það er erfitt að
hugsa til þess að nú sé komið að
kveðjustund. Á slíkum stundum
er gott að rifja upp fallegar
minningar og góðar stundir, en
ég var heppinn að eiga margar
með þér. Afi hafði einstakt lag á
því að segja sögur og sagði mér
frá skemmtilegum minningum
frá æsku sinni, Loftleiða-ævin-
týrum, ferðum vestur á Skógar-
strönd og hvernig Steinunn
kynnti hann fyrir glæsilegri
dömu á sveitaballi, sem stuttu
síðar varð stóra ástin í lífi hans,
Edda amma. Amma hefur síðan
þá séð til þess að sögurnar sem
afi átti til að betrumbæta og
skreyta örlítið, innihéldu mik-
ilvægar staðreyndir. Við afi
deildum einnig sameiginlegu
áhugamáli sem var að fylgjast
með íþróttum og þá sérstaklega
fótbolta. Það var ekki annað
hægt en að lifa sig inn í leikina
með afa sér við hlið. Á spenn-
andi augnablikum lifði hann sig
svo mikið inn í leiki, að hann
sparkaði frá sér í borð og stóla
og við það hlaut hann þó nokkur
væg íþróttameiðsl. Ég gæti rifj-
að upp svo margar minningar en
það sem einkennir þær allar eru
góðmennskan, gleðin og hlýjan
sem þú bjóst yfir. Þessar ómet-
anlegu stundir mun ég geyma í
hjarta mér um ókomna tíð eins
og ég geymi minninguna um
þig, elsku afi.
Ástarkveðja,
þinn nafni,
Árni Hlynur.
Með sorg í hjarta minnist ég
elsku afa míns. Þakklæti er mér
efst í huga þegar ég minnist afa.
Hlýjan og væntumþykjan sem
amma og afi hafa gefið okkur
systkinunum er ómetanleg. Ég
hálfpartinn ólst upp í Stangar-
holti, þar sem við mamma áttum
heima fyrstu árin mín, og síðar
hef ég alltaf haft aðra löppina
inni á heimili þeirra. Alltaf þeg-
ar ég var hjá þeim fannst mér
ég vera heima. Ég á eftir að
sakna þess að sitja með honum
og ömmu á kvöldin, drekka te
og spjalla um allt og ekkert.
Afi var góður og skemmti-
legur maður, alltaf til í glens og
gaman en hann var líka mikil til-
finningavera. Hann var alltaf
með spilastokk við höndina og
sagði skemmtilegar sögur af sín-
um yngri árum, það var alltaf
jafn ótrúlegt hversu vel og ít-
arlega hann mundi eftir æskuár-
um sínum. Afi var í miklu uppá-
haldi hjá Sóleyju Köru dóttur
minni. Hann var svo einstaklega
lunkinn að fá hana til að hlæja
með alls kyns hljóðum og lát-
bragði.
Elsku besti afi minn, takk
fyrir allt, takk fyrir ástina og
hlýjuna sem þú hefur gefið mér
og okkur. Ég er svo lánsöm að
hafa átt þig sem afa og ég lofa
að ég mun hugsa vel um ömmu
fyrir þig.
Edda Kristín.
Mig langar að minnast Árna
bróður míns sem var mér bæði
kær og góður og vorum við
miklir vinir. Árni fæddist á fæð-
ingarheimilinu á Eiríksgötu og
ég man vel eftir því þegar
mamma og pabbi komu með
hann nýfæddan heim. Við vorum
þrjár eldri systur sem tókum
virkan þátt í uppeldi Árna en
hann var í miklu uppáhaldi hjá
okkur öllum. Síðar bættist
fimmta barnið í hópinn, lítil
systir. Þetta voru góð ár, fjöl-
skyldan átti skemmtilegar
stundir og við eyddum miklum
tíma á trésmíðaverkstæðinu í
Skólastræti 1b hjá pabba. Árni
missti örugglega meira en flestir
þegar pabbi dó á miðjum aldri
árið 1949. Hann saknaði alltaf
pabba síns. En lífið hélt áfram.
Við, eldri systur Árna, stofn-
uðum allar heimili hver af ann-
arri. Eiginmenn okkar og Árni
urðu nánir og ævilangir vinir.
Þá vil ég minnast á það að
yngsta systir okkar og Árni áttu
einstaklega kærleiksríkt systk-
inasamband.
Þegar við Sigurður bjuggum
erlendis kom Árni nokkrum
sinnum í eftirminnilegar heim-
sóknir. Árni var alltaf léttur og
sagði skemmtilega frá. Þá var
hann mikill veiðimaður og hann
á heiðurinn af því að kenna mér
á fluguveiðar sem var eitt af því
skemmtilegasta sem ég gerði
þegar ég var yngri. Árni kvænt-
ist yndislegri konu, Eddu Þor-
steinsdóttur, og eignuðust þau
þrjú góð og mannvænleg börn.
Edda er einstök mágkona sem
hefur reynst bæði mér og allri
fjölskyldunni ótrúlega vel.
Mamma hafði það oft á orði
hversu lánsöm hún var að eign-
ast þessa góðu tengdadóttur.
Eddu og afkomendum þeirra
Árna bið ég Guðs blessunar. Við
eigum öll eftir að sakna Árna
bróður míns mikið.
… en minningin lifir
þótt maðurinn deyi,
björt eins og sól
á sumarvegi.
(SM)
Guð blessi þig Árni minn allar
stundir.
Ingiríður (Inga) systir.
Systkinahópurinn á Mána-
götu 24 var samheldinn og hélt
góðu sambandi sín á milli. Nú er
skarð fyrir skildi þegar tvö af
systkinunum hafa fallið frá á
stuttum tíma. Árni Jón er fjórði
í röð fimm systkina og einkason-
ur foreldra sinna. Fjölskyldan
upplifði mikið áfall þegar Árni
Jón Árnason eldri, húsgagna-
smíðameistari, dó einungis 53
ára að aldri árið 1949. Guðrún
amma hélt fjölskyldunni vel
saman og Árni Jón fetaði í fót-
spor föður síns og lærði hús-
gagnasmíði og dvaldist um tíma
í Danmörku sem ungur maður
til að afla sér reynslu og þekk-
ingar á því sviði.
Fjölskylda mín bjó um árabil
erlendis og við fluttum heim til
Íslands árið 1967. Mér er minn-
isstætt hversu vel Guðrún
amma, systkini mömmu og fjöl-
skyldur þeirra tóku á móti okk-
ur. Það var mikið ævintýri fyrir
ungan dreng að uppgötva þessa
stóru og áhugaverðu fjölskyldu.
Árni Jón var þá á besta aldri,
nýlega búinn að kvænast Eddu
konu sinni og Árni Jón sonur
þeirra rétt ríflega ársgamall.
Árni var skemmtilegur og
sannkallaður töffari sem var
gaman að umgangast. Hann rak
sína eigin smíðavinnustofu fram-
an af starfsævinni og leysti úr
hinum ýmsu verkefnum fyrir
viðskiptavini sína og var ótrú-
lega greiðvikinn við ættingja og
vini. Ég á margar góðar æsku-
minningar af Árna. Gamlárs-
kvöldin á Mánagötu 24, veiðitúr-
ar á sumrin og svo margt fleira.
Árni var mikill sögumaður og
hafði bæði gaman af því að
segja og hlusta á sögur af mönn-
um og málefnum. Þá var hann
mikill áhugamaður um bækur
og átti alltaf stórt og mikið
bókasafn sem hann grúskaði í.
Ég vandist því í uppvexti
mínum að ef leysa þurfti flókin
og erfið verkleg viðfangsefni þá
var viðkvæðið alltaf: „Við fáum
Árna bróður eða mág til hjálpa
okkur.“ Ég var áhugasamur um
alla svoleiðis hluti og sumum
fannst jafnvel nóg um. Ég lærði
mikið af Árna með því að fylgj-
ast með honum og síðar þegar
við veiddum aðeins saman þá
leiðbeindi hann mér fyrstu spor-
in í laxveiðinni. Á þessari stundu
er mér því efst í huga þakklæti
til Árna.
Ég votta Eddu og frænd-
systkinum mínum Árna Jóni,
Þorsteini og Ernu Sif og fjöl-
skyldum þeirra innilega samúð
vegna fráfalls Árna Jóns. Minn-
ingin lifir.
Guðbrandur Sigurðsson.
Á þessum árstíma þegar allt
er að vakna aftur til lífsins eftir
erfiðan vetur kvaddi móðurbróð-
ir minn, Árni Jón Árnason. Oft
héldum við í vetur að stundin
væri runnin upp en Árni kom
okkur sífellt á óvart þar til
þróttur hans var á enda aðfara-
nótt 13. apríl.
Árni Jón var fjórði í röðinni
af fimm börnum ömmu minnar
og afa, Árna J. Árnasonar hús-
gagnasmíðameistara og Guðrún-
ar S. Einarsdóttur, sem byggðu
sér heimili á Mánagötu 24 í
Reykjavík. Þar ólst Árni upp,
umvafinn fjórum systrum. Elsta
systirin, Steinunn, lést í júní
2021. Eftirlifandi systur eru
Inga, Guðrún Lilja og Brynhild-
ur Erna. Það var mjög gest-
kvæmt á Mánagötunni, hvort
heldur sem var í mat eða kaffi
og það var ekki óalgengt að
gestir utan af landi fengju að
gista í lengri eða skemmri tíma.
Á Mánagötunni var því oft glatt
á hjalla. Afi minn rak trésmíða-
verkstæði í Skólastræti og
amma sá að mestu um barna-
uppeldi og heimilið auk þess
sem hún saumaði nánast allt á
börnin sín.
Það var fjölskyldunni mikið
áfall þegar afi minn lést langt
um aldur fram eftir stutt veik-
indi. Árni Jón var 10 ára gamall
og það má geta sér þess til
hversu mikil áhrif þetta hafði á
drenginn. Sennilega hefur Árni
eftir þetta alltaf ætlað sér að
feta í fótspor föður síns því hann
lærði húsgagnasmíði. Snemma á
sjöunda áratugnum flutti hann
til Danmerkur og var þar við
nám og störf um tíma. Það er
ekki ofsögum sagt að Árni Jón
var einstaklega fær húsgagna-
smíðameistari. Það bókstaflega
lék allt í höndunum á honum,
hvort sem það var að smíða
bókaskápa úr gegnheilum viði,
pússa upp útidyrahurðir, smíða
innréttingar í íbúð eða gera við
grindverk. Hann gekk fagmann-
lega að öllum smíðaverkefnum,
stórum sem smáum. Hann
kenndi mér að greina hvort hús-
gögn væru vönduð eða ekki.
Orðinn mjög veikur var hann að
dást að smíði innréttinga í ný-
legri íbúð dóttur minnar.
Mín fyrsta minning um Árna
er frá því hann, rúmlega tvítug-
ur, heimsótti okkur fjölskylduna
til Edinborgar. Hann kunni að
gleðja litlu frænku sína með fal-
legum, myndskreyttum bókum
úr Grimmsævintýrum. Seinna
heimsótti hann okkur til Eng-
lands um páska og kom þá frá
Danmörku. Árni var þannig per-
sónuleiki að maður sóttist eftir
því að vera í návist hans. Hann
var mikil félagsvera og var frá-
bær gestgjafi. Hjá Árna var allt-
af stutt í glens og gaman. Hann
dansaði nánast út í bílinn minn
fyrir nokkrum mánuðum þótt
fæturnir gætu varla borið hann.
Spilakvöldin með vinunum voru
Árna mikils virði. Mömmu minni
og pabba var Árni mikil stoð og
stytta og það gleymist ekki
hversu mörgum klukkustundum
hann varði hjá þeim og aðstoð-
aði þegar þau voru að minnka
við sig. Í seinni tíð talaði Árni
oft um árin sem hann var að
vinna fyrir Loftleiðir. Ég tel að
hjá því fyrirtæki hafi honum
þótt einna skemmtilegast að
vinna og þar eignaðist hann
nokkra af sínum bestu vinum.
Á kveðjustundu viljum við
mæðgur, ég og Valdís, þakka
Árna móðurbróður mínum fyrir
allar ógleymanlegu samveru-
stundirnar. Megi ljós og kær-
leikur blessa minningu Árna og
umvefja Eddu, börnin og aðra
afkomendur.
Guðríður S. Sigurðardóttir.
Mig langar til að minnast
elskulegs frænda míns, Árna
Jóns Árnasonar, með fáum orð-
um nú þegar göngu hans er lok-
ið í þessari jarðvist. Við vorum
systrasynir, mæður okkar, Guð-
rún móðir Árna og Hróðný móð-
ir mín, voru frá Hróðnýjarstöð-
um í Dölum, dætur Einars
Þorkelssonar og Ingiríðar Hans-
ínu Hansdóttur sem þar bjuggu.
Þarna ólust þær upp í stórum
og glaðværum barnahópi, alls
níu systkin við gott atlæti for-
eldra sinna. Þegar þær voru
orðnar fullorðnar fluttust þær
báðar til Reykjavíkur og reynd-
ar fleiri Hróðnýjarstaðasystkin
og það var góður samgangur á
milli heimila þeirra sem ég
minnist alltaf með ánægju. Inn í
þetta samfélag fæddist Árni um
það leyti sem við fluttum austur
í Hveragerði og þá var ég um 10
ára aldur. Það fækkaði svolítið
samskiptum eftir þetta, en þær
systur voru samt alltaf mjög
tengdar og við fjölskyldan öll.
Það var síðan mikið áfall fyrir
Árna, þegar hann missti föður
sinn, sem lést langt um aldur
fram, 1949. Eftir þetta ólst hann
upp með móður sinni í stórum
systrahópi. Hann lærði hús-
gagnasmíði hjá móðurbróður
sínum Helga Einarssyni og vann
við þá iðn alla tíð. Það var svo
um það leyti sem við Ragna fór-
um að búa að tengslin við Árna
og móður hans urðu meiri. Það
var alltaf gott að fá hann í heim-
sókn, spjalla og spyrja hann
ráða um ýmislegt er varðaði
heimilið. Hann var ráðagóður
frændi. Ég minnist samt sér-
staklega ferðarinnar sem við
fórum vestur í Dali til að kanna
veiðivötnin á Gaflfellsheiði. Það
var ekki heiglum hent því við
vorum báðir bíllausir. Þetta var
á þeim tíma þegar menn áttu
ekki almennt slík farartæki. Það
varð því úr að ég fór með rút-
unni vestur með svefnpoka og
tjald og kom við í Brautarholti
hjá Gunnari og Steinunni systur
Árna. Hann var þá kominn
þangað og búinn að útvega okk-
ur bílfar hjá Binna, mági Stein-
unnar, fram í Ljárskógarsel.
Þetta var mikið tilhlökkunarefni.
Meðan Binni stóð við veiddi
hann strax vænan silung, en við
tjölduðum og gerðum okkur
klára. Nú skyldi aldeilis veitt.
En það varð ekki svoleiðis. Allt
kvöldið reyndum við og reynd-
um, en allt kom fyrir ekki. Hann
vildi ekki bíta á. Við lögðumst
loks til svefns og snemma næsta
morgun bjuggumst við til langr-
ar göngu alla leið niður að Hróð-
nýjarstöðum. Þetta var erfið
ganga í miklu kjarrlendi og við
vorum fegnir því að þurfa ekki
að bera allan silunginn með okk-
ur, sem við höfðum ætlað að
veiða. Það var þó bót í máli.
Þetta var nokkurs konar píla-
grímsganga og góð æfing fyrir
lífið sem var framundan. Ég vil
að lokum þakka Árna fyrir sam-
fylgdina og við hjónin sendum
aðstandendum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Svanur Jóhannesson.
Árni Jón Árnason
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BRAGI HALLDÓRSSON,
áður til heimilis í Sólheimum 23,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn
25. apríl. Útförin verður auglýst síðar.
Sigmar Ólafsson Pálína Pálsdóttir
Aðalsteinn Bragason Asa Clausen
Sölvi Bragason Sigurbjörg Þorleifsdóttir
Halldór Bragason Soffía Magnúsdóttir
afabörn og langafabörn
Elsku maðurinn minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR PÁLMAR GÍSLASON,
Móaflöt 55, Garðabæ,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði miðvikudaginn
27. apríl. Útför verður auglýst síðar.
Kristín Eiríksdóttir
Helga Sigurðardóttir Björn Jónsson
Gunnar Kr. Sigurðsson Anna R. Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn