Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 33

Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 SÉRÐU EKKI ÚT? Við þrífum glugga og háþrýstiþvoum byggingar Faglegar heildarlausnir og samkeppnishæf verð. Allt á einum stað. Dalshraun 6 | 220 Hafnarfjörður | 581 4000 solarehf.is | solarehf@solarehf.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG GLEYMDI BÉVÍTANS LYKILORÐINU ENN EINU SINNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... oft á valdi örlagadísanna. ÞAÐ STYTTIST Í JÓLIN MEÐ ALLAR SÍNAR JÓLAKÖKUR, SÆLGÆTIOG KRÆSINGAR SUMARIÐ ER LÖNGU BÚIÐ GRETTIR HUGGUN HARMI GEGN EKKI MINNA MIG Á ÞAÐ DAGARNIR ERU AÐ STYTTAST JÁ, JÁ ÞÚ VIRÐIST ÁHYGGJUFULLUR! ERTU AÐ HUGSA UM VINNUNA? HVAÐ HELDUR ÞÚ? „HANN ER ANSI HREINT GÓÐUR Á LUFT- PÍANÓ.“ í bæjarstjórn að vera svolítið já- kvæður og hef verið að segja frá jákvæðum hlutum í bæjarfélaginu, reyndar bara á facebooksíðunni minni, og er með kjörorðið „Blönduós sefur aldrei“!“ Hann var enda kosinn maður ársins í Austur- Húnavatnssýslu árið 2020 af les- endum Húnahornsins fyrir já- kvæðnina og störf sín fyrir kirkju- garðinn. Fjölskylda Eiginkona Valla er Ólöf Pálma- dóttir, f. 24.2. 1956, þjónustu- fulltrúi hjá Motus ehf. Foreldrar Ólafar voru hjónin Pálmi Ólafsson, f. 12.10. 1916, d. 6.12. 2005, bóndi í Holti á Ásum, A-Hún., og Aðal- björg G. Þorgrímsdóttir, f. 20.4. 1918, d. 22.11. 2007, húsmóðir. Börn Valla og Ólafar eru: 1) Aðalbjörg, f. 12.4. 1973, bóndi í Bakkakoti og starfsmaður hjá N1 Blönduósi, eiginmaður hennar er Ragnar Sigtryggsson, bóndi, fram- leiðslustjóri við ullarþvottastöð Ís- tex á Blönduósi og vara- slökkviliðsstjóri á Blönduósi. Börn þeirra eru Gísli, f. 1998, Pálmi, f. 2002, og Guðni, f. 2009; 2) Guð- mann, f. 4.5. 1980, starfsmaður RARIK á Blönduósi og vinnur við áætlanagerð á rekstrarsviði Norð- urlands. Eiginkona hans er Ósk Jó- hannesdóttir, f. 6.11. 1984, hús- móðir. Börn þeirra eru Stefana Björg, f. 2008, og Valdimar Logi, f. 2010. Alsystir Valla var Anna Sigur- laug, 12.8. 1938, d. 29.10. 2006, hús- móðir á Sunnubraut 2, Blönduósi. Hálfbróðir Valla samfeðra var Guðlaugur, 12.5. 1930, d. 8.2. 1982, verkamaður, síðast í Borgarnesi. Foreldrar Valla voru Guðmann Valdimarsson, f. 2.4. 1906, d. 5.6. 1988, bóndi í Bakkakoti, og Laufey Jónsdóttir, f. 25.4. 1911, d. 23.7. 1981, húsmóðir í Bakkakoti. Valdimar Guðmannsson Hólmfríður Ragnhildur Teitsdóttir húsfreyja í Sporðhúsum Jóhannes Jónsson bóndi í Sporðhúsum í Línakradal, V-Hún. Teitný Jóhannesdóttir húsmóðir á Skagaströnd og vinnukona á ýmsum stöðum Jón Jónsson sjómaður og bóndi á Skagaströnd Laufey Jónsdóttir húsmóðir í Bakkakoti Vigdís Guðmundsdóttir ráðskona á Blöndubakka Jón Þorleifsson bóndi í Grafarkoti í Línakradal og á Blöndubakka í Refasveit Ósk Guðmundsdóttir vinnukona í Krossanesi Guðmann Árnason bóndi og hreppstjóri á Ósum og í Krossanesi á Vatnsnesi Anna Ástríður Guðmannsdóttir húsmóðir á Efri-Mýrum Valdimar Ólafur Stefánsson bóndi og grenjaskytta á Efri-Mýrum í Refasveit Helga Halldóra Jónasdóttir húsfreyja á Ytra-Hóli Stefán Valdimar Stefánsson bóndi á Ytra-Hóli á Skagaströnd Ætt Valdimars Guðmannssonar Guðmann Valdimarsson bóndi í Bakkakoti í Refasveit, A-Hún. Í Vísnahorni á miðvikudag er vitnað í gamla sögu úr Eyjafirði þar sem segir að „fremsti bær í Lögmannshlíð hét fyrrum Titt- lingur“. Bjarni Sigtryggsson skrif- ar: „Dálkahöfundur Morgunblaðs- ins um kveðskap leitar oft fanga hér á Boðnarmiði. Afleitt er þó er hann hefur eftir það sem rangt er og lætur undir höfuð leggjast að birta leiðréttingar, sem er þó að finna í sama þræði, líkt og hendir í dag. En þar kom fram þessi leið- rétting, sem Halldór Blöndal hefði mátt lesa og birta: Dagbjartur Dagbjartsson segir leiðinlegt ef vísnaþáttariturum verður það á að birta einhverjar bölvaðar vitleysur. Þekki það al- veg, búinn að vera í þessu í „tött- ögöogfemm ár“ og eitt það versta finnist sér að sjá einhverja bölvaða vitleysu sem sér hafi orðið á að birta og vitnað í sig sem frumheim- ild. Annars varð þessi einhvern tíma til: Oft mér hefur valdið vöku þó væri að basla hvað ég gat að grípa á lofti góða stöku og gera úr henni blaðamat.“ Ólafur Stefánsson er nýkominn frá Suðurlöndum og rómar á Boðn- armiði góðan viðurgerning og þjón- ustu á leiðinni heim: „Þegar búið er að vera í útlenska frauðmetinu í nokkrar vikur, þá er gott að koma í íslenska flugvél á leið heim og finna kaffi- og matarlyktina og brosandi flugfreyjur, sem bjóða menn vel- komna“: Til Íslands með úrvals „staffi“ ómæld er nægtin vís: Þær bera fram Bragakaffi og brauðmeti’ að hætti SÍS. Baldur Hafstað skrifaði mér og sagði að þessi vísa stæði alltaf fyrir sínu en stundum væri ekki farið al- veg rétt með hana og sagt „skemmta sér og gera hitt“. En það þurfi að vera „skemmtun vanda“ til þess að innrímið njóti sín. Síðan bætti Baldur við: „Skála og syngja Skagfirðingar Kári Jónsson frá Valadal í Skaga- firði (1904-1993) orti þessa vísu við Stafnsrétt í Svartárdal haustið 1934 og hefur hún sennilega verið oftar sungin í Skagafirði en nokkur önn- ur vísa. Skála og syngja Skagfirðingar skemmtun vanda og gera hitt. Heyrið slyngir Húnvetningar hér er landaglasið mitt.“ Páll Ólafsson orti „Kappreiðin“: Ekki prestinn óttast þá eg né lesta-strákinn þegar sestur er ég á allra besta fákinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Flugfreyjur og Bragakaffi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.