Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.05.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 PORTÚGAL 9 DAGA FERÐ, FLUG, GISTING OG FARARSTJÓRN ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGUR | 585 4000 | UU.IS 29. MAÍ - 07. JÚNÍ CLUBE ALBUFEIRA 3* SUPERIOR ÍBÚÐ VERÐ FRÁ87.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 127.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA 29. MAÍ - 07. JÚNÍ APARTHOTEL VICTORIA 4* ÍBÚÐ MEÐ ÖLLU INNIFÖLDU VERÐ FRÁ114.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 198.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR BEINT FLUG Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Nóg var um að vera á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Hátíðahöld voru víða um land og voru stóru stéttar- félögin í Reykjavík með vegleg kaffi- samsæti víðsvegar um borgina. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Ís- lands, var meðal þeirra sem héldu ræður á útifundi á Ingólfstorgi í til- efni dagsins. Hvorki Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Efling- ar, né Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR, fluttu ræður á fundinum en bæði hafa þau gagnrýnt forystu ASÍ harðlega. Í ræðu sinni sagði Drífa að enn á ný væri reynt að ljúga því að fólki að bankarnir væru betur komnir í hönd- um fjárfesta, þeirra sömu og beri ábyrgð á efnahagslegum hörmung- um sem komu hart niður á almenn- ingi. Sagði hún einnig að víðar væri reynt að sölsa undir sig almannaeig- ur, hvort sem um leikskóla, öldrunar- heimili eða heilbrigðiskerfið allt væri að ræða. „Eftir því sem hinir ríku verða ríkari þarf að koma peningun- um fyrir og ávaxta þá. Fjárfestar heimsins fara þá að renna hýru auga til almannaeigna og húsnæðis með skelfilegum afleiðingum fyrir vinn- andi fólk, þau sem njóta þjónustunn- ar og almenning allan. Við höfum endalaus víti til að varast,“ segir í ræðunni. „Leikskólar, félagsþjónusta, fjár- málaþjónusta, öldrunarþjónusta, menntun, samgöngur, listir og menn- ing. Allt sem byggt hefur verið upp af okkur er nú í hættu.“ Þá sagði Drífa að húsnæðismálin væru skýrasta dæmið um velferð sem farið hefði út af sporinu og þar væri meira hugsað um fjármagn en fólk. „Verka- mannabústaðakerfinu var slátrað af því að það átti að vera svo frábært að gera alla að litlum kapítalistum í stað þess að huga að húsnæðisöryggi fyrir alla.“ Fordæmdi uppsagnirnar Trúnaðarráð Bárunnar sendi í gær frá sér ályktun í tilefni dagsins, þar sem hópuppsagnir Eflingar voru for- dæmdar. Sagði í ályktuninni að stétt- arfélagið harmaði þá stöðu sem launafólk innan ASÍ hefði orðið vitni að vegna átaka innan hreyfingarinn- ar þar sem ráðist hefði verið að starfsfólki, forseta ASÍ og fleirum og vegið að grundvallarréttindum launafólks. „Trúnaðarráð Bárunnar fordæmir þá ósvífnu og óskiljanlegu ákvörðun Baráttulista stjórnar Efl- ingar að segja öllu starfsfólki á skrif- stofu félagsins upp störfum,“ sagði ennfremur í ályktuninni. Kom þar fram að slíkar aðgerðir hefðu til þessa aðeins tíðkast í fyrir- tækjarekstri og þá sem algjört neyð- arúrræði ef hagræða ætti í rekstri. Segir þar einnig að ein af frumskyld- um stéttarfélaga sé að verja rétt fólks til vinnu og að velferð starfs- fólks eigi að vera í fyrsta sæti. Í ályktuninni er jafnframt lýst yfir full- um stuðningi við starfsfólk Eflingar. „Trúnaðarráð Bárunnar fordæmir það ofbeldi sem einkennt hefur um- ræðuna í kringum málefni Eflingar. Félagsfólk í verkalýðshreyfingunni á skýlausa kröfu til þess að forsvars- menn hreyfingarinnar sýni háttsemi í orðavali og ráðist ekki á félaga sína eða starfsfólk með yfirgangi og ósannindum. Hreyfingin og félagar hennar verðskulda meiri virðingu en umræðan undanfarna mánuði hefur borið vitni um. Ofbeldi á hvergi að þrífast og síst af öllu innan verka- lýðshreyfingarinnar. Trúnaðarráð Bárunnar lýsir yfir fullum stuðningi við starfsfólkið,“ segir í ályktuninni. Dregið úr trúverðugleika Þá vekur trúnaðarráðið jafnframt athygli á að mikill meirihluti starfs- fólks Eflingar sem nú hefur verið sagt upp störfum séu konur og að það dragi úr trúverðugleika hreyfingar- innar í baráttunni fyrir jafnrétti og aukinni virðingu fyrir störfum kvenna almennt. Í ályktuninni er útskýringum stjórnar Eflingar hafnað og telur trúnaðarráðið einsýnt að ástæða uppsagnanna sé krafa um hollustu við formann og stefnu hans umfram kröfur um fagmennsku og þjónustu við félagsfólk. Þá furðar ráðið sig á framgöngu formanna Starfsgreinasambandsins og VR, sem hafi varið þessa aðför að starfsfólki Eflingar. Segir ráðið að þeir hafi brugðist trausti verkalýðs- hreyfingarinnar sem formenn tveggja stærstu landssambandanna innan ASÍ. „Stjórn Bárunnar telur einsýnt að ef verkalýðshreyfingin treystir sér ekki til að verja eigið starfsfólk þá verði erfitt að taka slag- inn fyrir almenna félagsmenn vegna þess fordæmis sem þetta gefur at- vinnurekendum.“ Vilja breytingar til batnaðar Morgunblaðið náði tali af Friðriki Jónssyni, formanni Bandalags há- skólamanna, á baráttudegi verka- lýðsins. „Ég er rétt að ná andanum af því að það er búið að vera svo gaman hérna í dag,“ sagði Friðrik í viðtali við Morgunblaðið. „Það er frábært að hægt sé að koma saman eftir þrjú ár, ég held að það sé undiralda þess að vilja fá ákveðnar breytingar til batnaðar og að þrátt fyrir allt sé veruleg samstaða og samkennd með- al verkalýðshreyfinga á landinu.“ Spurður um hvað sé fram undan í kjarasamningum segir Friðrik að undirbúningur sé á fullu. „Undirbún- ingur er hafinn hjá okkur BHM-fé- lögum þannig að við erum að vinna á fullu og svo erum við að taka tillit til allra nýrra upplýsinga varðandi þró- un efnahags- og alþjóðamála af því að allt hefur þetta áhrif,“ segir hann. „Við þurfum að huga að okkar for- gangsröðun, félögin sjálf eru nátt- úrulega með samningsréttinn og BHM sem regnhlífarsamtök sér um samhæfinguna og að við fáum ákveðna samleið á milli félaganna. Þetta snýst allt um að samstarf. Samvinna og samstaða er það sem skilar árangri.“ „Endalaus víti til að varast“ - Fjölmenni sótti skrúðgöngur á baráttudegi verkalýðsins - Forseti ASÍ segir húsnæðismál farin af sporinu - Báran fordæmdi hópuppsagnir Eflingar - Undirbúningur BHM fyrir kjaraviðræður á fullu Morgunblaðið/Óttar Geirsson Verkalýðsbarátta Fjölmenni mætti í skrúðgöngu í höfuðborginni í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Drífa Snædal Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí og eru tæpar tvær vikur í kosningar. Frá opnun utan- kjörfundaratkvæðagreiðslu hafa samtals 1.839 greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgar- svæðinu en alls hafa 2.537 kosið á landinu öllu. Á sama tíma í sveitar- stjórnarkosningum árið 2018 hafði alls 1.121 greitt atkvæði utan kjör- fundar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Kjörsókn ut- an kjörfundar er því meiri nú en árið 2018. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar stendur yfir í fjórar vikur en í síðustu sveitarstjórnar- kosningum stóð hún yfir í átta vik- ur. Kjörsókn muni aukast verulega næstu tvær vikur Sígríður Kristinsdóttir, sýslu- maðurinn á höfuðborgarsvæðinu, segir að búist sé við að kjörsókn muni aukast verulega næstu tvær vikur og því verði utankjörfundar- atkvæðagreiðsla opin lengur. Frá og með deginum í dag verður hún opin frá klukkan 10 til 22 alla daga vikunnar í Holtagörðum á 2. hæð. Á kjördag, 14. maí, verður opið frá klukkan 10 til 17 fyrir þá sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæð- isins. Kjörsókn meiri nú en árið 2018 - Á landinu hafa 2.537 greitt utan- kjörfundaratkvæði Morgunblaðið/Árni Sæberg Holtagarðar Tæpar tvær vikur eru til sveitarstjórnarkosninganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.