Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Side 9

Morgunblaðið - 02.05.2022, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 RAFHJÓL BREKKA? Ekkertmál. Þú klárar hana á rafhjóli frá okkur Faxafen 8 - www.orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Mari Järsk og Þorleifur Þorleifsson stóðu tvö eftir í Bakgarðshlaupinu á vegum Náttúruhlaupa, þegar þetta var ritað. Höfðu þau þá hlaup- ið nánast viðstöðulaust frá því klukkan níu að morgni laugardags. Bakgarðshlaupið virkar þannig að keppendur leggja af stað á heila tímanum í 6,75 kílómetra hlaup og hafa þá klukkustund til að klára. Nái þau í mark innan tímans fá þau pásu þar til ræst er á ný. Íslands- metið var 25 hringir, en klukkan ellefu í gærkvöldi voru þau Mari og Þorleifur að leggja af stað þrítug- asta og níunda hringinn og voru þar með búin að leggja 263,25 kíló- metra að baki á 38 klukkustundum. Sjálfur Lazarus Lake, maðurinn á bak við bakgarðshlaupin, var kom- inn í hóp þeirra sem fylgjast með árangri tvíeykisins. Skipuleggj- endur hlaupsins eru orðlausir. Óstöðvandi bakgarðs- hlauparar - Á hlaupum frá laugardagsmorgni Ljósmynd/ Náttúruhlaup Framúrskarandi Mari og Þorleifur hlupu galvösk inn í aðra nóttina. Í stilltu og fallegu veðri var hjarta- steinn í minningu rithöfundarins Guðrúnar Helgadóttur afhjúpaður á laugardag fyrir framan Bæjar- bíóið í miðborg Hafnarfjarðar. „Við áttum mjög fallega stund og það komu á þriðja tug ættingja Guðrúnar til að minnast hennar,“ segir Páll Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóri Bæjarbíós. Ákveðið var að tileinka þessa stund nánustu fjölskyldu Guðrúnar, en Rósa Guð- bjartsdóttir bæjarstjóri og Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður bæj- arráðs, afhjúpuðu hjartasteininn. Guðrún Helgadóttir er annar listamaður bæjarins sem hlýtur þennan minnisvarða, en Björgvin Halldórsson tónlistarmaður hlaut fyrsta hjartasteininn á síðasta ári. Eftir athöfnina var boðið upp á létt- ar veitingar og bæjarlistamaður ársins, Björn Thoroddsen, spilaði fyrir gesti. Síðan las Gunnar Helga- son upp úr hinni geysivinsælu bók Guðrúnar, Jóni Oddi og Jóni Bjarna, fyrir fjölskylduna. Bókin um tvíburana er ein vinsælasta barnabók sem gefin hefur verið út á Íslandi en hún var frumraun Guð- rúnar og fyrir hana hlaut hún Nor- rænu barnabókaverðlaunin. Þá var húsið opnað fyrir Hafnfirðinga með sýningu á fyrstu mynd Þráins Bert- elssonar frá árinu 1981, sem byggð er á bók Guðrúnar um uppátækja- sömu tvíburana og var húsfyllir í bíósalnum. „Við erum svo glöð að hafa gert þetta, því við vorum búin að ræða við Guðrúnu um hjartasteininn áð- ur en hún féll frá,“ segir Páll. Áttum saman fallega stund Ljósmynd/Bæjarbíó Hjartasteinn Nánasta fjölskylda Guðrúnar kom saman við Bæjarbíó. - Guðrún Helgadóttir fær hjartastein Hafnarfjarðar Atvinnufjelagið hefur fengið dræmar mót- tökur frá verka- lýðshreyfingunni, að sögn Sigmars Vilhjálmssonar, fyrirsvarsmanns samtakanna. Hann á þó von á að það gæti dreg- ið til tíðinda á næstu vikum og muni það koma til með að styrkja stöðu Atvinnufje- lagsins fyrir komandi kjara- viðræður. Sigmar segir að Atvinnufjelagið sé búið að vera í viðræðum við önnur félög með sömu sýn, en getur þó ekki gefið upp hvaða félög hann eigi við. Það gæti orðið til þess að sam- tökin komist í svo sterka stöðu að þau verði ómissandi í kjaraviðræð- unum sem eru á næsta leiti. Nánar er rætt við Sigmar á mbl.is. Atvinnufjelag- ið ræðir við önnur félög Sigmar Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.