Morgunblaðið - 02.05.2022, Síða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022
2. maí 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.74
Sterlingspund 164.23
Kanadadalur 102.64
Dönsk króna 18.518
Norsk króna 14.13
Sænsk króna 13.384
Svissn. franki 134.72
Japanskt jen 1.0058
SDR 175.72
Evra 137.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.3338 Aðalfundur Berkshire Hathaway
var haldinn í Omaha um helgina og
var það í fyrsta skipti síðan 2019 sem
gestir gátu sótt viðburðinn í eigin
persónu. Er jafnan mikið um dýrðir
á fundinum og hafa gárungar líkt
samkomunni við Woodstock-tónlist-
arhátíðina, nema hún er fyrir kapít-
alista. Er áætlað að um 40.000 hlut-
hafar hafi tekið þátt að þessu sinni.
Í aðdraganda fundarins kom m.a.
fram að félagið hefði verið stórtækt í
hlutabréfakaupum á fyrsta fjórðungi
þessa árs og ráðstafað ríflega 51
milljarði dala til þeirra viðskipta.
Bætti félagið við hlut sinn í olíufyrir-
tækinu Chevron, úr 4,5 milljörðum
dala upp í 25,9 milljarða, auk þess að
kaupa 6 milljarða dala virði af hluta-
bréfum í olíufélaginu Occidental
Petrolium, en þar átti Berkshire fyr-
ir hlut sem metinn var á 10 milljarða
dala. Einnig hefur Warren Buffett,
stjórnandi Berkshire, ráðstafað 11,6
milljörðum dala til að kaupa trygg-
ingafélagið Alleghany Corp, auk
þess sem hann keypti hlutabréf í
tölvuframleiðandanum HP fyrir 4,2
milljarða dala og 9,5% hlut í leikja-
framleiðandanum Activison Blizzard
fyrir um 5,6 milljarða dala, að því er
Reuters greinir frá. Loks keypti
Berkshire eigin hlutabréf fyrir 3,2
milljarða dala á fyrsta ársfjórðungi.
Benda greinendur á að hluta-
bréfakaupin á síðasta ársfjórðungi
megi mögulega skýra með því að sú
verðlækkun sem varð á bandarísk-
um hlutabréfamarkaði fyrstu mán-
uði ársins hafi freistað stjórnenda
Berkshire sem áður varð tíðrætt um
að bandarísk hlutafélög væru of hátt
verðlögð.
Starfsemi samstæðunnar hefur
gengið ágætlega og á milli ársfjórð-
unga varð lítil breyting á hagnaði
fyrir afskriftir, vexti og skatta.
Gott að eiga digran sjóð
Var hlutabréfasafn Berkshire 391
milljarðs dala virði í lok marsmán-
aðar en markaðsvirði samsteypunn-
ar er 712 milljarðar dala. Situr félag-
ið núna á um 106 milljarða dala sjóði
sem nýta má til fjárfestinga og not-
aði Buffett tækifærið á aðalfundin-
um til að lýsa kostum þess að eiga
drjúgan sjóð til að sækja í. Áður hef-
ur hann kvartað yfir því að vöntun á
góðum fjárfestingartækifærum
hefði orðið til þess að helst til mikið
lausafé hefði safnast upp hjá félag-
inu: „Það er alltaf gott að eiga mikið
af handbæru fé. Það er eins og súr-
efni: alltaf til staðar en ef það hverf-
ur bara í nokkrar mínútur þá er ball-
ið búið.“
Hlutabréfaverð Berkshire Hatha-
way hefur hækkað um 7% það sem af
er þessu ári en á sama tíma hefur
S&P 500-vísitalan lækkað um 13%.
ai@mbl.is
Berkshire duglegt
við hlutabréfakaup
- Keyptu m.a. hluti í
Chevron og Activision
AFP
Hátíð Hluthafar stilla sér upp við mynd af Warren Buffett á aðalfundinum.
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Innkaupastjóravísitala kínverskra
iðnfyrirtækja mældist 47,4 stig í
aprílmánuði og hefur ekki verið
lægri síðan snemma árs 2020, en í
mars mældist vísitalan 49,5 stig. Hjá
þjónustufyrirtækjum var samdrátt-
urinn enn meiri, og fór vísitala
þeirra úr 48,4 stigum í mars niður í
41,9 stig í apríl.
Innkaupastjóravísitalan, sem kín-
verska hagstofan birtir í lok hvers
mánaðar, þykir gefa sterka vísbend-
ingu um vöxt eða samdrátt í kín-
verska hagkerfinu. Jafngildir það
samdrætti á milli mánaða ef vísital-
an er undir 50 stigum en vexti ef
vísitalan er yfir 50 stigum.
Að sögn AFP má ekki síst rekja
samdráttinn í apríl til harkalegra
smitvarnaaðgerða víða í Kína sem
hafa bitnað á borgum á borð við
Shenzhen og Sjanghaí þar sem mörg
öflugustu iðnfyrirtæki landsins eru
með verksmiðjur sínar. Vegna sótt-
varna hafa sum fyrirtæki átt erfitt
með að manna vaktir og einnig hafa
hráefnis- og vöruflutningar raskast.
Hefur mörgum hundruðum milljóna
Kínverja verið meinað að yfirgefa
heimili sín og einkaneysla dregist
mikið saman af þeim sökum.
Apple og Tesla fá skell
Kínverska fjölmiðlafyrirtækið
Caixin gefur út sína eigin innkaupa-
vísitölu og mældist Caixin-vísitalan
46 stig í apríl en 48,1 stig í mán-
uðinum þar á undan. Nær Caixin-
vísitalan til smárra og meðalstórra
fyrirtækja, en vísitala kínversku
hagstofunnar mælir aðallega þró-
unina hjá stórfyrirtækjum.
Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa
orðið fyrir tjóni vegna aðgerða kín-
verskra stjórnvalda eru raftækja-
framleiðandinn Apple og rafbíla-
framleiðandinn Tesla. Síðastliðinn
fimmtudag varaði Apple við að
tekjur félagsins á öðrum ársfjórð-
ungi yrðu líklega 4-8 milljörðum
dala lægri en spáð hafði verið, m.a.
vegna raskana í Kína. Þá sagði Tesla
að sú truflun sem orðið hefur á starf-
semi verksmiðju fyrirtækisins í
Sjanghaí jafngilti því að heilan mán-
uð vantaði í framleiðslumagn þessa
árs.
Hefur Financial Times eftir
markaðsgreinendum að smitvarna-
aðgerðir kínverskra stjórnvalda
kunni að minnka framleiðslutölur
iðnfyrirtækja þar í landi um 10% á
þessu ári og að stálframleiðsla í Kína
geti dregist saman um allt að 18%.
Erfiðleikar Kína
smita út frá sér
Þau dempandi áhrif sem smit-
varnaaðgerðir stjórnvalda hafa haft
á kínverskt atvinnulíf hafa stuðlað
að töluverðri veikingu kínverska
renminbísins og þegar mest lét nam
gengislækkunin í apríl nærri 4,3%
gagnvart Bandaríkjadal.
Greinir FT frá því að veiking kín-
verska gjaldmiðilsins virðist vera að
smita út frá sér víða um heim.
Þannig hefur gjaldmiðill Brasilíu,
sem styrktist framan af árinu vegna
hækkandi hráefnis- og matvæla-
verðs sem mátti m.a. rekja til
stríðsins í Úkraínu, tekið að veikj-
ast á undanförnum vikum vegna
minnkandi eftirspurnar í Kína.
Gjaldmiðlar Kólumbíu, Síle, Perú
og Suður-Afríku, sem öll flytja út
málma og aðrar hrávörur til Kína,
hafa líka dalað nokkuð skarplega í
apríl.
Skarpur samdráttur hjá
kínverskum fyrirtækjum
AFP
Stopp Vörubílaverksmiðja í Quingzhou. Margar stórborgir Kína hafa lamast vegna mjög strangra smitvarna.
- Áhrifa sóttvarna gætir í innkaupastjóravísitölunni - Gengið hefur veikst
Allt um
sjávarútveg
Viðskiptahraðallinn Hringiða hóf
göngu sína 25. apríl og voru sjö
hópar valdir til að taka þátt í verk-
efninu að þessu sinni. Klak hefur
umsjón með hraðlinum sem er helg-
aður hringrásarhagkerfinu.
Að verkefninu standa að auki
Orkuveita Reykjavíkur, Umhverf-
is-, orku- og loftslagsráðuneytið,
Reykjavíkurborg, Sorpa, Terra,
Faxaflóahafnir, Samtök iðnaðarins
og Ölgerðin.
Teymin eru fjölbreytt, og má
fyrst nefna Snerpu Power sem þró-
ar lausn til að sjálfvirknivæða áætl-
anagerð og besta tilboðsgerð fyrir
stórnotendur rafmagns. Plogg-In
notar upplýsingatæknitól til að
hvetja til aukinnar umhverfisvit-
undar og skapa heim án rusls og
GreenBytes þróar skipulagstól fyr-
ir veitingastaði til að draga úr mat-
arsóun og auka hagnað um leið.
Fólkið á bak við Sidewind stefnir
að framleiðslu vindtúrbína sem
komið er fyrir í opnum gámum sem
settir eru um borð í flutningaskip
og nýta hliðarvind á hafi úti til að
framleiða raforku. Álvit er að þróa
nýjan umhverfisvænan kragasalla
fyrir rafgreiningarker álvera og e1
er lýst sem „Airbnb fyrir hleðslu-
stöðvar rafbíla“. Loks er Ýmir
Technologies sem sérhæfir sig í að
þróa lausnir til að gera verðmæti úr
úrgangi. ai@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lausn Verkefnin eru fjölbreytt og
snúast t.d. um föngun vindorku.
Sjö teymi
taka þátt í
Hringiðu