Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Page 15

Morgunblaðið - 02.05.2022, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 Göng Ljósið við enda undirganga Kópavogs hefur að geyma kynjaverur sem geta brugðið sér í ýmis líki þegar sá gállinn er á þeim. Haraldur Hinn 14. maí næst- komandi fara fram sveitarstjórnarkosn- ingar hérlendis þar sem kosin verður for- ysta í 64 sveitar- félögum. Þetta eru átta færri sveitarstjórnir en í kosningunum 2018. Gildandi sveitar- stjórnarlög tóku gildi í ársbyrjun 2012. Eins og eldri löggjöf kveða þau á um að sveitarfélög ráði sjálf málefnum sínum á eigin ábyrgð og að engu málefni sem varðar sér- staklega hagsmuni viðkomandi sveitarfélags skuli ráðið til lykta án umfjöllunar sveitarstjórnarinnar. Ráðherra sveitarstjórnarmála, sem nú er Sigurður Ingi Jóhannsson, skal leggja eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti þingsályktunartillögu fyr- ir Alþingi um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára í senn. Í henni skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Í lögunum 2011 var kveðið á um að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags sé ekki undir 1.000, en um það hefur síðan verið deilt. Í nýrri 4. gr. sveitarstjórnarlaga er gerð krafa um að lágmarksíbúafjöldi í sveitarfélagi eftir sveitarstjórnar- kosningarnar í vor sé 250 manns og 1.000 manna íbúamark eftir kosn- ingar 2026. Tíu af núverandi sveitar- félögum eru enn með færri íbúa en 250 og 19 til viðbótar eru undir 1.000 íbúa markinu. Margháttaðir annmarkar Lengi hefur blasað við afar ólík land- fræðileg stærð sveitar- félaga hérlendis að ekki sé talað um mun í íbúa- fjölda. Þessi mismunur veldur því að ytri að- stæður sveitarfélaga eru gjörólíkar og til- raunir til að jafna hann í löggjöf og með sam- einingu sveitarfélaga hafa náð skammt. Árið 1986 voru lagðar niður sýslur og kaupstaðir sem lengi höfðu verið við lýði sem stjórnsýslueiningar og mynduðu fram til ársins 1959 grunninn að kjördæmum til Alþingis. Þáverandi ríkisstjórn Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks beitti sér þá fyrir nýj- um lögum um að stjórnsýslustigin í landinu skyldu aðeins vera tvö, þ.e. Alþingi og sveitarfélög. Í aðdrag- anda lagasetningarinnar átti sér stað talsverð umræða um að koma á þriðja stjórnsýslustiginu undir heit- inu héruð eða fylki, m.a. naut sú hug- mynd eindregins stuðnings frá þá- verandi byggðanefnd þingflokkanna undir forystu Lárusar Jónssonar fyrrverandi þingmanns Sjálfstæð- isflokksins. Einnig innan Alþýðu- bandalagsins voru margir henni fylgjandi og sá sem þetta ritar flutti þá heildstæða breytingartillögu (mál nr. 545 á 108. þingi) við stjórn- arfumvarpið sem gerði ráð fyrir hér- uðum sem sjálfstæðu stjórnsýslu- stigi líkt og gerist annars staðar á Norðurlöndum. Í Noregi eru fylki 11 talsins og lén eru 21 í Svíþjóð. Laus- leg ákvæði sem þá voru lögfest um héraðsnefndir eða annað form á samvinnu sveitarfélaga reyndust gagnslítil. Með þriðja stjórnsýslustiginu, fylkjum eða héruðum, hefði skapast nýr grundvöllur fyrir samstarf ríkis og sveitarfélaga í allt öðrum og stærri einingum en hingað til, sér- staklega um svæðisbundna stjórn- sýslu og flutning verkefna á þeim grunni frá ríkinu. Við þessa ann- marka bættust síðan þær ógöngur sem hlutust af breyttri kjördæma- skipan með stjórnarskrárbreytingu árið 1999 og sem enn er í gildi. Ljóst dæmi um þau mistök eru afmörkun Norðausturkjördæmis sem nær frá Lónsheiði til Siglufjarðar og Suður- kjördæmis sem teygir sig frá Lóni til Reykjaness. Lengra var tæpast hægt að ganga í að rjúfa sögulegan grunn fjórðungaskipunar landsins frá öndverðu og um leið grundvöll samvinnu sem komist hafði á milli landshlutasamtaka sveitarfélaga á seinni hluta 20. aldar. Stjórnmálaflokkarnir veikari en áður Ekki fer milli mála að starfsemi hefðbundinna stjórnmálaflokka hefur veikst að undanförnu og margir valið sér aðra og nýja farvegi til áhrifa. Þetta birtist m.a. í vaxandi fjölda framboða bæði til Alþingis og sveit- arstjórna á síðustu árum og tengsl stjórnmálaflokka við almenning hafa minnkað til muna frá því sem áður var. Ástæður þessa eru vafalaust margslungnar, ekki síst gjörbreytt fjölmiðlun og aukið álag á fjölskyldur og einstaklinga sem leiðir til þess að menn staldra stutt við í trúnaðar- störfum sem kjörnir fulltrúar. Örari skipti en áður í störfum og búsetu, einkum flutningur fólks frá dreifbýli til höfuðborgarsvæðisins, á hér ef- laust einnig sinn þátt. Kemur þetta ekki síst niður á sveitarstjórnarstig- inu, þótt jákvæðar breytingar hafi einnig átt sér stað. Þar ber hæst bætta menntun og stóraukna þátt- töku kvenna í félagsmálum og stjórn- unarstörfum. Mikið er undir því kom- ið að festa og bætt tengsl skapist í störfum innan sveitarstjórnarstigsins og aukinn áhugi almennings á verk- efnum sem undir það heyra, m.a. í skipulagsmálum og umhverfisvernd. Erfið viðfangsefni fram undan Aukin umsvif með örri tækniþró- un hafa sett svip sinn á gjörvallan mannheim í tíð þeirra sem nú lifa. Fólksfjöldi á jörðinni hefur þrefald- ast á einum mannsaldri með tilheyr- andi álagi á umhverfi okkar, þurr- lendi, úthöf og andrúmsloftið. Megnið af orkubúskap manna bygg- ist enn á mengandi jarðefnaeldsneyti sem leiðir til hlýnunar, bráðnunar jökla og háskalegra breytinga sjáv- arborðs. Umsvif mannsins hafa skert lífríkið í áður óþekktum mæli á tíma einnar mannsævi og fjölbreytni þess minnkar stöðugt með fækkun og útdauða tegunda. Temprun mannlegra umsvifa, gjörbreyttur orkubúskapur og hægari viðkoma er því boðorð dagsins. Auðsöfnun fárra á kostnað fjöldans er driffjöður í efnahagskerfi heimsins, mótor sem hægja verður á og stöðva. Þetta varðar jörðina alla, þótt í mismun- andi mæli sé eftir þjóðríkjum og svæðum. Unga fólksins á Íslandi bíða stór og erfið verkefni sem allir þurfa að taka virkan þátt í að leysa. Þar skiptir vakandi og vel upplýst forysta miklu máli, í sveitarfélögum ekki síður en á Alþingi og í ríkis- stjórnum. Kosningar í skugga stríðsógnar Nú í aðdraganda sveitarstjórnar- kosninga erum við minnt óþyrmilega á, að mannheimur er grár fyrir járn- um. Sá sem þetta skrifar lærði sína landafræði sem barn á dögum heims- styrjaldarinnar 1939-1945. Okkur hættir við að gleyma að vopn hafa alla tíð síðan verið látin tala á fjölmörgum stöðum með hörmulegum afleið- ingum. Vesturlönd hafa verið þar að verki æ ofan í æ gagnvart þriðja heims ríkjum, m.a. í Indókína, Írak og Afganistan, að ógleymdu Rússlandi sem nú herjar með óvæginni árás sinni á Úkraínu. Sú púðurtunna sem þar safnast nú í getur fyrr en varir leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Því er krafan um skjóta samninga milli stríðandi fylkinga boðorð dags- ins. Þar er enginn í stöðu sigurvegara. Eftir Hjörleif Guttormsson »Unga fólksins á Íslandi bíða stór og erfið verkefni. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Sveitarstjórnarkosningar í skugga stríðsógnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.