Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.05.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 ✝ Kjartan Mo- gensen fædd- ist í Reykjavík 14. desember 1946. Hann lést 16. apríl 2022. Foreldrar hans voru Erik Julius Mogensen, f. 1924, d. 1964, fiskirækt- arfræðingur og Helga Kristín Stefánsdóttir Mo- gensen, f. 1923, d. 2007, versl- unarkona. Systkini Kjartans eru Stef- án Mogensen, f. 10. október 1949, rafeindavirki, eiginkona Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir Laugdal, f. 19. mars 1951, húsfreyja, Sigrún Inga Mogen- sen, f. 9. september 1961, að- stoðarleikskólastjóri, Guðrún Mogensen, f. 6. júní 1963, býr og starfar i Hollandi. Fyrri eiginkona Kjartans var Wenche Asbjørnsen, f. 17. janúar 1946, d. 7. mars 2020, kortagerðamaður, gift 1968- 1974. Sonur þeirra er Erik Julius Mogensen Asbjørnsen, f. 10. janúar 1969, yfirmaður hjá Google, búsettur í Noregi, eiginkona Marit Strand As- bjørnsen, f. 7. desember 1966, viðskiptafræðingur, börn þeirra Snorre, f. 1996, og 1974 sigldi hann ásamt öðrum á víkingaskipinu Hrafninum frá Aafjord i Noregi til Ís- lands í tilefni 11 alda Íslands- byggðar og tók siglingin rúm- an mánuð. Hann flutti til Íslands haustið 1974 og vann m.a. um tíma sem sjómaður á Ísafirði þar sem hann kynntist seinni konu sinni, Halldóru. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 1980 og bjuggu í Syra- cuse, NY, Rochester, NY, og Boston, MA, árin 1980-1985. Á þeim tíma lauk Kjartan meist- aranámi í landslagsarkitektúr við háskólann í Syracuse og Halldóra sérnámi í geðlækn- ingum. Við heimkomu frá Bandaríkjunum stofnaði Kjart- an eigin landslagsarkitekta- stofu og starfaði við sitt fag þar til hann fór á eftirlaun 2015. Verkefni hans voru einkum á sviði borgar- skipulags og götuhönnunar og hannaði hann meðal annars umhverfi Viðeyjarstofu, Sól- eyjargötuna, Skólavörðustíg og mörg fleiri verkefni í miðbæ Reykjavíkur, ásamt all- mörgum verkefnum úti á landi, m.a. á Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Kjartan var virkur í samtökum lungna- sjúklinga og var formaður þeirra samtaka árið 2018- 2019. Útför Kjartans fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 2. maí 2022, klukkan 15. Haakon, f. 2000. Seinni eigin- kona Kjartans er Halldóra Ólafs- dóttir, f. 19. októ- ber 1948, fyrrver- andi yfirlæknir í Reykjavík, gift 1977. Dóttir þeirra er Helga Kristín Mogensen, f. 4. júní 1986, svæfingalæknir, búsett í Svíþjóð, eiginmaður Gunnlaugur Úlfsson, f. 9. apríl 1982, lögfræðingur, börn þeirra Úlfur, f. 2014, og Kjart- an Leó, f. 2017. Dóttir Halldóru frá fyrra hjónabandi er Anna Ingeborg Pétursdóttir, f. 21. janúar 1974, Ph.D í atferlisfræði og lektor búsett í Bandaríkj- unum, eiginmaður Mitchell Weverka, f. 6. september 1974, gítarleikari, börn þeirra Jackson Ólafur, f. 2012, og Audrey Anna, f. 2014. Kjartan útskrifaðist úr garðyrkjuskólanum í Hvera- gerði 1965 og flutti svo til Noregs í framhaldsnám í skrúðgarðyrkju 1967. Þar kynntist hann fyrri eiginkonu sinni og starfaði við garðyrkju næstu árin á Íslandi, í Dan- mörku og í Noregi. Sumarið Kjartan Mogensen tengdafað- ir minn var einstaklega skemmti- legur og hlýr maður sem ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast vel. Kjartan var myndarlegur og svipmikill, réttsýnn og með sterkan karakter. Hann hafði þann góða eiginleika að koma eins fram við alla og gerði ekki mannamun. Hann var hreysti- menni á sínum yngri árum og með mikla ævintýraþrá. Hann afrekaði til dæmis að sigla á opnu víkingaskipi frá Noregi til Ís- lands ásamt nokkrum félögum sínum sumarið 1974 svo athygli vakti. Kjartan var einkar fær lands- lagsarkitekt og eftir hann standa verk víðs vegar um borgina til mikillar prýði. Hann var hvort tveggja í senn, mikill Íslendingur sem hélt í hefðirnar en líka heimsborgari sem ferðaðist víða og átti marga útlenda vini beggja vegna Atlantshafsins. Kjartan var laus við yfirborðsmennsku og hégóma og var traustur félagi sem var alltaf reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd og gefa af sér. Hann var fyndinn og glettinn og aldrei langt í vinalega stríðni sem ekki síst barnabörnin hans höfðu mikið gaman af. Kjartan var góður kokkur og einkar gestrisinn og þau Hall- dóra buðu reglulega heim í veg- legar veislur sem við eigum ótal góðar minningar af. Þótt erfið lungnaveikindi hafi sett svip sinn á seinustu ár Kjart- ans mun ég fremur minnast hans eins og hann var áður en þau byrjuðu að taka sinn toll af hon- um. Hann kveinkaði sér samt aldrei þegar heilsu og þreki hrakaði, heldur hélt áfram að stunda stangveiði og önnur áhugamál sín af fremsta megni og ferðaðist innanlands og utan eins lengi og hann gat. Fallinn er frá mikill höfðingi sem verður sárt saknað, en minning hans mun lifa. Gunnlaugur Úlfsson. Elsku Kjartan okkar. Takk fyrir allt það sem þú gerðir fyrir okkur og allar góðu stundirnar okkar saman í gegn- um árin. Hvort sem það var samveran okkar í Kaldbaksvík, öll skemmtilegu gamlárspartíin í Norðurbrúninni, já eða bara að sitja saman og spjalla um daginn og veginn og alltaf stutt í húm- orinn og einstaka hláturinn þinn. Góðar minningar um þig munu lifa í hjörtum okkar það sem eftir er, elsku bróðir og frændi. Við söknum þín afskaplega mikið en vitum að þér líður vel í sumarlandinu. Sjáumst síðar. Umhyggju og ástúð þína okkur veitti hverja stund. ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sigrún Inga og Sunna Björk. Stóri bróðir minn, kaldhæðni töffarinn með hjarta úr gulli. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa haft þig í mínu lífi. Frændi með húmor og enda- lausa stríðni. Elsku Kjartan, takk fyrir allt sem þú hefur gert, takk fyrir samfylgdina, þín verður sárt saknað. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. [Ómar Ragnarsson/Gísli á Upp- sölum) Guðrún, Sigríður Helga og Sigrún Eva. Mágur minn, Kjartan Mogen- sen, er allur eftir margra ára glímu við illvígan lungnasjúk- dóm. Í þeirri baráttu sýndi hann af sér mikla þrautseigju, æðru- leysi og hugrekki. Kjartan var stór maður með glæsilegt nef, sem hann sagðist hafa frá dönsk- um forfeðrum sínum, húgenott- um, er flúðu trúarofsóknir í Frakklandi á 17. öld. Hann var vel gefinn og hæfileikaríkur á mörgum sviðum. Á yngri árum stundaði hann siglingar og sigldi með öðrum víkingaskipinu Hrafni frá Noregi til Íslands árið 1974 en Norðmenn gáfu þá Ís- lendingum tvö slík skip, Hrafn og Örn, í tilefni af því að 11 aldir voru liðnar frá landnámi Íslands. Kjartan nam garðyrkju á Ís- landi og í Noregi og seinna lands- lagsarkitektúr í Syracuse í Bandaríkjunum. Hann var skap- andi og smekkvís í störfum sín- um og sér þess stað víða í borg- inni og úti um land. Kjartan var léttur og skemmtilegur lífsnautnamaður en alls engin geðlurða og gat ver- ið fastur fyrir og ákveðinn ef því var að skipta og lá þá ekki á vel ígrunduðum skoðunum sínum. Hann var ekki bara mágur minn heldur líka góður vinur og veiði- félagi. Við veiddum saman m.a. í Fnjóská, Laxá í Aðaldal, Leirá og að sjálfsögðu í Kaldbaksvík á Ströndum, þar sem þau Halldóra áttu hlutdeild í landi og stóru, gömlu og glæsilegu húsi. Í þeirri náttúruparadís naut Kjartan sín til fulls. Hans er sárt saknað. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Börn Kjartans, stjúpdóttir og barnabörn eru öll búsett erlend- is, í Noregi, Svíþjóð og Banda- ríkjunum. Þeim öllum og Hall- dóru systur minni sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Sigurður Ólafsson. Við Kjartan Mogensen vorum bekkjarbræður í Langholtsskól- anum frá níu ára aldri. Okkur varð vel til vina. Við sátum sam- an, skiptum með okkur nestinu okkar þegar annar kom með eitt- hvað girnilegra en hinn, sungum í skólakórnum, einu strákarnir með tæplega 40 stelpum, og gott ef við fórum ekki líka á dansæf- ingar hjá Rigmor í Gúttó. Sumar bíóferðir voru iðulega hópferðir bekkjarins, sem var samvalinn og skemmtilegur hópur, því að ein stelpan í bekknum átti pabba sem átti bíó. Það var langt á milli heimila okkar en hjólin okkar brúuðu þær vegalegndir. Foreldrar mínir fluttu norður á Blönduós árið sem ég varð 13 ára. Það þótti okkur Kjartani vond tímasetning. Þangað var átta tíma ferð með Norðurleið. Síminn þar var fastur á veggnum í ganginum og var með sveif sem var snúið til að ná sambandi við miðstöð sem gaf samband suður. Þar var svarað í síma með skífu. Það var hins vegar ekki til siðs þá að krakkar væru í símanum öll- um stundum. Það voru líka algild sannindi þessa aldurshóps að það voru bara stelpur sem skrifuðust á. Ýmsar hindranir voru þannig í veginum fyrir strák fyrir norðan að halda sambandi við skóla- systkin og vini fyrir sunnan. Árið 1974 fluttum við hjónin til Grundarfjarðar þar sem ég tók við starfi sóknarprests. Dag einn hringdi síminn og á línunni var Kjartan, þá orðinn landslags- arkitekt. „Nonni minn,“ sagði hann, „við Halldóra konan mín vorum að flytja heim úr fram- haldsnámi erlendis. Við eigum litla stelpu sem við viljum bera til skírnar, getur þú sinnt því?“ Það var sannarlega auðsótt mál og ég fór suður. Strax varð allt eins og við hefðum hist í gær og nú fjölg- aði samverustundum. Þau heim- sóttu okkur í fjörðinn fagra og við þau á fallegt heimili þeirra við Norðurbrún. Það voru allt gæða- stundir. Kjartan lagði okkur lið sitt við eitt og annað í sínu fagi í Grundarfirði og einnig þegar við fluttum í Mosfellsbæinn. Nýja kirkjugarðinn við Mosfell hann- aði hann, líka umhverfi Mosfells- kirkju og prestsseturs og verkin lofa meistarann. Nú er Kjartan látinn og ég sakna vinar í stað. Kjartan var öðlingur. Hlýr og traustur drengur, greindur og hugsandi og valdi sér lífsvett- vang sem gerði honum kleift að tjá listræna hæfileika og næma sýn á snjallar lausnir enda vin- sæll og eftirsóttur fagmaður. Brosmildur strákur með stríðn- isglampa í augum, kankvís, hnyttinn í tilsvörum og skemmti- legur og vinsæll félagi. Hann var réttsýnn og heiðarlegur. Kjartan var náttúrubarn og naut návista við landið og líf þess. Hann var hamingjumaður í einkalífi sínu, eiginkonan og börnin voru hon- um allt. Og nú við þessi skil veit ég betur en fyrr hvað forgangsröðin er röng í lífi flestra í nútímanum. Amstrið sem við teljum okkur trú um að þörf sé á gerir okkur gleymin á það sem mestu varðar. Samverustundir okkar Kjartans hafa verið fáar og stopular næst- liðin ár. Nú harma ég að þær urðu ekki fleiri. Við Sigríður þökkum samfylgd góðra daga, trúa vináttu og heilindi. Guð blessi minningu hans. Guð blessi eiginkonu hans og börn og alla ástvini og gefi þeim huggun og styrk. Jón Þorsteinsson. Það var sumarið 1984 sem fundum okkar Kjartans fyrst bar saman. Hann var þá nýkominn frá Ameríku eftir að hafa lokið námi í landslagsarkitektúr og kom í heimsókn á teiknistofuna. Veðrið var einstaklega fallegt þennan dag og við sátum úti á svölum í hádegishléinu. Hann var í skyrtu og vesti með hlið- artösku; klæðnaði sem var nokk- urs konar einkennisbúningur hans alla tíð. Það fór ekki á milli mála að þarna var á ferðinni sterkur persónuleiki: fyrirferða- mikill, sjálfsöruggur, fullur af lífsgleði og skemmtilegum sög- um. Það var ekki hægt annað en að líka vel við hann. Kjartan var með eindæmum vinmargur maður og vinsæll. Hann virtist eiga vini alls staðar og úr öllum þjóðfélagsstigum. Hann hefði eflaust flogið inn á þing hefði hann sóst eftir því en líklega hefði honum fundist vera þröng á þingi. Hann þurfti sitt andrými og engum vildi hann vera háður. Allan sinn starfsferil sem landslagsarkitekt vann hann sjálfstætt, enda hentaði það best hans skapgerð. Hann áorkaði miklu og kom að ótrúlegum fjölda verkefna; bæði stórum og smáum. Mest vann hann fyrir sveitarfélög, einkum Reykjavík- urborg. Af verkum hans má t.d. nefna endurgerð Mæðragarðsins við Lækjargötu og Einarsgarðs við Hringbraut, Austurstræti eins og við þekkjum það í dag, Bankastræti og Skólavörðustíg. Hann lagði ferlimálum fatlaðra lið í mörg ár og síðar þróunar- vinnu og hönnum svokallaðra 30 km hverfa í Reykjavík. Og svo var það Tjarnarbakkinn, sem lík- lega var það verk sem hann var hvað stoltastur af. Sem hönnuður var Kjartan lít- ið fyrir prjál eða óþarfa flúr en verkvit hafði hann mikið, enda lágu rætur hans í garðyrkjunni. Hans hönnun var hrein og bein, rétt eins og hann sjálfur. Hann lagði sig ætíð fram um að skila verki á réttum tíma og þegar sá tími kom að þrekið þraut og hann fann að hann gat ekki lengur staðið við sitt, lagði hann skóna á hilluna og hætti. Í veikindum sín- um lifði hann með reisn; lærði að gera hlutina á nýja hátt og njóta lífsins eftir fremsta megni. Aldr- ei gafst hann upp. Kjartan var sérkennileg blanda af heimsborgara og nátt- úrubarni. Hann naut þess að ferðast og uppgötva nýjar slóðir, en þó að stórborgir Ameríku hefðu sitt aðdráttarafl var líkleg- ast hvergi staður honum kærari en Kaldbaksvík á Ströndum, þar sem fjölskyldan og hópur vina hefur átt sitt athvarf kynslóð fram af kynslóð við stórbrotna víkina og tignarlegan fjallgarð- inn. Nú við þáttaskil minnist ég ógleymanlegra ferða norður í land við fallega á, því veiðimaður var hann mikill. Ég minnist allra skemmtilegu hádegisverða- fundanna, hlátursins og sagn- anna, þar sem mál dagsins voru krufin til mergjar. Ég minnist fjölskyldumannsins og þess fal- lega sambands sem hann átti við sitt fólk. Ég minnist ótal símtala og rökræðna, sem oftast var stjórnað af honum, því það var honum einfaldlega eðlislægt. Og nú kveð ég góðan vin og bið honum blessunar og velfarnaðar um ókunna stigu. Ragnhildur Skarphéð- insdóttir. Það var gæfa að fá að kynnast Kjartani Mogensen. Það gerðist þannig að þegar ég hætti störf- um á Sjónvarpinu fékk ég borð á skrifstofu konu minnar, þar hafði Kjartan að setur með starfsemi sína. Þar naut ég mikillar upp- fræðslu og félagsskapar. Kjartan var hinn sanni frjálsi maður í hugsun. Hann var til dæmis mikið náttúrubarn og unni náttúrunni án kredda eða væmni. Hann gat því bæði notið náttúrunnar og notað hana eftir þörfum, eins og farsælum veiði- manni sæmir. Þessi frjálsa hugs- un nýttist honum vel í störfum. Hann gerði ekki landslag eða skipulag eftir eigin kenningum og kreddum um það hvernig fólk ætti að lifa í borg. Kjartan skap- aði umhverfi með það í huga að fólki liði vel í fallegu umhverfi. Það nægir að nefna þrjú dæmi úr Reykjavík. Fyrst er umhverfi Tjarnarinnar, í öðru lagi endur- gerð Skólavörðustígs og í þriðja lagi umhverfi og aðkoma að Við- eyjarstofu. Allt eru þetta verk sem skara fram úr. Kjartan var líkamlegur af- reksmaður. Það sleppa ekki allir lifandi frá því að fara fyrir borð af togara á Halamiðum að vetri til. Kjartan sigldi seglbát, eftir- líkingu af langskipum forn- manna, frá Noregi til Íslands og lenti þar í tveggja sólarhringa ill- viðri. Um svona atburði ræddi Kjartan af miklu yfirlætisleysi. Kjartan og Halldóra voru frá- bærir gestgjafar og þau voru líka það sem skiptir engu minna máli, frábærir gestir. Það er sjónarsviptir að þess- um ágæta manni. Ólafur Sigurðsson. Við Kjartan Mogensen kynnt- umst í gegnum eiginkonu hans, Halldóru Ólafsdóttur. Við Hall- dóra vorum skólasystkini, vinir og vinnufélagar til margra ára. Við tilheyrðum hópi sem var samheldinn í leik og starfi. Kjart- an varð strax hluti af þessu sam- félagi svo að við kynntumst ágætlega. Hann sagði mér fljót- lega að hann ætti sér athvarf norður á Ströndum í Kaldbaks- vík. Fyrrum ábúandi í Kaldbak, Önundur tréfótur, var Kjartani sérlega hugleikinn. Önundur missti annan fótinn í bardagan- um í Hafursfirði í viðureign við Harald lúfu. Hann var græddur og gekk eftir það með tréfót. Ön- undur lét þessa fötlun ekki aftra sér enda segir í Grettissögu að hann hafi „fræknastur verið og fimastur einfættur maður á Ís- landi“. Önundur var heygður framarlega í dalnum en Kjartan var þess fullviss að hann hafi gengið í Kaldbak. Við sátum stundum norður í Kaldbaksvík og heilluðumst af náttúrufegurðinni og sögunni. Kúrekatónlist frá Skagaströnd barst yfir Húnaflóann. Oftar en ekki sat Önundur með okkur og hallaði sér fram á tréfótinn. Tíminn leið og böndin styrkt- ust. Kjartan var mikill mann- kostamaður, skemmtilegur, glaðsinna og hafsjór af fróðleik. Hann var jafnvígur á innstu rök tilverunnar og einfaldar ræður þar sem hann gerði grín að sjálf- um sér. Með tímanum fjaraði undan Kjartani. Hann fékk illvígan lungnasjúkdóm og var bundinn við súrefniskút. Þrátt fyrir mæði og öndunarerfiðleika bar hann sig vel og hafði gjarnan spaugs- yrði á vörum. Í erfiðum veikind- um kemur raunverulegur per- sónuleiki einstaklingsins í ljós. Kjartan tók örlögum sínum af æðruleysi. Hann samsamaði sig með Önundi tréfæti sem ekki lét alvarlega fötlun aftra sér. Ön- undur staulaðist um á tréfætin- um og Kjartan rogaðist með súr- efniskútinn og hvorugur kvartaði. Að leiðarlokum viljum við þakka fyrir fallega samfylgd þar sem engan skugga bar á. Ég er viss um Kjartan er genginn í Kaldbak og þar sitja þeir að léttu skrafi hann og Önundur tréfótur. Þar er glatt á hjalla. Kjartan þarf engan súrefniskút lengur og Ön- undur er orðinn tvífættur á nýj- an leik. Halldóru og öðrum ætt- ingjum sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Óttar Guðmundsson og Jó- hanna V Þórhallsdóttir. Kjartan Mogensen Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, EDDA FRIÐGEIRSDÓTTIR KINCHIN, áður til heimilis á Norðurbrú 1, Garðabæ, lést á dvalarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, 25. apríl sl. Eric A. Kinchin Geir W. Kinchin Eydís S. Ástráðsdóttir Karen Eiríksdóttir Árni Jensen Sandra Sif Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.