Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Page 20

Morgunblaðið - 02.05.2022, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 ✝ Jón Hjörleifur Jónsson prest- ur, skólastjóri og kórstjóri fæddist á Arnarstöðum, Núpasveit, Norður- Þingeyjarsýslu 27. október 1923. Hann lést 19. apríl 2022. Foreldrar hans voru Guðrún Antonía Jónsdóttir (1890-1974) hús- freyja og Jón Tómasson (1883- 1974) bóndi á Arnarstöðum í Núpasveit. Systkin Jóns voru: Óskar, Ingibjörg, Bjarni, Re- bekka, Tómas, Málfríður og Þorbjörg. Þau eru öll látin. Jón gekk í barna- og ungl- ingaskóla að Snartarstöðum í Núpasveit, stundaði nám við Laugaskóla í Suður-Þingeyj- arsýslu, lauk kennara- og söng- kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1948, nam við Íþrótta- skólann í Ollerup í Danmörku, lauk BA-prófi í guðfræði frá Atlantic Union College í Banda- ríkjunum 1955 og MA-prófi frá Andrews University 1957. Kona Jóns var Sólveig Árna- dóttir Jónsson hjúkrunarfræð- ingur og píanóleikari (1927- hætta að reykja á vegum Ís- lenska bindindisfélagsins, ritari Landssambandsins gegn áfeng- isbölinu, átti sæti í stjórn Átaks gegn áfengi og var þar formað- ur í eitt ár. Hann var stofn- félagi Líknar- og vinafélagsins Bergmál og starfaði ötull við það. Eftir Jón liggja fjölmargar sálmaþýðingar og frumortir sálmar og ljóð. Fjölskylda hans hefur gefið út tvær bækur með ljóðum hans, Úr Þagnar djúp- um og Dreifar – Trúarljóð og sálmar. Einnig hefur komið út diskurinn Í bjarma trúar með söng hans við undirleik Sól- veigar sem fyrrverandi nem- endur hans færðu honum að gjöf á áttræðisafmæli hans. Jón og Sólveig eignuðust fjögur börn. Þau eru Sólveig Hjördís hjúkrunarfræðingur, maki Stefán Stefánsson vél- fræðingur; Kristín Guðrún pró- fessor í spænsku við HÍ og org- elleikari, maki Jón Thoroddsen heimspekingur og kennari; Jón Árni atvinnurekandi, maki Linda Dís Guðbergsdóttir fa- steingasali, og Kolbrún Sif sjúkraþjálfari, maki Ricardo Muchiutti sjúkraþjálfari og mannauðsstjóri. Barnabörnin eru tíu og barnabarnabörnin fjögur. Jón Hjörleifur verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju í Reykjavík í dag, 2. maí 2022, kl. 13. 2017). Foreldrar hennar voru Krist- ín Jónsdóttir (1901- 1999) húsmóðir og Árni Ásgeirsson (1898-1967) sjó- maður og trésmið- ur í Boston, Massachusetts, Bandaríkjunum. Jón og Sólveig gengu í hjónaband í Bandaríkjunum árið 1954 en fluttust til Íslands 1957. Þau bjuggu að Hlíðardals- skóla í Ölfusi í mörg ár þar sem Jón var kennari og skólastjóri. Hann starfaði einnig sem prest- ur Aðventkirkjunnar í Reykja- vík og á Akureyri. Hann kom að tónlistarmálum alla tíð; var kórstjóri Aðventkirkjunnar í Reykjavík, Kirkjukórs Hvera- gerðis- og Kotstrandar, söng- stjóri skólakórs og karlakv- artetts Hlíðardalsskóla, Karlakórs Akureyrar, mennta- skólakórs í Bekwai í Ghana þar sem Jón var yfir guðfræðideild skólans. Síðast stjórnaði hann Ekkó, kór kennara á eft- irlaunum. Jón vann að bindind- ismálum og var frumkvöðull námskeiða til að hjálpa fólki að Að vera kristinn á við hvern þann sem trúir á Jesú Krist sem frelsara sinn og leitast við að hafa hann að leiðarljósi á öll- um sviðum lífsins, sem hefur persónulegt samband við Krist með bæn, rannsókn á Guðs Orði, samfélag við söfnuð hans og þjónustu við samferðamenn í nafni Jesú Krists. Við hljótum líka að viðurkenna að skilgrein- ing Krists sjálfs sé best þegar hann segir í Jóh. 13.35: „Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar ef þið berið elsku hver til annars.“ Með þetta í huga má þrengja hug- takið ,kristinn’ niður í eitt orð – sem er kærleikur. Það gildishlaðna orð er mér efst í huga þegar ég hugsa til lífshlaups tengdaföður míns Jóns Hjörleifs Jónssonar sem lést þann 19. apríl. Þótt margt sé ágætt er veröld okkar samt full af vonbrigðum, sorgum, veikindum og dauða og margir þjást. Vegna þess kærleiks- ljóma og mildi sem af Jóni Hjörleifi stafaði gat hann geng- ið inn í erfiðar aðstæður hjá fólki með bæn og huggun þar sem annars hefði reynst torvelt. Ég undraðist þegar aðilar sem voru annað en trúaðir urðu snortnir og meyrir með honum í bæn og sá hvernig friður og hugarró færðust yfir svið þar sem áður var angist og vanlíð- an. Ég sá í slíkum hlýjuverkum hvernig einnig Drottinn veg- samaðist með því að jarðvegur var mýktur og fræjum sáð. Ekkert lokar betur dyrum for- dóma, vantrúar, tortryggni og biturleika en kærleikur, og tengdapabbi var í eðli sínu og trú einlægur fulltrúi hans og fyrir þennan kærleika varð oft ófyrirséð trúboð sem ávöxt bar. Ég get vitnað um slík áhrif í eigin lífi. Boðun fagnaðarerindisins var Jóni hjartans mál og það var unun hvernig honum tókst að samþætta við hana önnur áhugamál sín þannig að hvað studdi annað. Jón var nefnilega sannkallaður lífskúnstner sem naut lífsins til hins ýtrasta og hreif aðra með sér hvort sem var í tónlist eða hvers konar menningarviðburðum, ljóðlist (það liggja eftir hann tvær ljóðabækur), íþróttum, hand- verki, náttúruskoðun eða um- ræðum þar sem húmor, hlátur, matarlyst og krásir komu oft við sögu. Heimili Jóns var umferðar- miðstöð þar sem allir voru vel- komnir, stundum langdvölum, og allir sóttu í ljúfa návist hans og þeirra hjóna. Jóni var ekkert óviðkomandi og hjá honum voru allir menn kóngar og drottningar. Hann sýndi öllum elsku og virðingu og með leiftrandi augum, greind sinni og innsæi kallaði hann fram það besta í öllum með hrósi og hvatningu. Hann lét alla finna að þeir skiptu máli og væru sérstakir og áhuga- verðir. Skipti ekki máli hvort þeir voru háir eða lágir. Óeig- ingjörn störf hans fyrir Aðvent- hreyfinguna, ýmsa kóra, bind- indissamtök og annað verða seint öll upp talin. Maðurinn var svo margslunginn og litrík- ur að óhugsandi er hér að upp- telja atvik og upplifanir sem honum tengjast. Til þess þyrfti bók. Það eru forréttindi og bless- un að hafa átt að mann eins og Jón Hjörleif; mann sem setti traust sitt á Guð og miðlaði því svo fallega til annarra. Andans mann sem fór einstaklega vel með gáfur sínar og gjafir. Minning hans mun sannarlega lifa með okkur og ylja um ókomin ár. Stefán Stefánsson. Skömmu eftir heimsstyrjöld- ina fyrri sigldi móðursystir mín Kristín Jónsdóttir til Ameríku til að freista gæfunnar. Hún ílentist ytra, giftist ágætum manni Árna Ásgeirssyni og eignaðist fjögur börn. Kært var alltaf á milli móður minnar og Kristínar og héldu þær uppi ágætum samskiptum yfir hafið. Einhverju sinni sagði Kristín okkur að einkadóttir hennar Solveig hefði fundið hamingjuna í faðmi Jóns Hjörleifs Jónsson- ar. Hann var í námi í Ameríku þegar hann hitti Solveigu frænku mína á sjötta áratug lið- innar aldar. Þau Jón og Solveig fluttu til Íslands og urðu bæði áberandi í safnaðarstarfi Aðventista. Hann var kennari og skólastjóri og prédikari en hún sá um tónlist- ina. Þau eignuðust saman fjög- ur mannvænleg börn. Mikið samband var alltaf á milli fjölskyldna okkar. Jón var með afbrigðum skemmtilegur maður, söngelskur og hafsjór af fróðleik og kveðskap. Hann var opinn og ærlegur og sagði ávallt meiningu sína umbúða- laust. Í öllum veislum stóð hann upp til að syngja eða halda ræðu, fara með kvæði og þakka húsráðendum. Hann var ákaf- lega félagslyndur og söngurinn og tónlistin opnuðu honum leið inn í hug og hjörtu fólks. Jón kom víða við á langri ævi. Hann var um tíma trúboði í Afríku, kórstjórnandi og söngvari. Hann orti mikið og gaf út ljóða- bækur með skemmtilegum kveðskap. Þeim varð því vel til vina föð- ur mínum og honum þótt þeir væru ósammála á mörgum svið- um. Skáldskapurinn og áhugi á íslenskri menningu og sögu tengdi þá saman. Ég kynntist Jóni fyrir rúmum 60 árum og æ síðan hefur hann verið óaðskilj- anlegur hluti tilverunnar. Við hittumst oft meðan foreldrar mínir voru á lífi en eftir fráfall þeirra urðu fundirnir stopulli. Þegar við hittumst var eins og það hefði verið í gær því að ein- lægnin og sterklegt handtakið var alltaf hið sama. Ég vil að leiðarlokum þakka Jóni Hjörleifi fyrir samfylgdina. Hann var eðalmenni á alla lund. Ættingjum hans votta ég sam- úð. Óttar Guðmundsson. En hve lífið væri leitt og litlaust hér á Fróni ef við hefðum aldrei neitt átt í honum Jóni. (KK) Jón Hjörleifur var einstakur maður, það vitum við öll sem vorum svo gæfusöm að kynnast honum. Á Hlíðardalsskóla var hann ekki bara kennari, hann var okkur bæði faðir og móðir. Maðurinn með stóra kærleiks- ríka hjartað sem öllu gat breytt til betri vegar. Hann kenndi okkur svo margt sem engin námsbók kennir, sem ég bý að enn í dag. Svo stofnaði hann skólakór. Sólveig kona hans, sú einstaka manneskja, var honum alla tíð fast við hlið og átti sinn stóra þátt í kórstarfinu. Hún var menntaður píanóleikari og hjörtu þeirra slógu í takt í þessu sem öðru. Það var sann- arlega gaman að vera í kór hjá Jóni og í raun furðulegt hvað hann gat látið okkur takast á við með góðum árangri. Afar fá- ir nemendur lásu nótur, en við lærðum utan að allt sem flutt var, m.a. tónverk eins og Halle- lúja eftir Beethoven. Við fórum í söngferðir og sungum í út- varpinu, sem okkur þótti mikill heiður. Svo lauk þessum vetri sem ég minnist með gleði og þakklæti. Þrjátíu árum síðar frétti ég af slysi sem Jón Hjörleifur, minn kæri vinur, lenti í og var ekki hugað líf að sögn systur hans sem ég hitti í strætó. Ég fór heim, hringdi í skólafélaga og safnaði saman 43 gömlum nemendum næsta kvöld heima hjá mér, þar sem ákveðið var að senda honum á sjúkrahúsið, ef hann lifði, kveðju frá gamla HDS-kórnum. Hann sagði sjálf- ur að gleðin sem heimsókn okk- ar, fulltrúa hópsins, hefði vakið með honum hefði skipt sköpum og bati hans hefði byrjað þá. Á 67 ára afmæli Jóns héldum við gömlu félagarnir honum veglegt hóf þar sem við gáfum Jóni gamla skólakórinn í afmæl- isgjöf. Kórinn fékk nafnið Berg- mál og við vorum þess fullviss að besta endurhæfingin fyrir Jón væri mátulega falskur kór til að glíma við! Við sungum saman í þrjú og hálft ár og fleiri velunnarar höfðu þá bæst í kórinn, – við vorum orðin al- vörukór! Einn aðalhvatamaður að stofnun kórsins var Ólafur Ólafsson. Hann veiktist alvar- lega og eftir fráfall hans breytt- ist kórinn okkar í Líknar- og vinafélagið Bergmál. Félagið var stofnað til að hlúa að lang- veiku fólki og hefur boðið upp á orlofsvikur í yfir 20 ár, síðustu ár í Bergheimum í Grímsnesi. Dvöl þar, ein vika í senn, er al- gjörlega gjaldfrí fyrir gesti, ríki og sveitarfélög. Allir sem vinna að vikunum eru sjálfboðaliðar og matföng að mestu í formi styrkja. Jón okkar var mjög sáttur við breytingarnar á kórn- um (enda syngjum við enn!) og dvaldi hjá okkur sem gestur til ársins 2019 okkur til gleði og ánægju. Elsku Jón minn: Þar sem minningarnar búa þar ert þú. Þar sem gleðin býr þar brosir þú. Þar sem kærleik- urinn ríkir þar stendur þú með opinn faðm. Þú sem við elsk- uðum öll, sem gafst okkur óhörðnuðum unglingum svo mikið. Guði sé lof fyrir þig. Öllum sem syrgja Jón send- um við innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi ykkur öll. F.h. Bergmáls, Kolbrún Karlsdóttir. Mér er ljúft að minnast í nokkrum orðum vinar míns og velgjörðarmanns Jóns Hjörleifs Jónssonar. Það var gæfa mín sem skólastjóri að eignast hann að vini, lífsglaðan skóla- og tón- listarfrömuð sem á þeirri stundu hafði lokið gifturíkum starfsferli. Á fyrstu starfsdögum mínum í nýjum Rimaskóla gerði Jón Hjörleifur, nýfluttur í hverfið, sér erindi í skólann með kórnót- ur í farteskinu og bað um afnot af ljósritunarvél skólans. Ég þekkti manninn og var kunnugt um vináttu og sameiginlegar hugsjónir hans og föður míns í bindindismálum. Það brast á með fagnaðarlátum á okkar fyrsta fundi og heimsóknir og erindi Jóns Hjörleifs í Rima- skóla urðu mörg, enda aufúsu- gestur á ferð. Kennarar og nemendur skólans kynntust ekki síður mannkostum Jóns Hjörleifs og fengu ávallt hjá honum hvatningu og hrós. Ég valdi Jón Hjörleif sem eftirlits- mann menntamálaráðuneytisins með samræmdum prófum 10. bekkjar í Rimaskóla, starf sem hann skilaði af mikilli samvisku- semi og umhyggju fyrir nem- endum í nokkur ár. Við útskrift- arathöfn á hátíðarstundu mætti hann alltaf sem heiðursgestur og ávarpaði útskriftarnemendur með heilræðum til framtíðar. Við Jón Hjörleifur áttum mörg góð og gefandi samtöl og símtöl og hann sparaði ekki hrósyrðin á skólastarfið. Bless- unaróskir og fyrirbænir voru líka vel þegnar frá honum þeg- ar fjölmennur skóli var að skjóta rótum í nýju hverfi. Mér er minnisstæð ferð okk- ar Jóns Hjörleifs að Hlíðardals- skóla í Ölfusi þar sem hann starfaði í fjölda ára sem kennari og síðar skólastjóri. Þar gat að líta skólamannvirki þar sem rík áhersla var lögð á hágæða tón- listar- og íþróttaaðstöðu, nokk- uð sem skólastjórinn barðist fyrir. Áhrifaríkt var einnig að fylgjast með frumkvæði og framgöngu Jóns Hjörleifs við að koma á hitaveitu úr borhollu á landareign skólans. Þar reyndi sannarlega á kjark og þor við stórhuga framkvæmd sem sumir efuðust um í upphafi að væri framkvæmanleg. Jón Hjörleifur lifði löngu, viðburðaríku og farsælu lífi bæði hér á landi og á erlendri grund. Hann minntist með þakklæti æskuáranna í Öxar- firði, kennaraskólaáranna með bekkjarfélögum, skóla- og kristniboðsstarfa á vegum Að- ventistasafnaðarins og síðast en ekki síst allra þeirra mannbæt- andi félagsstarfa sem hann kom nálægt, til ræktunar lands og lýðs. Fjölskyldu Jóns Hjörleifs votta ég innilega samúð við þessi tímamót. „Verður er verkamaðurinn launa sinna“ stendur í Lúkasarguðspjalli og sú vissa bíður vinar míns á nýj- um vegum. Blessuð sé minning Jóns Hjörleifs Jónssonar. Helgi Árnason. Jóni Hjörleifi kynntist ég fyrst sem nemandi á Hlíðar- dalsskóla 1964 en síðan lágu leiðir okkar saman í ýmiss kon- ar kirkju- og félagsstarfi. Stór- kostleg upplifun var að taka þátt í öllum hópsöngnum sem boðið var upp á í Hlíðardals- skóla! Þar voru þau hjónin fremst í flokki, Sólveig og Jón. Þvílíkur kraftur, líf og gleði! Margir nemendur minnast með hlýhug föstudagskvöldanna þegar söngstundir hrifu svo marga og var það helst að þakka þessum einstöku hjónum! Við, laglausu og ókórhæfu nem- endurnir, tókum líka undir af fullum krafti og gleði! Einnig ber að nefna allan þann fjársjóð ljóða sem Jón orti og þýddi. Stundum talaði hann tækifær- isvísur beint af munni fram svo til án nokkurs undirbúnings! Það var með ólíkindum hvað þessi lágvaxni en ofurhrausti maður gat gert. Og alltaf var hann svo ákveðinn, jákvæður og reiðubúinn að taka til hendinni þegar þörf var á. Ofarlega er mér í huga hversu miklu jafnvægi hann bjó yfir þegar ómaklega var að hon- um vegið, kurteis, yfirvegaður og málefnalegur, samt ákveð- inn. Íslendingasögurnar og mann- legt atgervi heilluðu Jón. Hann gat svo sannarlega lifað sig inn í fornsögurnar! Þeim brá í brún eldhússtúlkunum í Flókalundi forðum þegar þeim varð litið út um gluggann og sáu þar kná- legan, miðaldra mann í stafni víkingaskipsins sem stóð við húsið. Þar stóð Jón vígreifur í stafni, fótur á borðstokk, ber að ofan, með ár reista beint í loft, syngjandi eða hrópandi eitthvað fornt! Jón var litríkur og tók sig ekki alltaf of alvarlega! Minningarnar um Jón Hjör- leif munu halda áfram að ylja og kalla fram bros og kenna okkur að kannski er það að sýna hlýju og uppörvun eitt það dýmætasta í fari okkar. Hand- tök Jóns voru alltaf hlý – oft full þétt – en hlý! Og alltaf horfði hann beint í augu fólks þegar hann talaði við það! Hafi hann ævarandi þökk fyrir einstaka viðkynningu. Minningarnar um Jón munu ylja og gleðja. Ég verð ávallt þakklátur fyrir kynni mín af honum og þeim hjónunum báð- um. Guð styrki ykkur og blessi, kæru börn og aðrir ástvinir Jóns. Einar Valgeir Arason. Það var eftir Jóni Hjörleifi að lifa lengur en flestir. Hann mátti hreinlega ekki vera að því að stöðva vinnuflæði sem hon- um hafði verið falið, enda féll honum aldrei verk úr hendi. Á litríkri og annasamri ævi hefur Jón starfað sem kennari, skólastjóri, prestur, trúboði og unnið að líknarstörfum, heilsu- gæslu og heilsufræðslu. Hann hefur unnið að tónlistarstörfum sem söngvari, kórstjóri, tón- skáld, útsetjari, að ritstörfum sem ljóðskáld, sálmaskáld og þýðandi hundruða sálma sem sungnir eru í kirkjum landsins og verða um ókomna tíð. Hann hefur gegnum árin, með líferni sínu og fordæmi, lagt grunn að framtíð og verið hvati að lífs- máta og starfsævi óteljandi fjölda ungmenna. Líf hans og framkoma hefur verið sem opin bók enda flekklaus fjölskyldu- maður. Ég hef þekkt Jón Hjörleif alla ævi og tjáði honum oft að hann hefði átt hvað drýgstan þátt í að móta þá tónlistaræð og stefnu sem ég hefi starfað eftir og mótað frá upphafi. Honum þótti varið í það og gaf Guði strax kredit. Áhrif Jóns á umhverfi sitt voru ómetanleg. Allt sem hann gerði, allt sem hann kom í verk var aldrei í eigin þágu heldur Jón Hjörleifur Jónsson Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma okkar, EVA ÞÓRÐARDÓTTIR sjúkraliði, hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, áður til heimilis í Sæviðarsundi 16, Reykjavík, lést þriðjudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 5. maí klukkan 13. Margrét Magnúsdóttir Marinó Þór Tryggvason Þórður Magnússon Olga Magnúsdóttir Helgi Ómar Þorsteinsson Þórdís Guðný Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.