Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 02.05.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.05.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022 England Watford – Burnley................................... 1:2 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Newcastle – Liverpool ............................. 0:1 Aston Villa – Norwich .............................. 2:0 Southampton – Crystal Palace ............... 1:2 Wolves – Brighton.................................... 0:3 Leeds – Manchester City ........................ 0:4 Everton – Chelsea.................................... 1:0 Tottenham – Leicester ............................ 3:1 West Ham – Arsenal ................................ 1:2 Staða efstu liða: Manch. City 34 26 5 3 84:21 83 Liverpool 34 25 7 2 86:22 82 Chelsea 34 19 9 6 68:29 66 Arsenal 34 20 3 11 54:41 63 Tottenham 34 19 4 11 59:39 61 Manch. Utd 35 15 10 10 54:52 55 Manchester United – West Ham............ 3:0 - Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 84 mín- úturnar fyrir West Ham. C-deild: Bolton – Fleetwood ................................. 4:2 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 66. mínútu og skoraði fyrir Bolton. Þýskaland Augsburg – Köln...................................... 1:4 - Alfreð Finnbogason kom inn á sem vara- maður á 81. mínútu hjá Augsburg. Ítalía Sampdoria – Genoa ................................. 1:0 - Albert Guðmundsson kom inn á sem varamaður á 56. mínútu hjá Genoa. Danmörk Midtjylland – Köbenhavn ....................... 0:0 - Elías Rafn Ólafsson hjá Midtjylland er frá keppni vegna meiðsla. - Ísak B. Jóhannesson kom inn á sem varamaður á 85. mínútu hjá Köbenhavn, Hákon Arnar Haraldsson var ónotaður varamaður en Andri Fannar Baldursson var ekki í hópnum. OB – AGF.................................................. 1:0 - Aron Elís Þrándarson var ekki í leik- mannahópi OB. - Mikael Anderson lék allan leikinn fyrir AGF og Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 67 mínúturnar. Vejle – SönderjyskE................................ 0:3 - Atli Barkarson lék allan leikinn fyrir SönderjyskE og Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður á 63. mínútu. B-deild, úrslitakeppnin: Lyngby – Helsingör................................. 2:1 - Sævar Atli Magnússon kom inn á sem varamaður í uppbótartíma hjá Lyngby og Frederik Schram var varamarkvörður. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. Bandaríkin Houston Dynamo – Austin...................... 1:2 - Þorleifur Úlfarsson kom inn á sem vara- maður á 77. mínútu hjá Houston. B-deild: Oakland Roots – Colorado Springs....... 0:3 - Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn fyrir Oakland. Svíþjóð Häcken – Varberg ................................... 3:1 - Valgeir Lunddal Friðriksson lék allan leikinn fyrir Häcken og lagði upp mark. - Oskar Tor Sverrisson lék allan leikinn fyrir Varberg. Djurgården – Sirius ................................ 4:0 - Aron Bjarnason lék allan leikinn fyrir Si- rius. Vittsjö – Häcken ...................................... 0:0 - Agla María Albertsdóttir kom inn á sem varamaður á 77. mínútu hjá Häcken en Diljá Ýr Zomers var ekki í hópnum. Djurgården – Kristianstad..................... 1:0 - Amanda Andradóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad en Emelía Óskarsdóttir var ónotaður varamaður. Elísabet Gunn- arsdóttir þjálfar liðið. Eskilstuna – Kalmar................................ 1:0 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn fyrir Kalmar. B-deild: Trelleborg – Brage ................................. 2:2 - Böðvar Böðvarsson lék fyrstu 70 mín- úturnar fyrir Trelleborg og lagði upp mark. Alingsås – Uppsala .................................. 1:1 - Andrea Thorisson lék allan leikinn fyrir Uppsala. Noregur Viking – Haugesund................................ 5:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 67 mínúturnar. Brann – Kolbotn ...................................... 2:1 - Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á sem varamaður á 75. mínútu hjá Brann en Berglind Björg Þorvaldsdóttir er frá keppni vegna meiðsla. Rosenborg – Lyn...................................... 0:1 - Selma Sól Magnúsdóttir kom inn á sem varamaður á 62. mínútu hjá Rosenborg. Vålerenga – Avaldsnes ........................... 6:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék fyrri hálf- leikinn fyrir Vålerenga. Bikarúrslitaleikur karla: Bodö/Glimt – Molde ................................ 0:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn fyrir Bodö/Glimt. - Björn Bergmann Sigurðarson er frá keppni vegna meiðsla. 50$99(/:+0$ Tindastóll hafði betur gegn deild- armeisturum Njarðvíkur, 89:83, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik karla á Sauðárkróki á laugardags- kvöld og tryggði sér þannig 3:1- sigur í einvíginu. Stólarnir mæta Val í úrslitaeinvíginu og fer fyrsti leikur þess fram næstkomandi föstudag á Hlíðarenda. Nicolás Richotti var stigahæstur í leik laugardagsins með 24 stig og þar á eftir kom samherji hans De- drick Basile með 22 stig. Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Javon Bess skoruðu 20 stig hvor fyrir Tinda- stól. Stólarnir í úrslit og mæta Val Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson Í úrslitin Baldri Ragnarssyni, þjálf- ara Tindastóls, fagnað í leikslok. Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði ótrúlegt sigurmark er KA/Þór tryggði sér sæti í undanúrslitum Ís- landsmóts kvenna í handbolta með 24:23-útisigri á Haukum í gær. Al- dís skoraði markið beint úr auka- kasti eftir að leiktíminn rann út og skaut KA/Þór í undanúrslit þar sem liðið mætir Val. Á laugardag tryggði ÍBV sér oddaleik gegn Stjörnunni með sannfærandi 33:24-útisigri og er staðan í einvíginu 1:1. Sunna Jóns- dóttir og Harpa Valey Gylfadóttir skoruðu átta mörk hvor fyrir ÍBV. Oddaleikurinn fer fram annað kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sigurmark Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði ótrúlegt sigurmark í gær. Ótrúlegt sigur- mark Aldísar VALUR – KR 2:1 0:1 Kjartan Henry Finnbogason 18. 1:1 Patrick Pedersen 45. 2:1 Jesper Juelsgård 69. MM Hólmar Örn Eyjólfsson (Val) M Birkir Már Sævarsson (Val) Jesper Juelsgård (Val) Birkir Heimisson (Val) Patrick Pedersen (Val) Ágúst Eðvald Hlynsson (Val) Beitir Ólafsson (KR) Finnur Tómas Pálmason (KR) Kjartan Henry Finnbogason (KR) Pálmi Rafn Pálmason (KR) Kennie Chopart (KR) Theódór Elmar Bjarnason (KR) Rautt spjald: Grétar Snær Gunnarsson (KR) 90., Haraldur Árni Hróðmarsson (Val/aðstoðarþjálfari) 90. Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7. Áhorfendur: 1.530. ÍBV – LEIKNIR R. 1:1 1:0 Andri Rúnar Bjarnason 26. 1:1 Sjálfsmark 29. M Felix Örn Friðriksson (ÍBV) Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV) Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) Andri Rúnar Bjarnason (ÍBV) Viktor Freyr Sigurðsson (Leikni R.) Bjarki Aðalsteinsson (Leikni R.) Arnór Ingi Kristinsson (Leikni R.) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 8 Áhorfendur: 518. BREIÐABLIK – FH 3:0 1:0 Ísak Snær Þorvaldsson 45. 2:0 Kristinn Steindórsson 71. 3:0 Ísak Snær Þorvaldsson 72. MM Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðabliki) Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki) M Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Davíð Ingvarsson (Breiðabliki) Damir Muminovic(Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Guðmundur Kristjánsson (FH) Matthías Vilhjálmsson (FH) Logi Hrafn Róbertsson (FH) Dómari: Erlendur Eiríksson – 7. Áhorfendur: 2.017 _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. FÓTBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Valur hafði betur gegn erkifjendum sínum í KR, 2:1, þegar liðin mættust í Reykjavíkurslag á Origo-vellinum að Hlíðarenda í þriðju umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugar- dagskvöld. Valsmenn eru því áfram með fullt hús stiga eftir þrjá sigra í fyrstu þremur leikjum sínum en KR hefur tapað tveimur leikjum í röð. Leikurinn var hin besta skemmtun þar sem glæsileg mörk voru skoruð, nokkur vafaatriði gerðu vart við sig og rauð spjöld fóru á loft. Kjartan Henry Finnbogason kom KR yfir í fyrri hálfleik með skoti af stuttu færi eftir laglega fyrirgjöf frá Kennie Chopart. Seint í hálfleiknum vildi Kjartan svo fá vítaspyrnu þegar Guy Smit í marki Vals hljóp hann niður innan vítateigs en ekkert var þó dæmt. Þess í stað jafnaði Patrick Pedersen örskömmu fyrir leikhlé með glæsilegum skalla eftir hnitmið- aða fyrirgjöf Birkis Más Sævars- sonar. Jesper Juelsgård skoraði svo sigurmark Vals með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu. KR-ingar vildu fá aukaspyrnu skömmu áður en dæmd var aukaspyrna á þá, sem Ju- elsgård skoraði svo úr, en fengu ekki. Í kjölfarið var eitthvað um pústra, t.a.m. eftir að Smit kastaði boltanum í innkast þegar Valsmaður lá á vell- inum en KR skilaði boltanum ekki til baka. Undir lokin fékk Grétar Snær Gunnarsson sitt annað gula spjald og þar með rautt og Haraldur Árni Hróðmarsson, aðstoðarþjálfari Vals, fékk beint rautt spjald þegar upp úr sauð í uppbótartíma. Breiðablik vann sannfærandi sigur á FH, 3:0, á Kópavogsvelli í gær- kvöldi og er því líkt og Valur með fullt hús stiga eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína í deildinni. Breiðablik er á toppi deildarinnar með betri markatölu en Valur. Sigurinn var sannfærandi enda Blikar við stjórn allan leikinn þó færin hafi látið á sér standa í fyrri hálfleik og líta Kópa- vogsbúar sérlega vel út í upphafi tímabilsins. Ísak Snær Þorvaldsson, sem fagn- aði 21 árs afmæli sínu í gær, hélt upp á tímamótin með stæl. Hann skoraði fyrsta mark leiksins í gær af harð- fylgi undir lok fyrri hálfleiks, átti skot sem Gunnar Nielsen varði og Krist- inn Steindórsson fylgdi eftir í öðru markinu og kórónaði svo frábæra frammistöðu með laglegu skoti á lofti í þriðja markinu. Ísak Snær er markahæstur í deildinni með fjögur mörk í fyrstu þremur leikjunum. ÍBV og Leiknir úr Reykjavík skildu þá jöfn, 1:1, á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gær og nældu þannig bæði lið í sín fyrstu stig í Bestu deildinni í sumar. Andri Rúnar Bjarnason kom Eyja- mönnum á bragðið með sínu fyrsta deildarmarki fyrir félagið er hann stýrði boltanum í netið af stuttu færi eftir laglega fyrirgjöf Guðjóns Péturs Lýðssonar. Skömmu síðar varð Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar hann pot- aði boltanum í eigið net eftir skot Arnórs Inga Kristinssonar. Síðari hálfleikur var tíðindaminni þar sem Eyjamenn voru þó sterkari aðilinn en þrátt fyrir ágætis færi tókst þeim ekki að bæta við marki. Valur og Breiðablik með fullt hús Ljósmynd/Kristinn Steinn Tvenna Afmælisbarnið Ísak Snær Þorvaldsson fagnar öðru af tveimur mörkum sínum fyrir Breiðablik í öruggum sigri á FH í gærkvöldi. - Æsilegur Reykjavíkurslagur - Afmælisbarnið óstöðvandi _ Karlalið Real Madríd í knattspyrnu tryggði sér spænska meistaratitilinn í 35. sinn á laugardag með öruggum 4:0-sigri á Espanyol. Real á enn eftir að spila fjóra leiki í spænsku 1. deild- inni. _ Sveindís Jane Jónsdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, lék allan leik- inn og lagði upp fyrra mark Wolfsburg þegar liðið vann góðan 2:0-sigur á ríkjandi Evrópumeisturum Barcelona í síðari leik þeirra í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á laugardag. Sigurinn dugði þó ekki til þar sem Barcelona vann einvígið sam- anlagt 5:3 og er því komið í úrslit. Þar mætir liðið landsliðskonunni Söru Björk Gunn- arsdóttur og stöll- um hennar í Lyon. Lyon hafði betur, 2:1, gegn erkifjendum sínum í París Saint-Germain þar í borg á laugar- dagskvöld og vann þar með einvígið samanlagt 5:3. Sara Björk lék ekki með Lyon vegna veikinda. _ Teitur Örn Einarsson, Bjarki Már Elísson og Viggó Kristjánsson, lands- liðsmenn í handknattleik, reyndust liðum sínum í þýsku 1. deildinni drjúg- ir í leikjum þeirra um helgina. Teitur skoraði sex mörk og gaf eina stoð- sendingu fyrir Flensburg í öruggum 33:23-sigri á Hamburg. Bjarki skoraði átta mörk fyrir Lemgo í vondu 27:33- tapi gegn Erlangen, þar sem Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari. Viggó skoraði svo átta mörk fyrir Stuttgart í 29:25-sigri á Leipzig, en samherji hans Andri Már Rúnarsson komst ekki á blað. Tveir landsliðsmenn til viðbótar, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon, fóru þá fyrir toppliði Magdeburg þegar liðið vann nauman 28:27-sigur á Füchse Berlín í gær. Gísli var markahæstur í liði Magde- burg með fimm mörk, þar á meðal skoraði hann sigurmarkið á lokamín- útu leiksins, og gaf einnig eina stoðsendingu. Ómar skoraði þá fjögur mörk og gaf sjö stoðsendingar. _ Hlín Eiríks- dóttir var hetja Piteå þegar hún skoraði sigurmark liðsins í 1:0-útisigri á Brommapojkarna í sænsku úrvals- deildinni í knattspyrnu kvenna í gær. Þetta var þriðja deildarmark Hlínar í sjötta leiknum á tímabilinu fyrir Piteå, sem er í 2. sæti deildarinnar. _ Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla, ríkjandi Englands- meistarar Manchester City og Liver- Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.