Morgunblaðið - 02.05.2022, Blaðsíða 32
Verk Egils Sæbjörnssonar myndlistarmanns hafa
verið áberandi á sýningum í Svíþjóð undanfarið og
verða áfram. Fyrir helgi var opnuð í Andys Gallery í
Stokkhólmi einkasýning Egils, Object Species: The
Lipsticks, með vídeóinnsetningu
og skúlptúrum. Á sýningunni birt-
ast einnig 36 metra há tröllin
Úgh & Búgar sem komu við
sögu þegar Egill var fulltrúi
Íslands á Feneyja-
tvíæringnum 2017. Á mynd-
listarvikunni í Stokkhólmi,
sem stóð yfir síðustu daga,
mátti einnig sjá verk eftir Egil
í samsýningum í Kummelholmen,
Moderna Museet og í Vårberg
Centrum.
Verk eftir Egil Sæbjörnsson á
mörgum sýningum í Stokkhólmi
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 122. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Breiðablik og Valur hafa bæði farið fullkomlega af stað
í Bestu deild karla í knattspyrnu. Um helgina vann
Breiðablik sannfærandi sigur á FH og Valur hafði betur
gegn erkifjendum sínum og nágrönnum í KR.
Nýliðar ÍBV og Leiknir úr Reykjavík mættust einnig í
deildinni um helgina, skildu jöfn og náðu þar með bæði
í sín fyrstu stig í sumar. »26
Breiðablik og Valur bæði með fullt
hús stiga eftir þrjár umferðir
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Í Covid gerðist það eina nóttina þeg-
ar ég var andvaka að þá var líkt og ég
renndi í gegnum alla söguna um hann
Nóa. Hún kom nánast fullsköpuð til
mín. Klukkan sex um morguninn fór
ég fram úr og skrifaði niður öll nöfnin
á persónum sem við sögu koma.
Nokkrum dögum seinna settist ég
niður og byrjaði að skrifa, sagan rann
upp úr mér fyrirhafnarlítið,“ segir
Hilmar Sverrisson sem tók sig til eft-
ir sextugt og sendi frá sér sína fyrstu
bók. Nói og töfrahringurinn heitir
bókin sú og er ævintýri ætlað eldri
börnum. Þar segir frá Nóa, 11 ára
dreng í Reykjavík sem sendur er í
sveit norður í Skagafjörð. Þar lendir
hann í ýmsum ævintýrum og kynnist
dularfullum öflum og annars heims
verum.
„Frá því að börnin mín komu til
hef ég alltaf verið að búa til ein-
hverjar sögur fyrir þau og segja
þeim. Svo bættust barnabörnin við
og þau hafa öll kokgleypt þetta hjá
mér. Sagan um Nóa gerist fyrir norð-
an, þar sem ég er fæddur og uppal-
inn,“ segir Hilmar og
bætir við að meirihluti
þeirra persóna sem koma
fyrir í sögunni sé löngu
látinn.
„Flestar þessar per-
sónur dóu í svartadauða.
Þarna koma meðal ann-
ars fyrir þjófar og smygl-
arar og þarna eru líka
álfar, draugar, huldufólk
og uppvakningar. Einnig
er mikið um galdra. Ég varð sjálfur
var við ýmislegt þegar ég var krakki,
en ég byggi þessa sögu ekkert á því,“
segir Hilmar og bætir við að þegar
Nói stígi í upphafi sögunnar úr
strætó á Króknum taki á móti honum
maður að nafni Björn.
„Nói segir við þennan Björn að
hann sé að fara í sveit á bæ sem heitir
Árkot, en Björn segir að enginn hafi
búið á þeim bæ í hundrað ár. Síðan
nær einhver í Nóa án þess að nokkur
taki eftir og í framhaldinu fara Björn
og kona hans ásamt lögreglunni að
leita að Nóa.“
Hilmar segist vera langt kominn
með að skrifa bók númer tvö um Nóa.
„Þar er hann farinn að vinna með
rannsóknarlöggunni og
sögusviðið er hálendið, eða
Kjölur. Sú bók heitir Nói
og frönsku ferðamenn-
irnir, en þeir eru fram-
liðnir krossfarariddarar
frá því um 1200. Þarna
koma við sögu Fjalla-
Eyvindur og Halla, Reyni-
staðarbræður og fleiri
löngu látnar persónur, en
þekktar.“
Hilmar segir að sér finnist virki-
lega skemmtilegt að sitja í stúdíóinu
sínu, hlusta á tónlist og „bulla upp úr
sér“ sögur um strákinn Nóa, eins og
hann orðar það sjálfur.
„Fyrri bókin er komin út sem
hljóðbók hjá Storytel og Jóhann Sig-
urðarson leikari sér um að lesa hana
upp. Við Jói höfum unnið mikið sam-
an en ég vinn við að hljóðrita bækur
og ég hef tekið upp margar bækur
með honum. Þegar Jói hafði lesið
handritið mitt um Nóa sagði hann
strax já við því að lesa bókina upp
fyrir Storytel. Ég er þakklátur fyrir
það, því allt lifnar við í upplestri hans,
sem er með miklum leikrænum til-
burðum. Jói er mikill snillingur.“
Nói kynnist ýmsum
annars heims verum
- Hilmar Sverrisson sendir frá sér sína fyrstu bók
Morgunblaðið/Eggert
Hilmar Hér í stúdíóinu og á tölvuskjánum er önnur bók Hilmars Sverrissonar um ævintýri Nóa að verða til.
Bókarkápa Nói og
töfrahringurinn.