Morgunblaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
COSTA DEL SOL
FLUG, GISTING Í 10 EÐA 12 NÆTUR OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGUR | 585 4000 | UU.IS
09. - 21. MAÍ
MYRAMAR FUENGRIOLA 3*
ÍBÚÐ MEÐ EINU SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ78.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
21. - 30. JÚNÍ
ALUASUN COSTA PARK 4*
HERBERGI MEÐ FÆÐI
VERÐ FRÁ109.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
BEINT
FLUG
ÞÆGILEGIR
FLUGTÍMAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjar-
fulltrúi og oddviti Viðreisnar í
Kópavogi, hefur lagt fram þá tillögu
við bæjarráð Kópavogsbæjar að það
hefji viðræður við mennta- og
barnamálaráðuneytið, Mennta-
skólann í Kópavogi (MK) og Breiða-
blik um að skoða kosti þess að
flytja MK í Smárann. Bæjarráð
samþykkti með fimm atkvæðum að
vísa erindinu til frekari rýni bæjar-
stjóra.
„Þetta kemur til vegna þess að
það hafa komið fram óskir hjá
Menntaskólanum í Kópavogi um að
byggt verði íþróttahús á svæðinu,“
segir Theodóra og bætir við að það
gæti reynst erfitt að koma slíku
húsi fyrir þar sem þröngt sé um
skólann þar sem hann er núna.
Smárinn frekar en Digranes
Þá segir Theodóra að gerð hafi
verið valkostagreining um tvær
mögulegar leiðir borgarlínunnar um
Kópavog. Þar hafi niðurstaðan verið
sú að það henti betur að borg-
arlínan fari fram hjá Smáranum,
um Hafnarfjarðarveg og Fífu-
hvammsveg, en um Digranesveg.
„Þá fer hún ekki fram hjá MK
eins og einhverjir voru að gera sér
væntingar um,“ segir hún.
„Þess vegna komum við fram
með þá tillögu að við myndum
mögulega skoða það að færa MK
niður í Smára og slá þannig tvær
flugur í einu höggi, sem sagt betra
aðgengi að íþróttasvæðinu og að-
gengi að borgarlínunni.“ Íþrótta-
svæði Breiðabliks myndi þá nýtast
nýrri afreksíþróttabraut sem stofn-
uð hefur verið við MK.
Ef úr þessu yrði þyrfti að byggja
húsnæði undir skólann. „Þetta er
alls ekkert óraunhæf tillaga. Það
væri hægt að skoða það að rífa
gamla stúku sem er við Kópavogs-
völlinn og byggja þar eitt mannvirki
sem væri bæði skóli og stúka. Það
er ein hugmyndin.“
Vill hugmyndasamkeppni
Theodóra segist vilja að sett
verði á fót hugmyndasamkeppni um
það hvernig hægt væri að koma fyr-
ir menntaskóla í Smáranum, tengja
svæðið við borgarlínuna, endur-
skoða aðstöðuna fyrir frjálsar
íþróttir og jafnvel byggja náms-
mannaíbúðir.
Hún segist hafa rætt við skóla-
meistara MK, Guðríði Arnardóttur,
áður en hún lagði tillöguna fram.
Hún hafi ekki viljað gera það ef
skólastjórnendur hefðu sagt þvert
nei við tillögunni.
„Það er margt sem hefur komið
upp í þessari vegferð sem gæti
hjálpað MK að taka næstu skref í
að þróa skólann og það væri auðvit-
að besta niðurstaðan ef hægt væri
að teikna nýja skólabyggingu utan
um starfsemi MK.“
Með færslu Menntaskólans í
Kópavogi opnast síðan sá möguleiki
að flytja Kópavogsskóla í húsnæði
Menntaskólans í Kópavogi.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Guðríði sagðist hún ekki
vilja tjá sig um tillöguna að svo
stöddu.
„Við höfum ekki myndað okkur
skoðun á einu né neinu en við fögn-
um öllum hugmyndum um upp-
byggingu á okkar svæði,“ segir Ey-
steinn Pétur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Breiðabliks, um
málið.
Vill kanna möguleika á
að flytja MK í Smárann
- Aðgengi að borgarlínu og íþróttaaðstöðu helstu kostir
Valkostur I
Valkostur II
Mögulegar leiðir borgarlínu um Kópavog
Hamraborg
Smáralind
Fífan
Valkostur I
Um Hafnarfjarðarveg
og Fífuhvammsveg
Valkostur II
Um Digranesveg og Dalveg
Borgarlína
Stofnleið A Stofnleið D Stofnleið G
Mögulegar leiðir stofnlínu A
frá Hamraborg að Smáralind
Kjarnastöðvar borgarlínu
Núverandi staðsetnig MK
Möguleg staðsetning
Theodóra S.
Þorsteinsdóttir
Eysteinn Pétur
Lárusson
Íbúar á Norður- og Austurlandi
ráku margir upp stór augu þegar
dregið var frá gluggum í gærmorg-
un þar sem snævi þakin jörð blasti
við, tæpum tveimur vikum eftir að
sumardagurinn fyrsti gekk í garð.
Íslendingar eru þó ekki með öllu
óvanir slíku en Óli Þór Árnason,
veðurfræðingur á Veðurstofu Ís-
lands, segir þetta hafa verið viðbú-
ið. „Það kólnar það mikið á nótt-
unni í þessu kalda lofti. Svo er
þetta farið að taka upp víða á lág-
lendi núna,“ sagði hann við mbl.is í
gær.
Þá hélt úrkoman áfram yfir dag-
inn og féll bæði snjór og slydda til
jarðar.
Búist er við dálitlum éljagangi í
dag og áframhaldandi snjókomu á
norðurhluta landsins á morgun.
Að sögn Óla klárast þetta líklega
aðfaranótt föstudags og hlýnar um
helgina. „Þá erum við líklega komin
aftur á hlýrri beinni braut. Við
þurfum að lifa af út vikuna.“
Sólin öflug á þessum tíma árs
Birgir Örn Höskuldsson, veður-
fræðingur hjá Veðurstofunni, segir
kalda kafla í maí ekki koma á óvart
heldur sé það nánast hluti af ís-
lensku vori. Hann segir þó sjald-
gæft að mikil snjósöfnun verði
nema til fjalla enda sé sólin orðin
það öflug á þessum tíma árs.
Hvít jörð blasti
við í gærmorgun
- Kaldir kaflar hluti af íslensku vori
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Hundurinn Raven naut sín í snjónum sem féll til jarðar í gær.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Snjór Þæfingur var á þjóðveginum
um Möðrudalsöræfi í gærdag.
Ólafur Ólafsson, fv.
landlæknir, lést í gær,
93 ára gamall.
Ólafur fæddist í
Brautarholti á Kjal-
arnesi hinn 11. nóv-
ember 1928, sonur
hjónanna Ástu Ólafs-
dóttur og Ólafs Bjarna-
sonar. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1948 og kandídatsprófi
frá læknadeild Háskóla
Íslands 1957. Hann
stundaði framhaldsnám
í læknisfræði í Svíþjóð,
Danmörku og Englandi og var við-
urkenndur sérfræðingur í lyflækn-
ingum, hjartasjúkdómum, farsóttum
og í embættislækningum.
1961 gekk hann að eiga Ingu-Lill
Marianne (d. 2013) og varð þeim
fimm barna auðið: Ástu Sólveigar
hjúkrunarfræðings, Ingibjargar
hjúkrunarfræðings, Bjarna Ólafs
lögreglufulltrúa, Páls lögmanns og
Gunnars Alexanders hagfræðings,
en fyrir átti hann tvo syni, þá Ólaf
héraðsdómara og Grím Ólaf fram-
kvæmdastjóra. Barnabörn Ólafs eru
17 og barnabarnabörn níu.
Ólafur fékk stöðu á Karólínska
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi 1961 og
var þar aðstoðaryfir-
læknir þegar hann
þekktist boð árið 1967
um að snúa heim til Ís-
lands og verða fyrsti
forstöðumaður Rann-
sóknarstöðvar Hjarta-
verndar. 1972 hlaut
hann skipun sem land-
læknir. Þar starfaði
hann í 26 ár á við-
burðaríkum tímum þar
sem heilbrigðisþjón-
usta í landinu var í örri
þróun, þar til hann lét
af embætti 1998. Auk
þess leysti landlæknir
af sem heilsugæslulæknir og gegndi
ótal trúnaðarstörfum öðrum.
Ólafur sat í mörgum nefndum og
ráðum, m.a. í almannavarnaráði,
fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni (WHO) 1973-
1998, formaður læknaráðs 1972-1998,
formaður stjórnar Hjúkrunarskóla
Íslands 1974-1986, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík og ná-
grenni 1999-2003 og formaður Fé-
lags eldri borgara 2003-2005.
Ólafur var sæmdur stórriddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
1998, varð heiðursdoktor við lækna-
deild HÍ 1998 og heiðursfélagi í
Læknafélagi Íslands 1998.
Andlát
Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi landlæknir