Morgunblaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
Rað- og smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Skírteini
VinnustaðaskírteiniJóhanna Jóhannsdóttir
RITARI
Kt. 051277-5929
Veitingastaðurinn Inn ehf.
Kt. 670709-5017
Sandblástursfilmur
Fundir/Mannfagnaðir
Dómkirkjan
í Reykjavík
Aðalsafnaðarfundur
Dómkirkjusafnaðarins
verður haldinn miðvikudaginn 11. maí 2022
kl. 17.00 í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar,
Lækjargötu 14a.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Sóknarnefnd
Dómkirkjunnar í Reykjavík
Aðalfundur
Farfugla
Aðalfundur Bandalags íslenskra Farfugla
verður haldinn þriðjudaginn 17. maí nk. kl.
19:15 í Dal, Sundlaugavegi 34.
Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
Stjórnin
Tilkynningar
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með
auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulags-
tillögu.
Hestamannasvæði í Vík - Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagið nær yfir tæpa 8 ha við Kötlugarðinn austast
í Vík og tekur til nýs hesthúsasvæðis fyrir átta hesthús og
keppnissvæði.
Tillaga þessi liggur frammi á skrifstofu Mýrdalshrepps
Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps
www.vik.is frá 5. maí 2022 til og með 17. júní 2022.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif-
stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á
bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út
föstudaginn 17. júní 2022.
George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps
Auglýsing um skipulagsmál
í Mýrdalshreppi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Morgunspjall,
heitt á könnunni kl. 9-10.30. Jóga með Grétu kl. 12.15 og 13.30. Söng-
stund við píanóið með Helgu Gunnars kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.
Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir
velkomnir.
Árbæjarkirkja Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 í kirkjunni. Léttar
veitingar í safnaðarsal gegn vægu gjaldi. Opið hús, fullorðinsstarf.
Leikfimi, spjall, öðru hverju koma góðir gestir og segja frá einhverju
skemmtilegu. Kaffi, meðlæti og spjall.
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Stóladans kl. 10.
Bónus-bíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegis-
matur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir
velkomnir. Sími 411 2600.
Boðinn Handavinnustofa opin kl. 12.30-16. Sundlaugin er opin kl.
13.30-16.
Bústaðakirkja Félagasstarf eldriborgara kl. 13-16, spil og handa-
vinna. Gestur dagsins er Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir sem sýnir
okkur myndir og muni frá Afríku. Kaffið góða á sínum stað, hlökkum
til þess að sjá ykkur öll. Starfsfólk Fossvogsprestakalls.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Ljóðahópur Soffíu kl.
10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi
á RÚV kl. 13-13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Jónshús lokað vegna Vorsýningar kl. 10. Gönguhópur frá
Jónshúsi kl. 11. Stóla-jóga í Kirkjuhvoli kl. 13. Leirnámskeið í Smiðj-
unni kl. 13. Gönguhópur frá Smiðju kl. 15 / 15.40 / 16.20. Vatnsleikfimi
í Sjálandi kl. 16.30. Zumba Gold í Kirkjuhvoli.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 10-
11.15 opinn botsía-tími. Kl. 13-15.30 postulínsmálun. Kl. 13-14.30
bingó.
Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldri borgara kl. 12. Helgistund í kirkj-
unni, fyrirbænir og söngur. Matur í safnaðarheimilinu 1000 kr. Full-
trúar frá Fram ætlar að kynna almenningsíþróttadeild félagsins í
hverfinu okkar. Kaffispjall á eftir. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl.
13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Framhalds-
saga kl. 10.30. Handavinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13.
Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, panta þarf fyrir
hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir
styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10. Stjórnar-
og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10. Gaman saman kl. 13, hvað það
verður veit nú enginn. Qi-gong kl. 16.30. Gleðin býr í Borgum.
Seltjarnarnes Kaffikrókur frá kl. 9, leir Skólabraut kl. 9, botsía, Skóla-
braut kl. 10. Billjard, Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.
Timburmenn, Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins
kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Á
morgun fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
alltaf - allstaðar
mbl.is
✝
Sævar Árna-
son fæddist á
Þórshöfn á Langa-
nesi 10. ágúst
1946. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 19.
apríl 2022.
Foreldrar hans
voru Árni Þorkels
Árnason, f. 30.
desember 1917, d.
29. nóvember
1997, og Helga Gunnólfsdóttir,
f. 1. ágúst 1925, d. 8. október
2004. Systkini Sævars voru 10:
Drengur, f. 9. apríl 1943, d. 28.
ágúst 1943; Gunnlaug Eyfells,
f. 30. júní 1945, gift Halldóri
Magnússyni, f. 4. ágúst 1942;
Árný Kristbjörg, f. 19. júlí
1948, gift Kristjáni S. Rafns-
syni, f. 9. júlí 1948, d. 3. júlí
1996; Gunnólfur, f. 18. júní
1950, kvæntur Fanneyju
Bjarnadóttur, f. 24. maí 1953;
Svala, f. 18. ágúst 1951, d. 29.
október 2009, gift Birni Páls-
syni, f. 23. maí 1975; Hreiðar,
f. 22. júlí 1953; Helga, f. 31.
október 1956, gift Sigurjóni
Hreiðarssyni, f. 5. desember
1952; Ómar, f. 16. mars 1958,
kvæntur Ingibjörgu Á. Blomst-
erberg, f. 5. desember 1960;
Árni Þór, f. 12. september
1959, kvæntur Ástu Þórarins-
dóttur, f. 19. júní 1961; og
Skjöldur Vatnar, f. 13. maí
1963, kvæntur Kristínu L.
Sveinsdóttur, f. 18. september
1967.
Sævar kvæntist 25. mars
1978 eftirlifandi eiginkonu
sinni Hildi Ellertsdóttur, fyrr-
verandi grunnskólakennara, f.
3. október 1952. Foreldrar
hennar voru Ellert Guðmunds-
son, f. 13. mars 1930 og Sigríð-
ur Marta Sigurðardóttir, f. 28.
ágúst 1931.
Sævar og Hild-
ur eignuðust tvö
börn saman: Ell-
ert, f. 2. janúar
1979, og Aldísi
Ósk, f. 10. ágúst
1985, maki Ómar
Örn Kristófersson,
f. 1. júní 1982.
Börn Aldísar eru
Sævar Snær Birg-
isson, f. 21. júní
2005, og Katrín Rós Birg-
isdóttir, f. 19. mars 2010. Son-
ur Hildar er Örn Úlfar Sæv-
arsson, f. 28. febrúar 1973,
kvæntur Ástu Andrésdóttur, f.
6. janúar 1976. Börn þeirra
eru Vala Melkorka, f. 3. sept-
ember 2012, Laufey Matt-
hildur og Högni Dagfinnur, f.
24. janúar 2016.
Sævar ólst upp á Þórshöfn á
Langanesi en fluttist til Suður-
nesja á unglingsárunum ásamt
fjölskyldu sinni. Hann kynntist
Hildi, eftirlifandi eiginkonu
sinni, í mars 1977 og hófu þau
búskap í Keflavík og bjuggu
þar lengst af, en síðustu árin í
Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ.
Sævar var til sjós á yngri
árum en lauk sveinsprófi, og
síðar iðnmeistaraprófi, í húsa-
smíði og starfaði sem slíkur
alla tíð, lengst af á Keflavík-
urflugvelli en einnig við
Blönduvirkjun, Vatnsfells-
virkjun og í Reykjavík og við
verkefni á Grænlandi og í
Þýskalandi. Sævar söng með
Karlakór Keflavíkur frá 27
ára aldri og síðar einnig með
Eldeyjarkórnum og ferðaðist
víða og kom fram með söng-
félögum sínum, bæði hér
heima og erlendis.
Útför Sævars fór fram frá
Keflavíkurkirkju 3. maí 2022.
Pabbi minn er farinn frá
okkur eftir rúmlega fimm ára
baráttu við krabbamein af völd-
um asbests. Til að byrja með
voru lífslíkurnar nú ekki mikl-
ar, eða um eitt og hálft ár.
Hann náði að lifa með því í rúm
fimm ár. Þegar ég kom inn í
herbergið á spítalanum og hann
var að fara yfir hinum megin þá
strauk ég á honum höfuðið,
sagði honum hversu mikið ég
elskaði hann og hversu þakklát
ég væri fyrir hann. Þakklæti er
tilfinning sem fylgdi mér allan
daginn og hefur fylgt mér síðan
ég kvaddi hann. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa fæðst á af-
mælisdegi hans og öll árin sem
við deildum saman þeim degi.
Ég er svo þakklát fyrir að ég
hafi verið það heppin í lífinu að
hafa fengið hann sem pabba, og
enn þakklátari fyrir að hafa náð
að segja honum frá því í einu af
okkar mörgum samtölum áður
en hann fór frá okkur. Ég er
svo þakklát fyrir allan þann
tíma sem ég hef fengið að hafa
hann í lífi mínu og í lífi
barnanna minna. Ég er svo
þakklát fyrir að börnin mín hafi
fengið að kynnast föður mínum
sem átti svo stóran þátt í að
móta mig. Mér finnst þó erfitt
að barnið sem ég ber núna, og
er væntanlegt í heiminn á
næstu dögum, fái ekki að kynn-
ast honum og hann því. Pabbi
sagði við mig að hann vonaði að
við gætum sagt einhverjar
ágætar sögur af sér. En eins og
ég sagði við pabba þá verða
sögurnar svo miklu meira en
bara ágætar. Það eru svo marg-
ar frábærar sögur af honum
sem hægt er að segja frá. Pabbi
minn var svo mikið ljúfmenni,
sá alltaf jákvæðu hliðarnar á
öllu og var alltaf tilbúinn til að
stökkva til og hjálpa ef einhver
þurfti aðstoð. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa náð að segja hon-
um frá nafni barnsins. Við gát-
um rætt saman um nafnið.
Hann lofaði að segja engum frá
því en hann getur sagt öllum
frá því hinum megin núna. Það
er bara svo margt sem ég get
verið þakklát fyrir með hann
pabba minn og ég get skrifað
margar blaðsíður um það. Ég
leyfi þessum orðum að duga í
bili.
Ég trúi því, elsku pabbi
minn, að þú vakir yfir okkur og
passir upp á okkur. Við söknum
þín, börnin mín sakna þín. Við
elskum þig og pössum upp á
mömmu fyrir þig.
Leyfi hér einu af mörgum
lögum að fylgja með sem þú
söngst fyrir mig þegar ég var
yngri.
Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
þú ert ástarhnossið mitt nýtt,
þú ert sólrún á suðurhæðum,
þú ert sumarblómið mitt frítt,
þú ert ljósið sem lifnaðir síðast,
þú ert löngunar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði,
þú ert ósk, – þú ert óskin mín.
(Þórarinn Guðmundsson/Gestur)
Þangað til við hittumst
næst.
Þín dóttir,
Aldís Ósk.
Pabbi hafði þann einstaka
hæfileika að geta ákveðið ná-
kvæmlega klukkan hvað hann
ætlaði að vakna og það stóðst
alltaf, jafnvel þegar þurfti að
skutla fólki í flug um miðja
nótt. Nú er hann sjálfur farinn
og sorgin og söknuðurinn eru
blandin beiskju því hann hefði
svo sannarlega átt skilið að
vera með okkur miklu lengur.
En ávextir erfiðisins gegnum
tíðina reyndust eitraðir, mein
sem rakið var beint til óheil-
næmra vinnuskilyrða.
Sævar Árnason kom inn í líf
okkar mömmu þegar ég var
fjögurra ára og tók ég honum
alls ekki jafn vel og hann tók
mér. Ég var ekkert á þeim bux-
unum að deila móður minni
með öðrum en tíminn vann með
okkur og fékk ég að kalla hann
pabba allar götur síðan og njóta
þeirra margvíslegu mannkosta
sem hann hafði að bjóða allt til
enda. Það var reyndar stundum
haft á orði að móðir mín hefði
nýtt sér tengsl sem fyrrverandi
starfsmaður Þjóðskrár til að
finna mér stjúpföður sem héti
Sævar, til einföldunar.
Samverustundirnar hefðu að
ósekju mátt vera fleiri en þær
sem áttum voru alla tíð ljúfar
og þægilegar og alltaf vildi
pabbi allt fyrir okkur systkinin
gera, jafnvel þvert á fjárráðin
hverju sinni. Þetta var nefni-
lega dálítið basl á tímabili en
með einstökum dugnaði og
vinnusemi tókst pabba, og auð-
vitað mömmu líka, að skapa
fjölskyldunni góða umgjörð.
Ósérhlífni og seigla eru orð
sem lýsa honum vel.
Ég man eftir dögum þegar
pabbi kom heim eftir heilan
dag í smíðum og fór svo beint
að beita fram yfir miðnætti.
Seinna, þegar vinnu skorti á
Íslandi, þá var bara farið til
Grænlands.
Hjálpsemi hans var líka orð-
lögð og fengu margir að njóta
dugnaðar hans og hæfileika
við smíðar í frístundum. Auð-
vitað vorum við Ásta þar á
meðal en við fengum ómetan-
lega hjálp frá honum þegar við
eignuðumst okkar íbúð og svo
lyfti hann sannkölluðu grett-
istaki þegar við stækkuðum
við okkur með nýfædda tví-
bura. Hann var alltaf boðinn
og búinn. Og það er þess vegna
sem þetta er allt svona ósann-
gjarnt. Að maður sem gaf
svona mikið af sér skuli ekki
hafa uppskorið meiri og inni-
haldsríkari hvíld eftir vel unnin
störf í áratugi. Þess í stað tók
við barátta við meinið illvíga
en með sinni einstöku seiglu
tókst pabba að framlengja þá
ójöfnu viðureign um mörg ár
umfram þær líkur sem honum
voru gefnar við greiningu
meinsins.
Nú er baráttan á enda og
innbyggða vekjaraklukkan er
hætt að tifa, að minnsta kosti
hérna megin í tilverunni. Hinn
skilyrðislausi kærleikur Sæv-
ars Árnasonar, glaðlyndið,
söngurinn, æðruleysið og ósér-
hlífnin munu þó áfram vekja
með okkur einlægt þakklæti og
ómetanlegar minningar alla
tíð.
Örn Úlfar
Sævarsson.
Sævar Árnason
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG Þ. JÓNSDÓTTIR
frá Blönduósi,
lést að kvöldi þriðjudagsins 12. apríl.
Útförin fer fram í Blönduóskirkju
fimmtudaginn 5. maí klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á HSN á Blönduósi.
Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat
Skarphéðinn H. Einarsson Sigrún Kristófersdóttir
Jón Karl Einarsson Ágústa Helgadóttir
Kári Húnfjörð Einarsson Björk Ágústsdóttir
Magdalena Rakel Einarsd.
og fjölskyldur